Rúmlega tuttugu sækjast eftir skrifstofustjórastöðu í forsætisráðuneytinu

Fyrr­ver­andi for­seti ASÍ og fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins eru á meðal umsækj­enda um aug­lýst starf skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu stefnu­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Gylfi Arnbjörnsson fyrrverandi forseti ASÍ er á meðal þeirra sem sækjast eftir embættinu.
Gylfi Arn­björns­son fyrr­ver­andi for­seti ASÍ er á meðal þeirra sem sækj­ast eftir emb­ætt­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Alls bár­ust 22 umsóknir um emb­ætti skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu stefnu­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Á meðal umsækj­enda um stöð­una eru Karl Garð­ar­son fyrr­ver­andi fjöl­miðla­maður og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Gylfi Arn­björns­son fyrr­ver­andi for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands og Ari Matth­í­as­son fyrr­ver­andi þjóð­leik­hús­stjóri.

Umsókn­ar­frestur rann út 20. ágúst. Einn umsækj­andi dró umsókn sína til baka, sam­kvæmt því sem segir í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Þriggja manna hæfn­is­nefnd skipuð af for­sæt­is­ráð­herra mun nú meta hæfni umsækj­enda og skila grein­ar­gerð til ráð­herra. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra mun síðan skipa í emb­ættið til fimm ára.

Skrif­stofa stefnu­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu vinnur í umboði for­sæt­is­ráð­herra að stefnu­mótun og fram­gangi stefnu­mála rík­is­stjórn­ar­innar með því að vinna að sam­hæf­ingu mála innan stjórn­ar­ráðs­ins og utan, auka yfir­sýn og for­ystu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og tryggja vand­aðan und­ir­bún­ing mála fyrir ráð­herra og rík­is­stjórn, sam­kvæmt því sem segir í til­kynn­ingu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Nöfn umsækjenda:

  • Ari Matth­í­as­son, deild­ar­stjóri
  • Arn­heiður Elísa Ingj­alds­dóttir, stað­geng­ill skrif­stofu­stjóra
  • Atli Viðar Thorsten­sen, sviðs­stjóri
  • Einar Hlöðver Sig­urðs­son, vöru­þró­un­ar­stjóri
  • Gerður Guðrún Árna­dóttir, sér­fræð­ingur í ráð­gjöf verð­bréfa- og líf­eyr­is­þjón­ustu
  • Guð­brandur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri
  • Gylfi Arn­björns­son, hag­fræð­ingur
  • Hermann Sæmunds­son, skrif­stofu­stjóri
  • Ingunn Sigríður Þor­steins­dóttir, rekstr­ar­hag­fræð­ingur
  • Jóhann Krist­jáns­son, ráð­gjafi
  • Jóna Guðný Kára­dóttir, við­skipta­fræð­ingur
  • Karl Garð­ars­son, fram­kvæmda­stjóri
  • Lilja Dögg Jóns­dóttir Donovan, sér­fræð­ingur
  • Lína Björg Tryggva­dóttir, verk­efna­stjóri
  • Pétur Berg Matth­í­as­son, settur skrif­stofu­stjóri
  • Reynir Jónsson, sér­fræð­ingur og verk­efna­stjóri stefnu­mót­unar
  • Rögn­valdur Guð­munds­son, verk­efna­stjóri
  • Steinunn Hall­dórs­dóttir, stjórn­sýslu­fræð­ingur og verk­efna­stjóri
  • Þor­steinn Þor­geirs­son, efna­hags­ráð­gjafi
  • Þór­lindur Kjart­ans­son, sjálf­stætt starf­andi ráð­gjafi
  • Þröstur Freyr Gylfason, sér­fræð­ingur
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár