Fréttaþulur hvetur almenning til að berjast gegn net-rasistum

Þulur í þýsku sjónvarpi hefur hleypt af stað mikilli umræðu, eftir að hún kallaði eftir skýrri afstöðu almennings gegn rasisma á netinu gagnvart flótta­mönnum. Örfáum mínútum eftir að útsendingu lauk fór pistill hennar sem eldur í sinu á internetinu og í gær hafði stutt ávarp hennar fengið um 9 milljón áhorf, 250 þúsund líkaði við það á Facebook og athuga­semdir voru yfir tuttugu þúsund talsins.

Frétta­maðurinn Anja Reschke nýtti ritstjórnar­pláss í sjónvarps­tíma á stöðinni Tagesthemen til þess að gagnrýna þá sem þá sem dreifa rasískum áróðri á samskipta­síðum og annars staðar á netinu. Hún sagði þessa einstaklinga hvetja til raun­verulegs ofbeldis gegn flótta­mönnum og nefndi íkveikjur sem dæmi um slíkt ofbeldi.


Reschke sagðist vera brugðið yfir hversu samfélags­lega samþykkt það er orðið að úthúða annað fólk á netinu. Áður hafi einhverjir gert slíkt undir dulnefni en í dag dreifi fólk rasískum ummælum undir eigin nafni.


„Það virðist ekki lengur vera vandræðalegt fyrir viðkomandi. Þvert á móti, viðbrögð við ummælum á borð við „Viðbjóðs­legu meindýrin ætti að drukkna í sjónum“, eru jákvæð og fullt af fólki líkar við stöðu­færsluna,“ sagði Reschke.


Reschke sagði þróunina hafa ýtt undir uppgang öfgafulltra stjórnmála­afla á hægri vængnum. Hún biðlaði til „siðsamlegra“ Þjóðverja um að láta í sér heyra ef þeir séu ósammála því að allir innflytjendur og flótta­menn séu afætur sem eigi að elta uppi og drepa.


Mynd­bandið má sjá hér að neðan og með enskum texta á vef The Guardian, sem fjallar um málið.




„Wenn man also nicht der Meinung ist, dass alle Flüchtlinge Schmarotzer sind, die verjagt, ver­brannt oder verg­ast werden soll­ten, dann sollte man das ganz deutlich kund tun. Dagegen hal­ten. Mund aufmachen. Haltung zeigen“, so Panorama-Chefin Anja Reschke in Ihrem Tagest­hemen-Kommentar zur Hetze im Internet.

Posted by tagesschau on Wednesday, 5 August 2015

Umfjöllun The Guardian.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár