Ripple kaupir Algrim

Framkvæmda­stjóri Algrím fagnar samlegð félaganna.

Tækni­fyrirtækið Ripple, sem meðal annars sérhæfir sig í greiðslu­miðlun á grunni bálka­keðjutækni (blockchain), hefur keypt íslenska fyrir­tækið Algrim Consulting, sem hefur byggt upp tækni á sviði gjaldeyris­viðskipta og viðskipta með rafmyntir, með góðum árangri á undan­förnum árum.

Kaup­verðið er ekki gefið upp í tilkynningu, en Daði Ármannsson, framkvæmda­stjóri Algrim, segir í tilkynningu sem birt hefur verið á vef Ripple, að starfsemi Ripple falli vel að því sem Algrim sé að gera, og að því leyti hafi viðskiptin verið rökrétt. Bæði fyrir­tækin deili sömu sýn þegar kemur að tækni, meðal annars á sviði bálka­keðju tækni.

Að því er fram kemur í umfjöllun Northstack, sem sérhæfir sig í umfjöllun um nýsköpun og frumkvöðla­starfsemi á Íslandi, þá hyggst Ripple reka starfsstöð á Íslandi og hyggur á frekari uppbyggingu hér á landi.

Ripple hefur verið meðal fremstu fyrir­tækja á heimsvísu þegar kemur að þróun tækni sem byggir á bálka­keðju, og hefur byggt hratt upp alþjóð­lega starfsemi þar sem viðskipta­vinum er gert auðveldara fyrir með greiðslu­miðlun og rafræn viðskipti.

Uppfært og leiðrétt: Upphaf­lega komu fram rangar upplýsingar um eignar­hald félagsins. Beðist er velvirðingar á því. Um var að ræða rugling við annað félag sem ber sama nafn. Fréttin hefur verið leiðrétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár