Bandaríkin víkka út ferðabannið – Nær núna líka yfir Bretland og Írland

Donald Trump er búin að láta skima sig og nið­ur­staða um hvort hann sé sýktur af COVID-19 eða ekki mun liggja fyrir á næstu tveimur sól­ar­hringum.

Mike Pence og Donald Trump.
Mike Pence og Donald Trump. Mynd: Skjáskot

Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, greindi frá því í dag að ferða­bannið til Banda­ríkj­anna, sem tók gildi á mið­nætti, myndi frá og með mið­nætti á mánu­dag líka ná yfir Bretland og Írland. Ríkin tvö voru upp­haf­lega und­an­skilin frá bann­inu þegar Donald Trump Banda­ríkja­for­seti greindi frá því í síð­ustu viku.

Á blaða­manna­fundi sem Trump og Pence héldu í dag kom fram að allir Banda­ríkja­menn myndu geta látið skima fyrir veirunni sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum án þess að greiða fyrir það. Stefnt er að því að setja upp skimun­ar­stöðvar í stærstu dag­vöru­versl­un­ar­keðjum Banda­ríkj­anna og víðar. Trump stað­festi á fund­inum að hann hefði und­ir­geng­ist próf­anir til að kanna hvort hann væri með COVID-19 og að nið­ur­stöðu væri að vænta á næstu tveimur sól­ar­hringum. Ástæðan er sú að fjöl­miðla­full­trúi for­seta Bras­il­íu, sem var við­staddur fund hans með Trump á laug­ar­dag fyrir viku, hefur greinst með COVID-19.

Eins og er hafa 2.488 greinst smit­aðir í Banda­ríkj­unum og 51 lát­ist vegna veirunnar.

[adspot]Trump sagði á blaða­manna­fundi í gær að til greina kæmi að bæta Bret­landi á lista yfir þau Evr­ópu­lönd sem ferða­bannið til Banda­ríkj­anna sem hann lýsti í vik­unni yfir að sett yrði á. Á sama fundi lýsti hann yfir neyð­ar­á­standi í land­inu. Sú aðgerð, sem er hugsuð sem örþrifa­ráð sem hægt er að grípa til vegna nátt­úr­ham­fara, far­sótta eða stríða, veitir aðgang að um 50 millj­örðum Banda­ríkja­dala til að berj­ast við útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómn­um.

For­set­inn sagði einnig í gær að til greina kæmi að end­ur­skoða veru ann­arra ríkja sem eru sem stendur á list­an­um. Á meðal þeirra ríkja sem ferða­bann­ið, sem tekur gildi á mið­nætti, nær yfir er Ísland. Engin ákvörðun hefur enn sem komið er verið tekin um það.

Trump greindi frá því að ferða­bannið yrði sett á aðfara­nótt fimmtu­dags. ­Ferða­bann­ið, sem á að standa yfir í 30 daga, virkar þannig að öllum íbúum landa sem til­heyra Schen­gen-­svæð­inu, þar á meðal Ísland og þorri Evr­ópu, verður meinað að koma til Banda­ríkj­anna á tíma­bil­inu. Banda­rískir rík­is­borg­arar og aðrir sem eru með fasta búsetu í Banda­ríkj­unum munu fá að ferð­ast ef þeir vilja en sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem birt var í kjöl­far yfir­lýs­ingar Trump um ferða­bannið á vef heima­varn­ar­ráðu­neyt­is­ins mun þeim banda­rísku far­þegum sem dvalið hafa á Schen­gen-­svæð­inu hleypt inn í landið í gegnum valda flug­velli þar sem sér­stakar ráð­staf­anir verða gerðar til að skima fyrir smiti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár