Þriðji orkupakkinn samþykktur

Eftir miklar umræður um þriðja orku­pakk­ann var hann sam­þykktur á Alþingi Íslend­inga í dag.

Þriðji orku­pakk­inn var sam­þykkur á Alþingi í dag. 46 þing­menn greiddu atkvæði með honum og 13 á móti. Málið hefur verið sér­stak­lega fyr­ir­ferða­mikið á Alþingi en mál­inu var frestað í vor og boðað var sér­stak­lega til þings til að klára málið í lok ágúst. Andstaða Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins var áber­andi en umræður um þriðja orku­pakk­ann stóðu yfir í um 150 klukku­stundir á Alþingi og er það lengsta umræða í sögu þings­ins.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, stigu í pontu og gerðu grein fyrir atkvæði sínu en þau greiddu með þriðja orku­pakk­anum. Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, greiddi atkvæði gegn mál­inu.

Kallað var af þing­pöllum fram í fyrir Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, for­manns Við­reisnar, þegar hún gerði grein fyrir atkvæði sínu en hún og þing­menn flokks­ins greiddu atkvæði með þriðja orku­pakk­anum. Guðjón S. Brjáns­son, fyrsti vara­for­seti Alþingis, bað gesti góð­fús­lega að hafa hljóð á þing­fundi.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, greiddi einnig með orku­pakk­anum, eins og aðrir þing­menn flokks­ins, og sagði hann pakk­ann hlúa að risa­stórum samn­ingum við Evr­ópu­sam­bandið. Vegna umræð­unnar væri ekki verið að ganga gegn stjórn­ar­skrá.

Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, sagði að ekk­ert í orku­pakk­anum myndi tak­marka for­ræði íslenska rík­is­ins gagn­vart nátt­úru­auð­lindum lands­ins og greiddi hún með pakk­anum.

Ari Trausti Guð­munds­son, þing­maður Vinstri grænna, tók til máls og sagði að þau í þing­flokknum tækju mið af sér­fræði­á­litum og umræðu og að eftir sem áður væri fullt for­ræði yfir raf­orku­auð­lindum lands­ins. Allir þing­menn VG greiddu með pakk­anum.

Í upphafi skyldi endinn skoða

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, sagði að í upp­hafi skyldi end­inn skoða. Ljóst væri að áherslan væri á sam­eig­in­legan innri markað Evr­ópu­sam­bands­ins og sagði hún því nei til pakk­anum.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, greiddi jafn­framt gegn þriðja orku­pakk­anum, sem og aðrir þing­menn flokks­ins.

Telur málið standast sjórnarskrá

Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gerði grein fyrir sínu atkvæði og sagði hún þriðja orku­pakk­ann ekki hættu­legan Íslandi og taldi hún hann stand­ast stjórn­ar­skrá. Með honum væri neyt­enda­vernd tryggð.

Helgi Hrafn Gunn­laungs­son, þing­maður Pírata, benti á að ekk­ert væri sam­þykkt með pakk­anum nema inni­haldi hans. Enginn vafi væri á að málið stæð­ist stjórn­ar­skrá. Hann greiddi með þriðja orku­pakk­anum. Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, greiddi aftur á móti atkvæði gegn þriðja orku­pakk­anum.

Afhenti varaforseta undirskriftir gegn pakkanum

Full­trúar Orkunnar okkar afhentu fyrsta vara­for­seta þings­ins hátt í 17 þús­und und­ir­skriftir gegn þriðja orku­pakk­anum áður en þing­fundur hófst í morgun.

Boðað var til mót­mæla gegn þriðja orku­pakk­anum, sem hófst á sama tíma og þing­fund­ur­inn, eða klukkan 10:30 í morgun. Frosti Sig­ur­jóns­son, einn full­trúa Orkunnar okkar, sagði í sam­tali við RÚV að um 16.800 manns hefðu skrifað undir.

Aðgreina flutn­ings­kerfi frá öðrum rekstri á orku­mark­aði

Í þriðja orku­pakk­anum felst meðal ann­ars að aðgreina flutn­ings­kerfi frá öðrum rekstri á orku­mark­aði. Það þýðir að orku­fyr­ir­tækin mega ekki lengur eiga Lands­net, það fyr­ir­tæki sem ann­ast flutn­ing raf­orku og stjórnun raf­orku­kerfa á Íslandi.

Ísland fékk þó und­an­þágu frá þessu ákvæði pakk­ans og landið ræður sjálft hvernig eign­ar­haldi Lands­net eigi að vera. Í febr­úar síð­ast­liðnum var til­kynnt um að við­ræður standi yfir á milli rík­is­ins og Lands­virkj­unar um kaup á Lands­neti. Gangi þau áform eftir fer eign­ar­haldið frá fyr­ir­tæki að öllu leyti í eigu rík­is­ins til rík­is­ins. Gangi þau ekki eftir verður það áfram í höndum rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins.

Aukinn réttur neytenda til að fá upplýsingar

Í pakk­anum felst líka að inn­leidd eru ákvæði um sjálf­stæði raf­orku­eft­ir­lits. Innan Evr­ópu­sam­bands­ins verður það vald hjá eft­ir­lits­stofn­un­inni ACER. Fyrir Ísland munu þær afmörk­uðu heim­ildir sem ACER fær á orku­mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins hins vegar vera hjá Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ES­A), þar sem fjöl­margar aðrar eft­ir­lits­heim­ildir eru nú þeg­ar.

Þá felst í þriðja orku­pakk­anum aukin neyt­enda­vernd, það er ákvæði hans fela í sér auk­inn rétt neyt­enda til að fá upp­lýs­ingar og aukin rétt til að skipta um orku­sala. Þriðji orku­pakk­inn kemur einnig inn á mik­il­vægi þess að koma í veg fyrir orku­skort og inni­heldur heim­ildir til að grípa til ráð­staf­ana til að tryggja öruggt fram­boð á raf­orku fyrir almenn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár