Dave Grohl: Cesena, við erum á leiðinni

Dave Grohl, forsprakki rokkhljómarsveitarinnar Foo Fighters, hefur brugðist við magnaðari myndbands­kveðju sem hljóm­sveitin fékk senda frá Ítalanum Fabio Zaffagnini þar sem þúsund manna hljómsveit spilar lag sveitarinnar Learn To Fly, en með kveðjunni var Fabio að reyna að fá hljóm­sveitina heims­frægu til þess að koma og spila í heimbæ hans, Cesena í Romagna í Norður-Ítalíu. Grohl segir að Foo Fighters muni brátt koma og spila á tónleikum í Cesena.

Foo Fighters spilaði síðast í Romagna árið 1997 þegar hún fylgdi annari breið­skífu sinni eftir; The Color And Shape. Síðan hefur hljóm­sveitinni vaxið ásmeginn, og forsprakkinn Dave Grohl orðinn að einni stærstu rokk­stjörnu í heimi.

https://www.youtube.com/watch?v=JozAmXo2bDE

Zaffagnini hóaði í vini sína sem hoppuðu á vagninn. Saman héldu þau svo áheyrnar­prufur til að skipa þúsund manna hljómsveit sem mundi spila eitt lag með Foo Fighters, taka það upp á myndband og senda hljóm­sveitinni. Það var gert og útkoman var vægast sagt mögnuð.

Dave Grohl segir í myndbands­ávarpi á Facebook síðu Foo Fighters, á ítölsku, að Foo Fighters sé á leiðinni til Cesena. Hann þakkar auðmjúklega fyrir mynd­bandið magnaða, og segir að það verði stutt í að þau sjáist. Skemmtilegur endir á magnaðri tilraun eins manns til þess að fá Foo Fighters aftur í þorpið.





Ci vedi­amo a presto, Cesena.... xxx Davide

Posted by Foo Fighters on Friday, July 31, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár