HB Grandi kaupir félög af Útgerðarfélagi Reykjavíkur til að styrkja stöðu í Asíu

Kaupin eru með fyr­ir­vara um sam­þykki stjórna og hlut­hafa­fundar félag­anna. Kaup­verðið er 4,4 millj­arðar króna.

HB. Grandi hf. hefur gert Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur hf., áður Brimi, til­boð um kaup á öllu hlutafé í sölu­fé­lögum í Japan, Hong Kong og á meg­in­landi Kína, sem og þjón­ustu­fé­lagi á Íslandi sem teng­ist fram­an­greindum félögum.

Til­gangur kaupanna er að styrkja stöðu HB Granda og sjáv­ar­út­vegs á Íslandi á mik­il­vægum og vax­andi mörk­uðum í Asíu.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hf. hefur gengið að fyrr­nefndu kauptil­boði og hafa félögin und­ir­ritað kaup­samn­inga. Öll hin keyptu félög eru í fullri eigu Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur hf., sem er þannig selj­and­inn í við­skipt­unum.

Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri HB Granda, er jafn­framt stærsti eig­andi ÚR, sem síðan er stærsti eig­andi HB Granda.

Kaup­verðið sam­svarar alls 31,1 millj­ónum evra fyrir allt hlutafé allra frangreindra félaga, eða sem nemur um 4,4 millj­örðum króna.

Kaupin eru gerð með fyr­ir­vara um sam­þykki stjórna HB Granda hf. og Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur hf. sem og sam­þykkt hlut­hafa­fundar HB Granda hf., en fyr­ir­hugað er að kaup­verðið verði greitt með útgáfu 133.751.606 nýrra hluta í HB Granda hf. til Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur hf.

Þetta sam­svarar aukn­ingu hluta­fjár um 7,3 pró­sent sem myndi leiða til þess að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hf. myndi eftir við­skiptin eiga sam­tals 42,31 pró­sent heild­ar­hluta­fjár í HB Granda hf.

Unnin verður áreið­an­leika­könnun á hinum keyptu félögum og skýrsla um kaupin sam­kvæmt lögum um við­skipti tengdra aðila og verður hún kynnt hlut­höfum með fund­ar­boði. Hluta­bréfin verða afhent við greiðslu kaup­verðs­ins.

Umrædd félög hafa staðið að sölu íslenskra sjáv­ar­út­vegs­af­urða á Asíu mark­aði allt frá árinu 1989, segir í til­kynn­ingu. Sölu­fé­lögin seldu á síð­asta ári rúm­lega 38.000 tonn af sjáv­ar­af­urðum. Velta félag­anna nam sam­tals 146 millj­ónum evra. Hagnaður eftir afskriftir, skatta og fjár­magnsliði (EBITDA) nam 4,2 millj­ónum evra. Bókfært eigið fé félag­anna er 11,5 millj­ónir evra, eða sem nemur 1,6 millj­örðum króna.

Mark­aðsvirði HB Granda í dag, er um 60 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár