Láta á það reyna hvort veiran virði landamæri

Múrar eru nú reistir á milli Evr­ópu­þjóða til þess að reyna að hefta útbreiðslu COVID-19. Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins vill setja á ferða­bann eftir að hafa gagn­rýnt ferða­bann Banda­ríkj­anna. Þessar ákvarð­anir virð­ast póli­tískar, ekki vís­inda­legar.

Landa­mærum hefur und­an­farna daga verið lokað í gríð og erg í Evrópu, landa­mærum sem í eðli­legu árferði standa galopin á grund­velli Schengen-sam­starfs­ins, eins helsta mátt­ar­stólpa evr­ópskrar sam­vinnu.

Allt virð­ist á suðu­punkti í álf­unni, sem orðin er mið­punktur heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru sem veldur COVID-19, sýk­ingu sem vert er að ítreka að er lang­flestum að mestu mein­laus, en þó bráðsmit­andi og kemur illa við hluta fólks og þá sér í lagi við­kvæma hópa, eldra fólk og þá sem glíma við und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.

Í dag mælt­ist Ursula von der Leyen for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins til þess að stjórn­mála­leið­togar og rík­is­stjórnir ESB bönn­uðu öll „ónauð­syn­leg ferða­lög“ utan­að­kom­andi til Evrópu. Schengen-ríki, þar á meðal Ísland, voru hvött til þess að fylgja stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins hvað þetta varðar.

Leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ins munu ræða þessa til­lögu fram­kvæmda­stjórn­ar­innar á síma­fundi á morgun, en óljóst er hvað verður. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra sagði í kvöld­fréttum RÚV að málið yrði rætt í rík­is­stjórn á morgun.

[links]

Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seti, og reyndar Ursula von der Leyen sjálf, höfðu áður gagn­rýnt þau ríki sem tekið höfðu ein­hliða ákvarð­anir um lokun landamæra. Fyrst var ákvörðun Banda­ríkja­manna um ferða­bann á Schengen-ríkin mót­mælt, en af Schengen-ríkjum voru það Danir sem riðu á vaðið með að loka landa­mærum sínum fyrir erlendum rík­is­borg­urum. Pól­verjar fylgdu í kjöl­farið og svo lok­aði Noregur einnig landa­mærum sínum.

Nú hafa Þjóð­verjar einnig lokað landa­mærum sínum að hluta, en í morgun var gáttum inn til Þýska­lands frá Frakk­landi, Aust­ur­ríki, Sviss og Lúx­em­borg lokað fyrir öllu nema vöru­flutn­ingum og fólki sem ferð­ast á milli landa til vinnu. Enn hefur engu verið lokað á landa­mærum Þýska­lands við Holland og Belgíu.

Vilji þýskra stjórn­valda hafði staðið til þess að virða Schengen-sam­starfið og sam­kvæmt fregnum þýskra miðla var ákvörðun þessi tekin bæði til þess að reyna að hefta útbreiðslu veirunnar og en ekki síður til þess að koma í veg fyrir að almenn­ingur hamstr­aði nauð­synja­vörur í stór­mörk­uðum á landa­mær­unum. Slíkt hamstur var byrjað að vera til vand­ræða, sam­kvæmt frétt BBC.

Sögur af svip­uðu tagi ber­ast nú víða frá Evrópu. Tékkar og Finnar hafa lokað landa­mærum sínum og í kvöld mun Spánn taka upp landamæra­eft­ir­lit og ein­ungis hleypa spænskum rík­is­borg­urum og öðrum íbúum á Spáni heim. Rússar ætla líka að meina öllum útlend­ingum inn­göngu, sömu­leiðis Ung­verjar. Utan Evrópu bár­ust svo þau tíð­indi síð­degis frá Kanada að ríkið verði lokað öðrum en Kanada­mönnum og Banda­ríkja­mönnum.

Of seint að reisa veggi þegar veiran er orðin útbreidd

Þannig eru þessi við­brögð ríkja, að reisa veggi til að reyna að hefta útbreiðslu veirunnar, orð­inn næsta almenn. En eru þau lík­leg til þess að stöðva útbreiðslu kór­ónu­veirunar, ef hún er þegar farin að breið­ast út inn­an­lands? Vísindin, sér­fræð­ingar í lýð­heilsu­vís­indum, virð­ast segja almennt nei.

Í Danmörku sagði Søren Brostrøm, for­stjóri Sund­heds­styrel­sen, stofn­unar sem sam­svarar land­lækn­is­emb­ætt­inu hér á landi, að tekin hefði verið póli­tísk ákvörðun en ekki vís­inda­leg, þegar Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra lok­aði landa­mær­unum. Það stað­festi Frederik­sen síðar.

Anders Tegnell, sótt­varna­læknir Sví­þjóðar, skildi ekk­ert í ákvörðun dönsku stjórn­ar­innar. Hann sagði í sam­tali við Afton­bla­det strax á föstu­dags­kvöld að aðgerðin væri „algjör­lega til­gangs­laus“ og myndi engu skila við að hefta útbreiðslu veirunnar innan Dan­merkur.

Sér­fræð­ingar í far­alds­fræði sögðu það sama í við danska blaðið Politi­ken um helg­ina. Jens Lundgren, pró­fessor og smit­sjúk­dóma­sér­fræð­ingur við Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla, sagði að lokun landamæra hefði mögu­lega getað virkað, áður en veiran var byrjuð að breið­ast út í dönsku sam­fé­lagi.

„Þegar það er orðið svo mikið smit í sam­fé­lag­inu að fólk er farið að smita hvort annað, skiptir það minna máli, að það komi ein­hverjir smit­aðir að utan,“ sagði pró­fess­or­inn við Politi­ken.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir vand­aði orð sín er hann var spurður um álit sitt á slíkum aðgerðum í Silfrinu á RÚV í gær. Hann sagð­ist teljaof seint að grípa til þessa ráðs þegar far­aldur væri þegar haf­inn inn­an­lands.

„Nú ætla ég að passa mig að leggja ekki sér­stak­an dóm á það sem hinar Norður­landa­þjóð­irn­ar gera. En sótt­varna­lækn­ar hafa ekki lagt þess­ar bröttu aðgerðir til og þær lit­ast dá­lítið af póli­tík,“ sagði Þórólf­ur, sem hefur verið í reglu­legu sam­bandi við sótt­varna­lækna hinna Norð­ur­land­anna vegna stöðu mála.

Ríki ættu að prófa eins marga og þau mögulega geta

Skilaboð Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO) til ríkja heims í dag eru þau að prófa, prófa, prófa. Skima fyrir smiti hjá öllum sem mögu­lega gætu hugs­an­lega verið smit­aðir.

„Þú getur ekki barist við eld með bundið fyrir augun,“ sagði dr. Tedros Adhanom Ghebr­eyesus fram­kvæmda­stjóri WHO á blaða­manna­fundi í dag, í þeirri merk­ingu að ekki væri hægt að hefta útbreiðslu veirunnar án þess að vita hver væri smit­aður.

WHO hefur ekki mælt með því að ríki reisi veggi sín á milli, og mælir raunar frekar gegn því, sam­kvæmt leið­bein­ingum sem gefnar voru út í lok febr­úar um hömlur á ferða­lög. Stofn­unin segir tíma­bundnar víð­tækar ferða­tak­mark­anir geta verið rétt­læt­an­legar í upp­hafi far­ald­urs, til þess að gefa ríkjum smá ráð­rúm til að bregð­ast við, en ann­ars séu þær það ekki.

„Dagarnir, vik­urnar og mán­uð­irnir framundan verða þrekraun fyrir stöð­ug­lyndi okkar, á trú okkar á vís­indum og próf í sam­stöðu,“ sagði Tedros og bætti við að krísur á borð við þá sem nú ríður yfir dragi fram bæði það besta og versta í mann­kyn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár