Væri „brjálæði“ að semja ekki um skuldir Grikkja

Grísk stjórn­völd, fulltrúar Evrópu­sambandsins, Alþjóða­gjal­eyris­sjóðsins og annarra kröfuhafa Grikk­lands, reyna nú til þrautar að ná samkomu­lagi um endur­skipulagningu á skuldum landsins, einkum gjald­dögum sem framundan eru á næstu mánuðum. Þar á meðal er gjalddagi upp á 1,6 milljarð evra 30. júní næst­komandi.

Louka Katseli, formaður stjórnar seðla­bankans í Grikk­landi, segir í viðtali við breska ríkis­útvarpið BBC að það sé „brjálæði“ að semja ekki um skuldir landsins og hagræðingar­aðgerðir. Jafnframt sagði hún að ekki væri aðkall­andi hætta á því að bankar landsins yrðu peninga­lausir, vegna áhlaups, en Seðla­banki Evrópu, móður­banki seðla­banka Grikk­lands, hefur undan­farin misseri haldið gríska banka­kerfinu gangandi með neyðar­lánum.

Angela Merkel, kanslari Þýska­lands, lét hafa eftir sér í gær að þeir sem væru að vinna að því að endur­semja um skuldir Grikkja hefðu helgina til þess, og ekki stundinni lengur. Ef ekki dregur til tíðinda í dag gæti Grikk­landi klofið sig út úr evru­samstarfinu og upplifað mikla efnahags­lega erfið­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár