Malmö - Chicago norðursins

Lögreglan í Malmö í Svíþjóð vill að eftirlit við Eyrar­sundsbrúna, milli Danmerkur og Svíþjóðar verði stóraukið. Ástæðan er vopna­smygl frá Danmörku og yfir sundið. „Viljum ekki vera Chicago Norðursins,“ segir aðstoðar­yfir­lögreglu­þjónn í Malmö.

Borgin Malmö við Eyrarsund, gegnt Kaupmanna­höfn, er þriðja stærsta borg Svíþjóðar, íbúarnir um 300 þúsund talsins. Borgar­búar eiga uppruna í 177 löndum um veröld víða og um það bil 30 prósent þeirra eru fæddir í löndum utan Svíþjóðar. Fjölmennastir „aðkomu­manna“ eru Írakar, Danir, fólk frá fyrrum Júgóslavíu og Pólverjar. Rúm 15 prósent borgarbúa eru án atvinnu og hlutfall atvinnu­lausra hvergi hærra í landinu, lands­meðaltalið er 8.5 prósent.

Ekki verður með sanni sagt að í þessari þriðju stærstu borg Svíþjóðar lifi allir í sátt og samlyndi. Öðru nær. Á undan­förnum árum hefur morðum, skot­árásum, ránum og líkams­árásum fjölgað mikið og á allra síðustu mánuðum hafa fjölmargar sprengjur sprungið í borginni.

Glæpa- og innflytjendaklíkur


Malmö skipt­ist í 10 hverfi. Eitt þeirra er Ros­engaar­den þar sem um 24 þús­und manns búa. Um 86 pró­sent þeirra eru af erlendum upp­runa, þar af eru 60 pró­sent fædd utan Sví­þjóðar. Þriðj­ungur íbúa Ros­engaar­den er yngri en 18 ára og 15 pró­sent pró­sent þess­ara ung­menna hafa hlotið dóm, margir fleiri en einn eða tvo. Hvergi í Svíþjóð er hlut­fall ungra afbrota­manna jafn hátt. Átök hópa ung­menna, af ólíkum upp­runa eru algeng í Ros­engaar­den hverf­inu, iðu­lega af litlu til­efni.

Önnur skýring á ástandinu í borginni er rakin til þess að þar hafa margar glæpa­klíkur (rokkarar) aðsetur og hefur fjölgað á undan­förnum árum. Klíkur þessar, að minnsta kosti sumar þeirra, eru í tengslum við Vítis­engla, Bandidos, Black Cobra og fleiri slíkar sem hafa aðsetur í Kaupmanna­höfn. Milli þessara hópa kemur iðulega til átaka, þar sem hnífar og byssur eru dregin úr slíðrum.

Lögreglan hefur lokað augunum fyrir vandanum


Tobias Barkman blaða­maður á Sydsvenska Dag­bla­det og einn höf­unda bók­ar­innar „Mafi­akrig“ sem fjallar um glæpaklíkur í Malmö segir að lög­reglan hafi árum saman leitt hjá sér sívax­andi glæp­a­starf­semi í borg­inni. Sú starf­semi teng­ist ekki síst verslun með eit­ur­lyf.

Tölur sýna að sænsku lögreglunni, ekki síst í Malmö verður sjaldnast mikið ágengt við að upplýsa glæpi. Það gildir jafnt um morð, ofbeldi, rán og vopnuð átök.

Malmö er hliðið að Svíþjóð og það hlið er galopið


Sænska lög­reglan telur að ein helsta skýr­ing á ástand­inu í Malmö sé sú að þangað flæði, óhindrað og í stórum stíl, vopn sem komi víðs­vegar að úr Evrópu í gegnum Kaup­manna­höfn. Nánast ekk­ert eft­ir­lit sé með umferð­inni um Eyr­ar­sunds­brúna og um landa­mærin milli Sví­þjóðar og Dan­merkur.

Í júní síðastliðnum fóru rúmlega 660 þúsund ökutæki um Eyrar­sundsbrúna. Sáralítið er fylgst með almennri umferð einkabíla, ef frá eru talin gjald­hliðin sem eru Svíþjóðarmegin sundsins. Af þessum fjölda voru 24 þúsund vörubílar en þeir fara nær allir gegnum toll­eftirlit við gjald­hliðin. Um það bil 30 þúsund manns fara yfir sundið daglega vegna vinnu, margir þeirra akandi í eigin bíl.

Á síðasta ári lagði sænska lögreglan hald á 71 skotvopn við Eyrar­sundsbrúna og í Malmö. Mats Karlsson aðstoðar­yfir­lögreglu­þjónn í Malmö segir að þetta sé aðeins brot af þeim fjölda vopna sem komi frá Danmörku til Malmö á hverju ári. Hann segist jafnframt handviss um að flutningur vopna til Svíþjóðar yfir Eyrar­sundsbrúna fari vaxandi en einnig berist fjöldi vopna með póstinum, einkum frá Serbíu og öðrum ríkjum fyrrum Júgóslavíu.

Sænska lögreglan telur að hún nái aðeins að komast yfir mjög lítinn hluta þeirra vopna sem smyglað er til Malmö á ári hverju. Mynd: EPA

Ekki hægt að stoppa hvern einasta bíl


Það segir sig sjálft að úti­lokað er að stöðva og skoða hvern ein­asta bíl sem ekur yfir brúna. Slíkt myndi kosta offjár og miklar tafir. Þarna yrði því að koma til ann­ars konar eft­ir­lit. Gerd Battrup lektor við Syddansk Uni­versitet, sem hefur um ára­bil rann­sakað landamæra­gæslu og sam­vinnu lög­reglu óháð landa­mærum, segir að sam­starf dönsku og þýsku lög­regl­unnar sé gott dæmi um slíka sam­vinnu. Ein­hverra hluta vegna hafi ekki tek­ist að koma á nánu sam­starfi dönsku og sænsku lög­regl­unnar. Samstarf vopna­smyglar­anna beggja vegna Eyr­ar­sunds sé bæði meira og nán­ara en sam­starf lög­regl­unnar.

sdsf
sdsf

Finn Lauritzen sem er framkvæmda­stjóri Eyrar­sunds­nefndarinnar, sem vinnur að aukinni samvinnu á Eyrar­sunds­svæðinu, tekur í sama streng. Hann segir að sú mynd sem dregin sé upp í sjónvarps­mynda­flokknum „Brúnni,“ þar sem danska og sænska lögreglan vinna náið saman, sé því miður víðs fjarri raun­veru­leikanum. Talsmaður dönsku lögreglunnar segir hinsvegar að lögregla beggja vegna sunds vinni náið saman en auðvitað megi alltaf gera betur.

Tormod Christensen aðstoðar­yfir­lögreglu­þjónn hjá rannsóknar­deild dönsku lögreglunnar segir að þar á bæ sé fylgst grannt með ástandinu í Malmö. Danska lögreglan muni gera allt sem í hennar valdi standi til að hindra að sú alda glæpa og ofbeldis sem íbúar Malmö hafi fengið að kynnast berist yfir sundið. Í Malmö er tónninn í svipuðum dúr. „Við munum gera allt sem við getum til að breyta ástandinu til hins betra og koma í veg fyrir að Malmö verði miðstöð glæpa­manna. Malmö má ekki verða Chicago Norðursins,” sagði Mats Karlsson aðstoðar­yfir­lögreglu­þjónn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár