Írska flugfélagið Ryanair í sterkum dönskum sviptivindum

Írska lággjalda­flugfélagið Ryanair tapaði fyrir nokkrum dögum dómsmáli fyrir dönskum vinnuréttar­dómstóli. Dómsmálið snerist um það hvort dönskum flugvalla­starfs­mönnum væri heimilt að efna til vinnu­stöðvunar í því skyni að neyða Ryanair til að fylgja dönskum lögum um kaup og kjör. Þetta er í fyrsta sinn sem Ryanair tapar slíku máli, stjórn­endur þess voru mjög ósáttir við niður­stöðuna og hyggjast fara með málið fyrir dómstól Evrópu­sambandsins.

Ryanair hóf fyrir nokkrum mánuðum áætlunar­flug milli Kaupmanna­hafnar og nokkurra borga innan Evrópu. Félagið var þó ekki alls ókunnugt dönskum aðstæðum því fyrir fimm árum byrjaði það áætlunar­flug milli Billund og vinsælla ferðamanna­staða á Ítalíu og Spáni og einnig til Ungverja­lands. Í Billund var Ryanair tekið opnum örmum, sem þýddi aukin umsvif og fleiri störf á flug­vellinum. Ryanair setti þar upp svokallaða starfsstöð, en í því felst að félagið sjálft er með tiltekna starfsemi á vellinum, en kaupir ekki alla þjónustu af öðrum.

Ein vél í eigu félagsins er með Billund sem heimahöfn, byrjar og endar sínar ferðir þar. Danska alþýðu­sambandið benti á sínum tíma á að með slíku fyrir­komulagi ætti að greiða samkvæmt dönskum kjara­samningum en í Billund vógu hags­munirnir af starfsemi Ryanir hærra og þar við sat. Starfs­fólk Ryanair í Danmörku var ekki ráðið samkvæmt dönskum kjara­samningum, það er sama fyrir­komulagið og flug­félagið hefur haft víða um lönd. Rök Ryanair hafa ætíð verið þau sömu, félagið sé írskt, skráð á Írlandi og beri þarafleiðandi engin skylda til að hlíta lögum og reglum um kaup og kjör í þeim löndum sem félagið flýgur til og hefur aðra starfsemi. Þetta hefur Ryanair tekist, þangað til núna.

Starfsstöðin Kaupmannahöfn


Síð­ast­liðið haust greindu stjórn­endur Ryanair frá því að félagið myndi í mars á þessu ári hefja áætl­un­ar­flug milli Kaup­manna­hafnar og þriggja borga í Evrópu (London, Mílanó og Varsjár) og fljót­lega myndu margir fleiri staðir bæt­ast við. Þessi tíð­indi mælt­ust almennt vel fyrir en þegar til­kynnt var að Ryanair hyggð­ist jafn­framt opna starfs­stöð á Kastrup var annað upp á ten­ingnum.

Einmanna farþegi á gangi á Kastrup-flugvelli. Mynd: EPA

Einmanna farþegi á gangi á Kastrup-flugvelli. Mynd: EPA
Einmanna far­þegi á gangi á Kastrup-flug­velli. Mynd: EPA

Þegar að því kom að áætlunar­flugið skyldi hefjast, og starfs­stöðin var opnuð greip starfs­fólk á flug­vellinum til aðgerða. Brottför í fyrsta áætlunar­fluginu tafðist um marga klukku­tíma og ljóst að dönsku launþega­samtökin ætluðu ekki að láta Ryanair ráða ferðinni. Forstjóri Ryanair var sjálfur á staðnum og kvaðst undrandi á viðbrögðum Dana, yfirleitt tæki fólk tveim höndum þeim tækifærum sem byðust til að ferðast ódýrt.

Í Danmörku gilda danskir kjara­samningar, punktur og basta, sögðu verkalýðs­leið­togarnir. Forstjóri flug­félagsins tilkynnti að þar á bæ hefðu menn ekki sagt sitt síðasta orð, félagið myndi leita réttar síns fyrir dómstólum.

Borgaryfirvöld sniðganga Ryanair


Eftir að ljóst var að flug­fé­lagið ætl­aði sér í hart til­kynnti yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar að starfs­fólk borg­ar­innar myndi ekki fljúga með Ryanair þegar það ferð­að­ist vegna vinn­unnar. Mörg önnur bæj­ar­fé­lög fylgdu í kjöl­farið og nú eru sam­tals 22 sveit­ar­fé­lög sem snið­ganga félagið. Mörg sveit­ar­fé­lög á Jótlandi hafa ekki fylgt sömu stefnu og í Jót­land­s­póst­inum var haft eftir jóskum sveit­ar­stjórn­ar­manni að slíkt stæði ekki til.

Í Danmörku gilda dönsk lög og danskir kjarasamningar


„Úrskurður danska vinnu­rétt­ar­dóm­stóls­ins fyrir nokkrum dögum var okkur mikil von­brigði og við erum mjög ósáttir við nið­ur­stöð­una,“ sagði Michael O’Leary for­stjóri Ryanair á frétta­manna­fundi í Kaup­manna­höfn þegar dóm­ur­inn hafði verið kveð­inn upp.

Danskir frétta­menn voru mjög aðgangs­harðir við forstjórann sem neitaði algjör­lega að upplýsa um kaup og kjör starfs­fólks. Nefndi tölur en var ekki tilbúinn til að leggja fram gögn máli sínu til stuðnings. Benti frétta­mönnum á að tala við starfs­fólkið en var þá minntur á að því er bannað, að viðlögðum brott­rekstri, að tala við fjölmiðla.

Hinn litríki og umdeildi forstjóri Ryanair, Michael O’Leary, á blaðamanna­fundi með dönskum frétta­mönnum. Mynd: EPA

Loka starfsstöðinni í Kaupmannahöfn og kannski líka í Billund


Á áður­nefndum frétta­manna­fundi til­kynnti Michael O’Leary for­stjóri að Ryanair myndi loka starfs­stöð sinni í Kaup­manna­höfn og gaf í skyn að kannski yrði það líka gert í Billund. Hann sagði jafn­framt að áætl­un­ar­flug félags­ins til Dan­merkur yrði eins og búið væri að til­kynna og í lok árs­ins flýgur Ryanair til að minnsta kosti þrettán áfanga­staða frá Kaup­manna­höfn og fjög­urra frá Billund.

Fordæmið


Þótt Michael O’Leary for­stjóri nefndi það ekki eru áhyggjur hans og félags­ins ekki bundnar við þennan nýja dóm vinnu­rétt­ar­dóm­stóls­ins í Kaup­manna­höfn, það hangir nefni­lega margt fleira á spýt­unni. Félagið er með um fimm­tíu starfs­stöðvar í Evrópu og þar gæti dómur danska vinnu­rétt­ar­dóm­stóls­ins því haft for­dæm­is­gildi.

Hinn litríki og umdeildi forstjóri Ryanair, Michael O’Leary, á blaðamannafundi með dönskum fréttamönnum. Mynd: EPA
Hinn lit­ríki og umdeildi for­stjóri Ryanair, Michael O’Leary, á blaða­manna­fundi með dönskum frétta­mönnum. Mynd: EPA

Þetta veit forstjórinn mætavel. Það verður því fróðlegt að fylgjst með fram­haldinu og hvernig dómstóll Evrópu­sambandsins tekur á málinu komi það til kasta hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár