Segja mikilvægt að undirbúa innviði og regluverk fyrir græna orkuframleiðslu

Íslendingar ættu að nýta þau tækifæri sem felast í orku­skiptum hérlendis og undirbúa innviði og regluverk fyrir samkeppnis­hæfa fram­leiðslu á kolefnis­lausum orku­gjöfum, að mati tveggja verk­fræðinga hjá EFLU.

Mikilvægt er að innviðir og regluverk hvetji til samkeppnis­hæfrar fram­leiðslu á svokölluðu rafeldsneyti, svo að tækifærin sem felast í orku­skiptum verði nýtt. Þetta skrifa Hafsteinn Helgason og Jón Heiðar Ríkharðsson, sem báðir eru verk­fræðingar hjá EFLU, í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Höfundarnir segja að notkun á rafeldsneyti, sem er samheiti yfir alla orkugjafa sem byggðir eru á rafgreindu vetni, muni aukast töluvert á næstu árum samhliða áformum stjórn­valda um orku­skipti.

Samkvæmt þeim hefur Evrópu­sambandið áætlað að notkun á rafeldsneyti innan sambandsins muni nema 80 gíga­vöttum árið 2030, en það jafn­gildir orku­framleiðslu um 110 Kára­hnjúka­virkjana. Helmingurinn af þessari orku muni vera framleidd innan sambandsins, en þar er beislun vindorku í hafi lykillinn að þeirri fram­leiðslu.

Þurfum að flytja inn ef við framleiðum ekki

Að mati Hafsteins og Jóns Heiðars blasir það við að flytja þurfi inn erlent rafeldsneyti á næstu árum til að ná markmiðum um orku­skipti hér á landi, takist Íslendingum ekki að hefja fram­leiðslu á því með hagkvæmum hætti. Því telja þeir mikilvægt að undirbúa innviði og regluverk hérlendis til þess að greiða fyrir samkeppnis­hæfri rafeldsneytis­framleiðslu innanlands.

Höfundarnir segja að hagkvæm fram­leiðsla á rafeldsneyti, til dæmis með beislun vindorku, geti haft jákvæð áhrif á þjóðar­búið. Auk þess gæti fram­leiðsla umfram eigin notkun lækkað raforku­verð hérlendis, en með samkeppnis­hæfu orkuverði ætti að vera hægt að flytja út hreint eldsneyti til annarra landa. Við þetta bæta þeir að fram­leiðslan varði einnig sjálfbærni Íslands og orku- og matvæla­öryggi þjóðarinnar til frambúðar.

Vindorkan mögulegur valkostur

Hafsteinn og Jón Heiðar nefna beislun vind­orkunnar sem eina mögulega leið til að auka fram­leiðslu á rafeldsneyti hérlendis. Samkvæmt þeim er slík fram­leiðsla hagkvæm, auk þess sem framkvæmdir við byggingu vindorku­garða séu að mestu leyti aftur­kræfar og að nýtingin fari vel með flestum land­búnaði.

Þar að auki segja höfundarnir að hægt yrði að orku­fram­leiðslan gæti orðið töluverð með þessum hætti, en samkvæmt þeim gæti vindorku­garður á um 105 ferkílómetra svæði framleitt um það bil helming af núverandi orku­framleiðslu landsins.

Hægt er að lesa grein Hafsteins og Jóns Heiðars í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár