„Hagfræðisnilldin fæddist ekki í heilabúum snjallra manna í fundarherbergi í Valhöll“

Þingmenn gerðu vaxta­hækkun Seðla­bank­ans að umræðu­efni á Alþingi í dag. Sigmar Guð­munds­son gagn­rýndi Sjálf­stæð­is­flokk­inn m.a. fyrir að hafa trommað áfram mön­tr­una um að Ísland væri skyndi­lega orðið að ein­hverri vaxtapara­dís.

Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar.
Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar var meðal þeirra þing­manna sem ræddu hækkun stýri­vaxta Seðla­bank­ans undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Hóf hann ræðu sína á því að „spóla aðeins aftur í tím­ann, um fimm mán­uði eða svo“.

„Það er seinni partur ágúst­mán­aðar í fyrra í landi tæki­fær­anna. Stjórn­mála­flokkur birtir aug­lýs­ingu úti um allt til að ná til kjós­enda, meðal ann­ars á heima­síðu sinni og sam­fé­lags­miðlum og flettiskiltum. Aug­lýs­ingin er með stríðsletri: „Lægstu vextir í sög­unni“. Hvorki meira né minna, lægstu vextir í sög­unni. Þeir hafa verið ánægðir með sig á aug­lýs­inga­stof­unni þegar þessi texti fædd­ist því að hann er vissu­lega gríp­andi.“

Telur Sigmar að um sögu­fölsun sé að ræða að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi eignað sér vaxta­lækk­un­ar­ferlið. Hann sagði að hag­fræð­isnilldin hefði ekki fæðst í heila­búum snjallra manna í fund­ar­her­bergi í Valhöll heldur hefði hún átt sér að mestu nátt­úru­legri orsakir í veiru sem varð að heims­far­aldri.

„Engu að síður var það svo að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem stundum kennir sig við ábyrgð og efna­hags­mál, tromm­aði áfram mön­tr­una um að Ísland væri skyndi­lega orðið að ein­hverri vaxtapara­dís, lægstu vextir í sög­unni. Stýri­vextir voru þá 1 pró­sent og höfum í huga að þetta var fyrir fimm mán­uðum. Það tók okkur fimm mán­uði að fara úr stýri­vöxtum upp á 1 pró­sent og í 2,7 pró­sent og ekki er óvar­legt að ætla að vext­irnir hækki enn meira. Seðla­bank­inn er sjálf­stæð stofnun og bregst við ástand­inu með þeim tækjum og tólum sem bank­inn á. Orð mín bein­ast ekki að bank­anum heldur að ábyrgð þeirra stjórn­mála­manna sem selja almenn­ingi þá hugsun í aðdrag­anda kosn­inga að vaxta­lög­máli íslensku krón­unnar hafi end­an­lega verið kippt úr sam­bandi.

Afleið­ingin er að sjálf­sögðu sú að fólk tekur óþarfa áhættu í skuld­setn­ingu og situr uppi með hús­næð­is­lán sem hafa hækkað um tugi þús­unda um hver ein­ustu mán­aða­mót og ekki enn búið að flauta til leiksloka. Viðreisn benti aftur og aftur á þetta í kosn­inga­bar­átt­unni: Við borgum hærri vexti á Íslandi en í nágranna­lönd­unum. Það þurfti heims­far­aldur þar sem heilu sam­fé­lög­unum var lokað og allt sett í lás um allan heim til að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gæti barið sér á brjóst og aug­lýst af miklum móð: Lægstu vextir í sög­unni. Það ástand varði í fjóra mán­uði. Ísland var land vaxta­tæki­fær­anna í fjóra mán­uði,“ sagði hann.

Hinn nýi veruleiki

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar tók undir orð Sigmars og sagði að lýs­ing hans væri kjarni máls­ins. „Rík­is­stjórnin gaf óraun­hæfar vænt­ingar um það að almenn­ingur í land­inu væri staddur allt í einu í ein­hverjum nýjum veru­leika. Veru­leika sem væri svip­aður og við þekkjum í nágranna­lönd­unum. Við værum með öðrum orðum komin inn í lág­vaxtaum­hverfi. Láir ein­hver ungu fólki það sem vildi kaupa sér íbúð þó að það hafi miðað sínar ráða­gerðir við þennan veru­leika. Núna talar hins vegar Seðla­bank­inn um það að það þurfi að hækka vexti og þau hafa hækkað vexti um 2 pró­sentu­stig á mjög skömmum tíma.“

Hann benti á að spár Seðla­bank­ans sem yfir­leitt hefðu verið of var­færnar gerðu ráð fyrir 5,8 pró­sent verð­bólgu.

„Þetta er hinn nýi veru­leiki. Seðla­banka­stjóri sagði vissu­lega í morgun líka að Seðla­bank­inn bæri ekki ábyrgð á mis­skipt­ingu og hefði hana ekki í huga. Það er alveg hár­rétt. En það gera stjórn­völd sann­ar­lega. Stjórn­völd hafa nefni­lega ríku hlut­verki að gegna þegar kemur að bar­átt­unni gegn ójöfn­uði með rétt­látu skatt­kerfi, félags­legu hús­næði, stuðn­ingi við barna­fjöl­skyldur og öfl­ugar almanna­trygg­ingar. Þetta skilja rík­is­stjórnir þeirra landa sem við berum okkur saman við, hvort sem við horfum til Þýska­lands, Bret­lands, Spánar eða víðar. Þar er núna verið að hefja aðgerðir sem tíma­bundið munu létta undir með þeim sem verst munu verða fyrir þess­ari kór­ónu­veiru­krísu á kom­andi mán­uðum.

Við í Sam­fylk­ing­unni höfum ásamt fleiri flokkum lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um mót­væg­is­að­gerðir gegn þessu og við hljótum að láta í okkur heyra og krefj­ast þess að rík­is­stjórnin bregð­ist hratt við,“ sagði hann.

„Ef þetta er land tækifæranna er kannski eins gott að fara að pakka niður“

Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins fjall­aði einnig um vaxta­hækk­un­ina í ræðu sinni. „Í landi tæki­fær­anna hækk­uðu stýri­vextir um 0,75 pró­sent. Hvað þýðir það fyrir fólkið í land­inu? Jú, áfall fyrir þá sem nú þegar eru í vanda, sem nú þegar eru að ströggla, sem nú þegar hafa þurft að taka þátt í þessum heims­far­aldri með okkur, með öllu því sem til­heyrir, hækk­andi vöru­verði – allt fer hækk­andi – og brjál­æð­is­legum hús­næð­is­mark­aði sem eng­inn botnar í.“

Henni finnst hækk­unin allt of mikil. „Það mætti stíga aðeins var­færn­ara skref. Mér þætti vænt um að vita hvort hinn ágæti seðla­banka­stjóri gæti svarað þessu: Hvað vakir fyrir Seðla­banka sem heldur krón­unni niðri eins og mögu­legt er og kemur með öllum ráðum í veg fyrir að hún fái að styrkj­ast þannig að almenn­ingur og Íslend­ingar geti notið sterk­ari krónu og tek­ist á við síhækk­andi vöru­verð inn­flutn­ings?“

Inga sagði að 0,75 pró­sent hækkun stýri­vaxta Seðla­bank­ans lýsti ekki því sem hefði verið nefnt í fyrri kosn­inga­bar­áttu „land tæki­fær­anna“.

„Ef þetta er land tæki­fær­anna er kannski eins gott að fara að pakka niður eins og svo margir hafa gert. Þeir sem hafa kosið með fót­unum og reynt að koma sér eitt­hvað annað.“

Spurði hún hvort það væri virki­lega þannig að það ætti að fara að leggja það á skuld­sett heim­ili lands­ins að taka enn eina hol­skefl­una á sig. „Í landi tæki­fær­anna hlýtur það að vera algjört grund­vall­ar­skil­yrði að rík­is­stjórnin bregð­ist við með mót­væg­is­að­gerðum þannig að þeir sem eru með breyti­lega vexti og þeir sem eru að fara að taka skell­inn, þeir sem þurfa að horfa upp á tug­þús­unda hækkun á mán­uði af hús­næð­is­lánum sínum – að þeim verði ekki fleygt út á guð og gadd­inn, eins og var hér eftir efna­hags­hrunið 2008 þegar hátt í 15.000 fjöl­skyldur misstu heim­ili sín.

Ég vona bara, virðu­legi for­seti, að það sé að minnsta kosti ekki það land tæki­fær­anna sem hér var verið að boða fyrir síð­ustu kosn­ingar,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár