Stjórn HB Granda samþykkir kaup á sölufélögum í Asíu og breytir nafninu í Brim

Félagið gerði kauptil­boð í asísku félögin fyrir 4,4 millj­arð króna. Nýtt nafn á að mark­aðs­setja félagið á alþjóða­mörk­uðum.

Í dag sam­þykkti stjórn HB Granda hf. samn­inga um kaup á sölu­fé­lögum í Asíu og leggja þá fyrir hlut­hafa­fund til sam­þykktar. Félagið gerði kauptil­boð í félögin að fjár­hæð 31,1 milljón evra eða 4,4 millj­örðum króna síð­ast­lið­inn föstu­dag, að því er kemur fram í frétta­til­kynn­ingu félags­ins.

Eigandi félag­anna gekk að til­boð­inu og er til­gang­ur­inn að styrkja sölu- og mark­aðs­starf félags­ins á alþjóða­mörk­uðum, einkum í Asíu.

Nafni félags­ins verður breytt í Brim og Brim Seafood. Samkvæmt til­kynn­ing­unni mun nýtt vöru­merki og nafn þjóna til­gangi félags­ins vel sem sé að mark­aðs­setja og selja afurðir sem félagið veiðir og vinnur á verð­mætum alþjóða­mörk­uðum. Boðað verður til hlut­hafa­fundar í dag og verður hann hald­inn um miðjan ágúst.

Guð­mundur Krist­jáns­son er for­stjóri HB Granda, og jafn­framt stærsti eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur. Útgerða­fé­lag Reykja­víkur er einnig stærsti eig­andi HB Granda. Mark­aðsvirði HB Granda í dag, er um 60 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár