Jurassic World slær miðasölumet í Bandaríkjunum

Jurassic World, nýjasta kvik­myndin um risa­eðlurnar í hinum svokallaða Júragarði Steven Spielberg, er að slá flest aðsóknarmet í Banda­ríkjunum. Frétta­miðillinn Business Insider greinir frá málinu.

Myndin var fyrst sýnd vestan hafs á fimmtudags­kvöldið og sló þá strax aðsóknarmet Universal kvikmynda­versins, vegna miðasölu á svokallaða fimmtudags­forsýningu. Miðasala á myndina nam þá 18,5 milljónum bandaríkja­dala, eða ríflega 2,4 milljörðum íslenskra króna.

Formleg frum­sýning Jurassic World var í Banda­ríkjunum á föstu­daginn, en þá skilaði miðasala á myndina rúmum 64 milljónum bandaríkja­dala í kassann, sem er stærsti frum­sýningar­dagur kvik­myndar vestan hafs til þessa.

Enn á eftir að taka saman tölur fyrir miðasölu á kvik­myndina um helgina, en talið er að myndin hali inn yfir 200 milljónum dala yfir helgina í miða­sölutekjur bara í Banda­ríkjunum. Ef fram fer sem horfir, og spár ganga eftir, mun risaeðlu­myndin þar með setja met hvað varðar tekjur af miðasölu.

Kvik­myndin var sömuleiðis frumsýnd á heimsvísu um helgina, og rakaði þar inn 60 milljónum bandaríkja­dala í 66 löndum. Með miða­sölu­tekjunum á heimsvísu og miðasölu frá því á miðvikudaginn, þegar myndin var forsýnd í nokkrum borgum Banda­ríkjanna, hefur miðasala á Jurassic World nú þegar skilað tæplega 213 milljónum bandaríkja­dala í kassann og helgin ekki liðin.



Jurassic World kostaði 150 milljónir dala í fram­leiðslu og var leikstýrt af Colin Trevorrow, sem átti fyrir aðeins eina kvikmynd í fullri lengd á ferilskránni, hina stór­skemmtilegu og frumlegu Safety Not Guaranteed.

Nýjasta bíómyndin um Júra­garðinn er að mælast þokkalega fyrir hjá kvikmynda­gagn­rýnendum. Þá gefur til að mynda IMDB myndinni 7,7 í einkunn, og kvik­myndasíðan Rotten Tomatoes gefur henni 70%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár