Evrópusambandið vill loka sig af og fá Ísland með

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur mælst til þess að öll ríki ESB sem og nágranna­lönd sem standa utan ESB, þar á meðal Ísland, banni öll „ónauð­syn­leg ferða­lög“ til Evrópu í 30 daga.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Mynd: EPA

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur mælst til þess að öll ríki ESB, sem og nágranna­lönd sem standa utan ESB, banni öll „ónauð­syn­leg ferða­lög“ til Evrópu og setji á 30 daga ferða­bann sem nær í raun til alls heims­ins. Einungis Evr­ópu­búar fengju þá að ferð­ast til Evrópu, nema í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum.

Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar­innar, sagði á blaða­manna­fundi síð­degis í dag að því minni sem ferða­lög væru, því betur væri hægt að halda útbreiðslu COVID-19 í skefjum.

Samkvæmt frétt New York Times um fyr­ir­ætl­an­irnar, sem voru kynntar af þeim von der Leyen og Charles Michel for­seta leið­toga­ráðs ESB í dag, standa vonir leið­toga ESB til þess að hægt verði að sann­færa öll ríki ESB og helst öll Schengen-ríkin líka um að taka þátt í þessum aðgerðum, en í þeim myndi fel­ast blátt bann við komum ann­arra en þegna Evr­ópu­sam­bands­ríkja eða Schengen-ríkja til Evrópu, nema í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum.

Tuttugu og tvö ríki ESB eru í Schengen-sam­starf­inu, auk Íslands, Noregs, Sviss og Liectenstein. Bretland og Írland eru ekki hluti af Schengen-svæð­inu og ekki heldur Króatía, Búlgaría, Kýpur né Rúmenía.

Þegar hafa mörg ríki innan Schengen lokað landa­mærum og hefur spenna farið vax­andi á meðal aðild­ar­ríkj­anna af þessum sökum. Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seti hefur þannig gagn­rýnt ríki sem taka ein­hliða ákvarð­anir um lok­anir evr­ópskra landamæra, rétt eins og ESB hafði áður gagn­rýnt ein­hliða ákvörðun Banda­ríkj­anna um að setja ferða­bann á Schengen-ríki í síð­ustu viku.

Samkvæmt frétt Reuters gera ráða­menn ESB sér vonir um að þessi lokun ytri landamæra Evrópu verði til þess að Evr­ópu­ríki hætti að loka innri landa­mærum álf­unnar, en þetta er haft eftir ónefndum emb­ætt­is­manni ESB.

Mun Ísland loka?

Íslensk stjórn­völd hafa til þessa sagt að ekki komi til greina að loka landa­mærum Íslands til þess að reyna að hefta útbreiðslu kór­ónu­veirunnar, enda hafi okkar fær­ustu sér­fræð­ingar sagt að slíkar aðgerðir skil­uðu litlu í þeirri bar­áttu.

Utan­rík­is­ráð­herra kom sér­stak­lega á fram­færi mót­mælum til yfir­valda í Banda­ríkj­unum eftir að rík­is­stjórn Trump til­kynnti um ein­hliða ferða­bann sitt í síð­ustu viku.

Kjarninn hefur sent Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra fyr­ir­spurn um hvort sú afstaða muni mögu­lega breyt­ast, í ljósi þess­ara nýj­ustu vend­inga.

Bein ríkisaðstoð verður leyfð tímabundið

Hér að neðan má sjá ávarp von der Leyen um þær aðgerðir sem fram­kvæmda­stjórnin leggur til, en auk ferða­tak­mark­ana fjallar hún einnig um leiðir til þess að halda flæði nauð­synja­vara og ann­ars varn­ings um Evrópu í gangi og áætl­anir um að afnema, tíma­bundið, hömlur á rík­is­að­stoð við fyr­ir­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár