Heiða Björg hafði betur gegn Rósu með þriggja atkvæða mun

Heiða Björg Hilmis­dóttir borgar­fulltrúi verður næsti formaður Sambands íslenskra sveitar­félaga. Rósa Guðbjarts­dóttir bæjar­stjóri í Hafnar­firði sóttist einnig eftir formennsk­unni, en laut í lægra haldi með litlum mun í rafrænni kosningu landsþings­fulltrúa

Heiða Björg tekur við sem formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga undir lok næsta mánaðar.
Heiða Björg tekur við sem for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga undir lok næsta mán­aðar. Mynd: Bára Huld Beck

Heiða Björg Hilmis­dóttir, vara­formaður og borgar­fulltrúi Samfylkingarinnar, verður næsti formaður Sambands íslenskra sveitar­félaga, en hún hafði betur í rafrænni kosningu landsþings­fulltrúa sambandsins sem hófst 15. ágúst og lauk í dag. Heiða Björg hefur verið vara­formaður sambandsins undan­farin ár.

Rósa Guðbjarts­dóttir bæjar­stjóri og oddviti Sjálfstæðis­flokksins í Hafnar­firði bauð sig fram gegn Heiðu Björgu og afar mjótt var á munum. Alls voru 152 landsþings­fulltrúar á kjörskránni og kosninga­þátttakan 98,03 prósent.

Heiða Björg fékk 76 atkvæði, 51,01 prósent atkvæða, en Rósa hlaut 73 atkvæði, 48,99 prósent.

Það verður því Heiða Björg sem mun því taka við embætti formanns Sambands íslenskra sveitar­félaga á lands­þingi sambandsins sem fer fram á Akureyri undir lok næsta mánaðar. Þar verður sömuleiðis kjörin ný stjórn sambandsins.

Í tilkynningu Sambands íslenskra sveitar­félaga segir að Heiða Björg sé fædd og uppalin í Eyjafirði, en hún hefur búið í Reykjavík nær öll sín fullorðinsár.

Heiða Björg var kjörin vara­formaður Samfylkingarinnar í febrúar 2017, hefur setið í borgar­stjórn Reykja­víkur í 9 ár og verið vara­formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitar­félaga síðustu 4 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár