Bjarni og Gunnar Bragi árið 2013: ESB-viðræðum ekki slitið án þingsins

Bæði Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra og Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra sögðu í fjöl­miðlum haustið 2013 að bera ætti slit á aðildar­viðræðum við Evrópu­sambandið undir Alþingi.

Haustið 2013 lét Gunnar Bragi taka saman álitsgerð um bindandi áhrif þings­ályktana, vegna ákvörðunar ríkis­stjórnarinnar um að gera hlé á aðildar­viðræðum. Samkvæmt þeirri álitsgerð binda þings­ályktanir stjórn­völd ekki umfram það sem af þingræðis­venju leiðir.

Utan­ríkis­ráðherra sagði í kjölfar álits­gerðarinnar að ríkis­stjórnin væri því ekki bundin af því að fylgja ályktun þingsins eftir. Mikil umræða skapaðist um málið, og Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra kom í viðtal við RÚV og sagði að ef slíta eigi aðildar­viðræðum við Evrópu­sambandið þurfi að bera þá ákvörðun undir þingið. Hann sagði málið þurfa að koma til kasta þingsins á endanum. „Mér finnst það vera hluti af því sem er framundan hjá okkur í þinginu. Næsta skref eigi að vera þetta.“ Hann var þá spurður sérstak­lega um viðræðu­slit og sagði „þú ert þá að tala um ef viðræðunum yrði endanlega slitið. Ég tel að það væri ákvörðun sem þyrfti að bera undir þingið.“ Hann sagði jafnframt að málið væri þess eðlis að þjóðin verði að fá að hafa á því skoðun.

Tveimur dögum síðar kom Gunnar Bragi fram á ný og sagðist vera sammála Bjarna um að bera eigi slit á aðildar­viðræðum við Evrópu­sambandið undir Alþingi. „Ég hef aldrei mótmælt því að þingið þurfi að taka endanlega ákvörðun. Það sem ég hef hins vegar sagt er að það megi lesa það út úr álitinu að þess þurfi ekki. Ég hef líka sagt að ég muni ekki eiga frumkvæði að því að leggja það til að svo verði gert. Því get ég tekið undir með Bjarna Benedikts­syni að það sé eðlilegast að þingið taki þessa ákvörðun,“ sagði Gunnar Bragi í viðtali við Morgun­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár