Þrýsti á um að fá kvennalið í FIFA 16 - Carli Llyod best kvenna í leiknum

Spænski landsliðs­fyrirliðinn í fótbolta kvenna, Veronica Boquete, á mesta heiðurinn að því að tölvuleikjarisinn EA, sem gefur út FIFA, ákvað að vera með tólf kvenna­landslið í nýjustu útgáfu leiksins, FIFA 16, sem kemur út á heimsvísu 22. september næst­komandi.

Nú hefur verið gefinn út listi yfir tuttugu bestu leikmenn kvenna­landsliða í leiknum, og er það fyrirliði heims­meistara­liðs Banda­ríkjanna, Carli Llyod, sem er með hæstu einkunn allra, 91 á skalanum frá 1 til 100.

FIFA leikirnir eru með allra vinsælustu tölvu­leikjum heimsins, og gera áætlanir EA ráð fyrir að leikurinn sem kemur út eftir tæpar tvær viku muni slá öll fyrri sölumet.

Á heimsvísu seldust tæplega sjö milljónir eintaka af FIFA 15 leiknum, en tekjur af netspilunar viðmótinu, FIFA Ultimate Team, eru einnig ört vaxandi, en þar geta leikmenn keypt spila­peninga, byggt upp lið og keypt við aðra í gegnum netið.

Boquete þrýsti á um að FIFA leikurinn væri einnig með kvenna­liðum ekki síst til að efla orðspor kvenna­fótboltans og vinna gegn þeirri ímynd að fótbolti sé frekar fyrir stráka en stelpur. Hún setti af stað undir­skriftar­söfnun á netinu og setti markið á að fá 50 þúsund einstaklinga til að þrýsta á EA um að kvennalið væru einnig í leiknum vinsæla.

Það markmið náðist og gott betur, og brást EA strax við með því að verða við kröfum fjöldans sem skrifaði undir og bjóða upp á tólf kvenna­landslið, með áform um að fjölga þeim hratt þegar fram í sækir í árlegum endur­átgáfum leiksins.

Listann yfir bestu leikmenn kvenna­liða í leiknum má sjá hér að neðan.

20. Caroline Seger - Svíþjóð - 84

19. Nilla Fischer - Svíþjóð - 84

18. Rosana - Brasilía - 84

17. Anji Mittag - Þýskaland - 84

16. Alex Morgan - Banda­ríkin - 84

15. Tobin Heath - Banda­ríkin - 85

14. Christie Rampone - Banda­ríkin - 85

13. Celia Sasic - Þýskaland - 85

12. Dzsenifer Marozsan - Þýskaland - 86

11. Nadine Angerer - Þýskaland - 86

10. Becky Sauerbrunn - Banda­ríkin - 86

9. Lotta Schelin - Svíþjóð - 87

8. Hope Solo - Banda­ríkin - 87

7. Marta - Brasilía - 88

6. Christine Sinclair - Kanada - 88

5. Nadine Kessler - Þýskaland - 89

4. Louisa Necib - Frakkland - 90

3. Abby Wambach - Banda­ríkin - 90

2. Megan Rapinoe - Banda­ríkin - 90

1. Carli Lloyd - Banda­ríkin - 91

https://www.youtube.com/watch?v=WY0cJysUrAw

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár