Bandaríkjamönnum bannað að ferðast til Norður-Kóreu

Bandarískir ferðamenn verða að drífa sig ef þeir ætla að ferðast til Norður-Kóreu því brátt verður þeim bannað að fara þangað.

Norður-Kórea hleypir fáum ferðamönnum til landsins á hverju ári og þeir sem fá að heimsækja landið þurfa að uppfylla allskyns skilyrði.
Norður-Kórea hleypir fáum ferða­mönnum til lands­ins á hverju ári og þeir sem fá að heim­sækja landið þurfa að upp­fylla allskyns skil­yrði.

Tvær ferða­skrifstofur sem skipuleggja ferðir til Norður-Kóreu segja bandarísk stjórn­völd ætla að banna bandarískum ríkis­borgum að ferðast til Norður-Kóreu.

Nýverið lést bandarískur námsmaður, Otto Warmbier, eftir að hafa dvalið í norður­kóresku fangelsi í rúmt ár. Warmbier hafði verið látinn laus í júní síðastliðnum en var þá í dái sem hann vaknaði aldrei aftur úr.

Frá þessu er greint á vef frétta­stofunnar Reuters.

Ferða­skrifstofan Koryo Tours segir að bann Banda­ríkjanna verði kynnt 27. júlí og muni taka gildi 30 dögum síðar. Það var sænska sendi­ráðið í Pjongjang, höfuðborg Norður-Kóreu, sem kynnti ferða­skrif­stofunni bannið en Svíar sjá um öll mál Banda­ríkjanna í Norður-Kóreu.

„Eftir þennan 30 daga frest munu vegabréf bandarískra ríkis­borgara sem ferðast til norðursins verða ógilt af stjórn­völdum,“ segir í tilkynningu hinnar ferða­skrif­stofunnar sem skipuleggur Norður-Kóreu­ferðir, Young Pioneer. Sú ferða­skrifstofa skipulagði ferðina sem Otto Warmier var í þegar hann var fangelsaður í desember 2015.

Ekki hafa fengist svör frá bandarískum stjórn­völdum um bannið.

Nýverið ferðaðist Íslend­ingurinn Sindri Antonsson, sérfræðingur hjá Umhverfis­stofnun, til Norður-Kóreu. Hann lýsti reynslu sinni í viðtali á vef Umhverfis­stofnunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár