Sölumet iPhone líklega slegið

Forsala á nýjustu útgáfu iPhone, snjall­síma Apple, hefur farið vel af stað og tilkynntu talsmenn fyrir­tækisins í dag að ef fram fer sem horfir verði sölumetið frá fyrra ári slegið. Í fyrra seldust tíu milljón eintök af iPhone 6 snjall­símum fyrstu helgina eftir að hann fór í sölu.

Í síðustu viku kynnti Tim Cook, forstjóri Apple, nýjustu útgáfu iPhone. Forpöntun á símanum, sem kemur í verslanir þann 25. september næst­komandi, hófst nú um helgina. Því hefur verið spáð að um 4,5 milljónir eintök hafi verið pöntuð á fyrstu 24 klukku­stundunum, saman­borið við 4 milljónir eintaka þegar iPhone 6 fór í forsölu. Fram kemur í frétt Reuters um málið í dag að Apple hafi ekki gefið upp nákvæmar sölutölur, aðeins sagt að salan sé á góðri leið með að slá fyrra sölumet auk þess sem notendur hafi sérstak­lega sýnt stærri útgáfu símans, iPhone 6S Plus, aukin áhuga.

Meðal nýjunga í uppfærðri útgáfu iPhone er svokölluð 3D Touch snertiskjás­tækni, sem skynjar hversu fast ýtt er á skjáinn, auk þess sem myndavél símans hefur verið uppfærð. Umsjónar­menn Tækni­varpsins fóru yfir iPhone og aðrar nýjungar frá Apple í síðasta hlaðvarps­þætti sem hlusta má á hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár