Stýrivextir hækkaðir um 0,75 prósentustig upp í 2,75 prósent

Seðla­bank­inn hefur hækkað stýri­vexti um tvö pró­sentu­stig frá því í maí í fyrra. Hækkunin í dag mun auka greiðslu­byrði þeirra sem eru með óverð­tryggð hús­næð­is­lán umtals­vert.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri situr í peningastefnunefnd.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri situr í pen­inga­stefnu­nefnd. Mynd: Bára Huld Beck

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað að hækka stýri­vexti bank­ans í 2,75 pró­sent í morgun. Um er að ræða hækkun á 0,75 pró­sentu­stigum frá því sem áður var og alls hafa vextir hækkað um tvö pró­sentu­stig frá því í mái í fyrra, þegar vaxta­á­kvörð­un­ar­ferli Seðla­banka Íslands hófst.

Í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar segir að sam­kvæmt nýrri þjóð­hags­spá Seðla­bank­ans sem birt er í febr­ú­ar­hefti Pen­inga­mála, sem kom út í dag var hag­vöxtur um einu pró­sentu­stigi meiri á síð­asta ári en spáð var í nóv­em­ber eða um 4,9 pró­sent. „Spáð er svip­uðum hag­vexti í ár. Störfum hefur haldið áfram að fjölga og atvinnu­leysi að minnka og er áætlað að fram­leiðsluslak­inn sem mynd­að­ist í kjöl­far COVID-19-far­sótt­ar­innar sé horf­inn. Óvissa er hins vegar enn mikil.“

Verð­bólgu­horfur hafa hins vegar versnað tölu­vert frá síð­asta fundi nefnd­ar­innar og mæld­ist verð­bólga 5,7 pró­sent í jan­úar. Und­ir­liggj­andi verð­bólga hefur einnig auk­ist og er talin vera ríf­lega fjögur pró­sent. Þá hafa verð­bólgu­vænt­ingar á suma mæli­kvarða hækkað. „Hækkun hús­næð­is­verðs vegur þungt en aðrir inn­lendir kostn­að­ar­liðir hafa einnig hækkað. Við bæt­ist hækkun alþjóð­legs olíu- og hrá­vöru­verðs. Samkvæmt spá Seðla­bank­ans eru horfur á að verð­bólga verði 5,8 pró­ent á fyrsta fjórð­ungi árs­ins og yfir 5 pró­sent fram eftir þessu ári. Gert er ráð fyrir að verð­bólga hjaðni þegar hægir á verð­hækkun hús­næðis og alþjóð­legar verð­hækk­anir fjara út en að hún verði ekki komin að mark­miði fyrr en undir lok spá­tím­ans. Pen­inga­stefnu­nefnd ítrekar að hún mun beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verð­bólga hjaðni aftur í mark­mið innan ásætt­an­legs tíma.“

Reynt að hemja hækkun á íbúðaverði

Hækkun íbúða­verðs er meg­in­drif­kraft­ur­inn i hærri verð­bólgu, sem stýri­vext­irnir eiga að reyna að berja niður. Án þess væri verð­bólgan 3,7 pró­sent en ekki 5,7 pró­sent.

Í mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um þróun hús­næð­is­mark­að­ar­ins sem birt var í morgun kemur fram að ekk­ert sé að draga úr verð­hækk­unum. Íbúða­verð heldur þvert á móti áfram að hækka. Nú mælist hækk­unin 16,6 pró­sent síð­ast­liðið ár og með­al­kaup­verð hefur hækkað um fimm millj­ónir króna á síð­ustu tveimur mán­uðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Það var 68,2 millj­ónir króna í des­em­ber 2021 en 63,2 millj­ónir króna í októ­ber sama ár. Framboð á íbúðum heldur á sama tíma áfram að drag­ast saman. Í byrjun febr­úar 2020 voru 1.031 íbúð til sölu en til sam­an­burðar voru þær nálægt fjögur þús­und í maí 2020. Íbúðum til sölu hefur því fækkað um 74 pró­sent á þeim tíma. Mestur er sam­drátt­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en þar voru ein­ungis 440 íbúðir til sölu í byrjun yfir­stand­andi mán­aðar. Fram­boðið hefur dreg­ist saman um 27 pró­sent á tveimur mán­uðum.

Framboð af ódýrum íbúðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er sér­stak­lega lítið. Fjöldi íbúða sem eru með ásett verð á bil­inu 30-40 millj­ónir króna eru nú aðeins 26 tals­ins eða um tíu pró­sent af því sem þær voru í upp­hafi maí 2020. Þá var enn eitt metið slegið í des­em­ber þegar 39,6 pró­sent allra íbúða í land­inu seld­ust yfir ásettu verði.

Eykur greiðslubyrði heimila

Í skýrslu HMS var fjallað um vænt­an­lega vaxta­hækkun, sem nú er orðin að veru­leika, en grein­ing­ar­að­ilar væntu þess að vextir myndu hækka um 0,75 pró­sentu­stig. Í skýrsl­unni segir að greiðslu­byrði óverð­tryggðra lána gæti hækkað á næst­unni vegna vaxta­breyt­inga. „Miðað við lægstu vexti á óverð­tryggðum lánum hjá bönk­unum er greiðslu­byrði lána um 42 þ.kr. fyrir hverjar 10 m.kr. sem teknar eru að láni. Hækki stýri­vextir um 0,5-0,75 pró­sentu­stig gæti greiðslu­byrðin hækkað í 44-47 þ.kr. en það fer þó eftir því að hversu miklu leiti hækkun stýri­vaxta skilar sér í hækkun vaxta á íbúða­lánum. Greiðslu­byrði óverð­tryggðra lána gæti því hækkað um allt að 18 þ.kr. á mán­uði fyrir heim­ili sem er með 40 m.kr. íbúða­lán.“

Alls var heild­ar­um­fang óverð­tryggðra íbúða­lána heim­ila hér­lendis 1.130 millj­arðar króna í lok sept­em­ber í fyrra. Alls 700 millj­arðar króna af óverð­tryggðum lánum voru með breyti­lega vexti, eða 62 pró­sent þeirra. Það þýðir að þegar Seðla­bank­inn hækkar stýri­vexti, og lána­lán­veit­endur hækka í kjöl­farið íbúða­lána­vexti í takti við það, þá annað hvort hækka afborg­anir þeirra sem eru með slík lán umtals­vert eða sá hluti þeirra sem fer í að greiða vexti frekar en að greiða niður lánið dregst saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár