Sigmundur Davíð: Alvarlegast ef á Íslandi séu stundaðar hleranir á einkasamtölum stjórnmálamanna

Formaður Mið­flokks­ins hefur birt stöðu­færslu vegna frétta sem byggja á upp­tökum á sam­tölum hans við aðra þing­menn. Hann líkir upp­tök­unum við því þegar útsend­arar blaðs­ins News of the World hler­uðu sím­töl stjórn­mála­manna og ann­ars þekkts fólks.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hefur birt stöðu­færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann fjallar um fréttir sem unnar voru upp úr upp­tökum sem náðum af sam­tölum hans, ann­arra þing­manna úr Mið­flokknum og tveggja þing­manna úr Fólki flokks­ins.

Á upp­tök­unum tala þing­menn­irnir frjáls­lega og með niðr­andi hætti um aðra þing­menn, um veit­ingu sendi­herra­stöðu auk þess sem þing­menn Mið­flokks­ins reyna að sann­færa þing­menn Flokks fólks­ins sem eru við­staddir að ganga til liðs við sig.

Þeir sem voru við­staddir þegar upp­takan var gerð, á hót­el­bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, voru Sig­mundur Davíð, Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir úr Mið­flokki og Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son úr Flokk fólks­ins.

Í stöðu­upp­færsl­unni segir Sig­mundur Davíð að í frétt­unum ægi öllu saman. „Í sumu af því sem hefur birst er vilj­andi eða óvilj­andi rang­hermt um hvað er verið að ræða og hver segir hvað. Samtöl þing­manna sem sitja saman á góðri stund og grín­ast hver við annan eru auk þess látin hljóma eins og póli­tískt plott. Samtal sem ég var sagður hafa átt við Ólaf Ísleifs­son um að hann yrði þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins var unnið upp úr sam­ræðum milli ann­arra manna um aðra hluti í léttum dúr og fór fram eftir að Ólafur var far­inn.“

Alvar­leg­ast finnst Sigmundi Davíð ef raunin sé sú að á Íslandi sé farið að stunda hler­anir á einka­sam­tölum stjórn­mála­manna. „Hafi verið gerð hljóð­upp­taka af fundi þeirra sex þing­manna sem þar eru nefndir hlýtur það að telj­ast alvar­legt mál. Hópurinn sem vísað er til sat einn úti í horni og því ekki um annað að ræða en að brot­ist hafi verið inn í síma ein­hvers þeirra sem þarna voru staddir eða beitt hler­un­ar­bún­aði.

Ég man ekki eftir dæmi um slíkt í íslenskri stjórn­mála­sögu og aðeins einu dæmi frá Bret­landi. Það var þegar útsend­arar blaðs­ins News of the World hler­uðu sím­töl stjórn­mála­manna og ann­ars þekkts fólks. Það athæfi var litið alvar­legum augum og gripið til aðgerða í sam­ræmi við það. Ég vona að sú verði raunin á Íslandi líka. Annars eru Íslensk stjórn­mál og íslenskt sam­fé­lag gjör­breytt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár