Calvin Harris fékk 8,5 milljarða í laun í fyrra - Tekjuhæstur raftónlistarmanna

Skoski raftónlistar­maðurinn Calvin Harris, sem er 31 árs að aldri, var launa­hæsti raftónlistar­maðurinn í fyrra í heiminum, með 66 milljónir Bandaríkja­dala í tekjur, eða sem nemur 8,5 milljörðum króna. Frá þessu greindi Forbes í vikunni.

Harris hefur átt ótrúlegri velgengni að fagna sem tónlistar­maður, en hann fór að einbeita sér alfarið að plötusnúða­starfinu fyrir áratug þegar hann var rekinn úr starfi sínu sem lager­starfsmaður í verslun í Skotlandi. Tekjur Harris koma bæði frá því að spila á tónleikum og skemmtistöðum, og frá plötu­útgáfu.

Enginn annar raftónlistar­maður er nálægt honum í tekjum, en sá næst launa­hæsti, David Guetta, var með 37 milljónir Bandaríkjadal, jafnvirði um fimm milljarða króna, í tekjur á síðasta ári.


We're number 1 in Australia yessssss first ever Aussie #1 !!!!! pic.twitter.com/6mhTeighvq


— Calvin Harris (@CalvinHarris) August 29, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár