Samherji hótar RÚV málshöfðun og segist ekki hafa verið sakfelldur fyrir mútugreiðslur

Samherji vill afsök­un­ar­beiðni og leið­rétt­ingu frá RÚV og seg­ist ekki hafa verið dæmt né ákært fyrir mútu­greiðslur né hafi starfs­menn þess stöðu sak­born­ings. Fjöldi manns hefur verið ákærður fyrir að þiggja mútur frá Samherja í Namibíu.

Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja, þegar hann tók við starfinu.
Björgólfur Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóri Samherja, þegar hann tók við starf­inu. Mynd: Samherji

Samherji hf. hefur sent erindi til stjórnar RÚV og starf­andi útvarps­stjóra vegna fréttar sem var flutt í tíu­fréttum RÚV síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, þar sem fjallað var um þró­un­ar­að­stoð og sagt að Samherji hefið tek­ist að „afla sér kvóta í land­inu með því að múta emb­ætt­is­mönnum, eins og fjallað var um í Kveik í vetur, heima­menn nutu því ekki aðstoð­ar­innar sem veitt var.“

Í erind­inu krefst Samherji afsök­un­ar­beiðni og leið­rétt­ingar á meið­andi frétta­flutn­ingi. 
Sam­herji hefur verið í miklu brim­róti und­an­farna mán­uði eftir umfjöllun Kveiks, Stund­­ar­inn­­ar, Al Jazeera og Wikileaks um mút­u­greiðsl­­ur, meint pen­inga­þvætti og skatt­snið­­göngu Sam­herja, sem byggði að mestu á tug­­þús­undum gagna og upp­­­ljóstrun Jóhann­esar Stef­áns­­son­­ar, fyrr­ver­andi starfs­­manns Sam­herja í Namib­­íu.

Í bréfi sem lög­menn Samherja hafa sent til RÚV segir að full­yrð­ing frétta­manns­ins, Hall­gríms Ind­riða­sonar, eigi sér „enga stoð í raun­veru­leik­anum og er úr lausu lofti gripin.“ Þar segir enn fremur að mál Samherja sé frétta­stofu RÚV „und­ar­lega hug­leikið“, að í frétt­inni sé því haldið fram að starfs­menn Samherja hafi gerst sekir um alvar­lega refsi­verða hátt­semi með því að múta emb­ætt­is­mönnum í Namibíu, en þeir hafi hvorki verið sak­felldir né ákærðir fyrir slíka hátt­semi. Auk þess sé eng­inn starfs­maður Samherja með rétt­ar­stöðu sak­born­ings vegna máls­ins.

Þegar er búið að hand­­taka og ákæra Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­­­­ar­út­­­­­­­­­vegs­ráð­herra Namib­­­­­íu, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­­­­mála­ráð­herra Namib­­­­­íu, og fjóra aðra menn fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­­­­ónir namibískra doll­­­­­ara, jafn­­­­­virði 860 millj­­­­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­­­­sóttan kvóta í land­in­u.

Auk Shang­hala og Esau voru James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­­­­­­­ar­­­­­for­­­­­maður namibísku rík­­­­­is­út­­­­­­­­­gerð­­­­­ar­inn­ar Fishcor ný­ver­ið, Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­­­­son­ur Esau, Ricardo Gustavo, sam­­­­­starfs­­­­­maður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi ­fjöl­­­­­skyld­u­­­­­bönd­um, ákærð­­­­ir.

Í morgun var svo Mike Nghip­unya, for­stjóri rík­is­út­gerð­ar­innar Fischor í Namibíu, hand­tek­inn vegna máls­ins. Nghip­unya var vikið tíma­bundið úr starfi í des­em­ber síð­ast­liðnum. Hann er tíundi ein­stak­ling­ur­inn sem er hand­tek­inn í Namibíu vegna Sam­herj­a­máls­ins.

Mál Sam­herja er til rann­­sóknar í Namib­­íu, á Íslandi og í Nor­egi. Þá hafa eignir verið frystar í Angóla vegna máls­ins og þar á sér einnig stað saka­­mála­rann­­sókn.

Í bréf­inu sem lög­mað­ur­inn Magnús Ósk­ars­son, sonur Óskars Magn­ús­sonar, stjórn­ar­manns í Samherja, skrifar undir gerir Samherji alvar­legar athuga­semdir við fram­setn­ingu frétt­ar­innar sem birt­ist á fimmtu­dag. Í til­kynn­ingu um það á vef Samherja segir meðan ann­ars að þar hafi verið „við­tal við erlendan við­mæl­anda um spill­ingu en látið líta út fyrir að umræðu­efnið væri mál Samherja. Við­mæl­and­inn minnt­ist þó ekki einu orði á fyr­ir­tækið eða starf­semi þess. Á meðan voru sýndar myndir af stjórn­endum Samherja. Alvar­leg­ast sé þó að í frétt­inni hafi verið full­yrt að stjórn­endur Samherja hafi gerst sekir um alvar­lega refsi­verða hátt­semi með því að múta emb­ætt­is­mönnum í Namibíu en þeir hafi hvorki verið sak­felldir né ákærðir fyrir slíka hátt­semi. Þá sé eng­inn starfs­maður Samherja með rétt­ar­stöðu sak­born­ings vegna máls­ins.

Er þess óskað að Rík­is­út­varpið leið­rétti meið­andi ummæli í frétt­inni 13. febr­úar og biðj­ist afsök­unar. Þá áskilur Samherji sér rétt til að höfða mál vegna þess­ara ummæla og ann­arra.“

Hægt er að lesa bréf lög­manna Samherja hér.

Magnús skrif­aði grein í Morg­un­blaðið nýverið þar sem hann gagn­rýndi frétta­stofu RÚV fyrir ófag­leg vinnu­brögð, sagði frétta­menn og starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins brjóta lög um RÚV í störfum sínum og að það hefði meðal ann­ars verið gert í umfjöll­unum um meint mútu­mál Samherja í Namibíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár