Þremur fréttamönnum á fréttastofu RÚV sagt upp

Rakel Þorbergs­dóttir, frétta­stjóri Ríkis­útvarpsins, stað­festir í samtali við Stundina að í dag hafi þremur starfs­mönnum á frétta­stofu verið sagt upp vegna niður­skurðar. Útvarps­stjóri hefur sagt að 600 milljónir vanti í reksturinn.

Rakel Þorbergs­dóttir, frétta­stjóri frétta­stofu Ríkis­útvarpsins, segir í samtali við Stundina að vegna stórtæks niður­skurðar hafi frétta­stofan þurft að fækka stöðu­gildum um sex og þar af leiðandi segja upp þremur frétta­mönnum. Í það heila er stöðu­gildum að fækka um níu vegna vegna niður­skurðar.

„Þó við séum að missa þrjá í þessum niður­skurði eru fleiri að fara í skert starfs­hlutfall og einhverjir að hætta. Í Kastljósi hafa áður verið tveir umsjónar­menn en nú er einn starfs­maður í Kastljósi. Við missum fólk þess vegna líka með öðrum hætti en uppsögnum,“ segir hún. Þar að auki nefnir hún að verið sé að skera niður allstaðar innan frétta­stofunnar, en með mismun­andi hætti. 

Samkvæmt Rakel er frétta­stofa RÚV að fá margfalt minna fjármagn á næsta ári en hún fékk þetta árið. „Niður­skurðurinn hjá okkur er hátt í tíu prósent. Við höfum ekki staðið frammi fyrir svona niður­skurði eða svona erfiðum ákvörðunum síðan 2013,“ segir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár