Ungverska kvikmyndatökukonan biðst afsökunar

Petra László, ungverska kvikmynda­tökukonan sem var mynduð þegar hún sparkaði í flótta­börn og felldi flótta­mann við landamæri Ungverja­lands og Serbíu í bænum Röszke, hefur beðist afsökunar á athæfi sínu. Hún segist ekki vita hvað kom yfir sig, hún hafi einfald­lega brjálast um stund.

Kvikmynda­tökukonan biðst afsökunar í grein í ungverska dagblaðinu Magyar Nemzet í dag og The Guardian greinir frá. Hún segist hafa átt erfiða daga frá atvikinu, trúi ekki eigin gjörðum og þver­neitar því að hún sé rasisti. „Tökuvélin var í gangi, hundruð flótta­manna brutust í gegnum varnir lögreglunnar, einn þeirra hljóp að mér og ég varð hrædd,“ skrifar hún. Næst hafi hún einfald­lega brjálast um stund. Hún taldi að ráðist væri að sér og tók því til varna. „Það er erfitt að taka rétta ákvörðun á tímum þegar fólk er hrætt.“

László var í kjölfar atviksins rekinn af ungversku sjónvarps­stöðinni N1TV og í gær tilkynnti saksóknari í Ungverja­landi að meint glæpsamlegt athæfi hennar sé til rann­sóknar. Konan segir að gríðarleg óvild í hennar garð í fjöl­miðlum eigi ekki rétt á sér, hún sé reiðu­búinn að taka ábyrgð á gjörum sínum en hún sé ekki rasisti, heldur atvinnu­laus móðir.

Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár