Sprotafyrirtækið Authenteq fær 135 milljóna erlenda fjármögnun

Stofn­endur stefna nú á stækkun á alþjóða­mörkuðum.

Íslenska sprota­fyrirtækið Authenteq sem hefur unnið í þróun á rafrænum skilríkjum sem hægt er að nota hvar sem er á internetinu hefur fengið fjár­festingu frá stórum erlendum fjár­festum.

Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá fyrir­tækinu.

Á meðal fjár­festana sem koma að félaginu eru Tim Draper sem á fjár­festinga­félagið Draper Associates, en hann hefur fjárfest í mörgum af þekktustu tækni­fyrirtækjum heims og var meðal fyrstu fjárfesta í Tesla, Skype, Box, Hotmail og Twitch, ásamt kínverska tækni­risanum Baidu.

Initial Capital sjóðurinn í London fjárfesti einnig i fyrr­tækinu, en eigendur þess stofnuðu Playfish tölvuleikja­fyrirtækið. Þeir hafa verið umsvifa­miklir á tölvuleikja­markaði og meðal annars frum­fjárfestar í Supercell frá Finlandi.

Einnig tóku þátt í fjármögnunni þýski fjár­festirinn Cavalry Ventures sem er í eigu stofnanda m.a. Delivery Hero og eru stað­settir í Berlín.

Samtals nam hlutafjár­aukningin 135 milljónum króna, en stofn­endur Authenteq eru Kári Þór Rúnarsson, Rúnar Karlsson og Adam H. Martin. „Við erum ótrúlega sáttir við að ná þremur fjár­festum, frá þremur stærstu borgum tækni­sprota í heiminum og hafa hundruð fyrir­tækja í sínu fjár­festinga­safni sem við höfum aðgang að. Við lögðum einnig mikla áherslu á að fá fjárfesta sem sjálfir hafa reynslu af því að stofna og reka sprota­fyrirtæki og því að stækka hratt á alþjóð­legum markaði,“ segir Kári Þór Rúnarsson framkvæmda­stjóri og stofnandi Authenteq.

Fyrir­tækið hefur hlotið styrki frá Tækni­þróunar­sjóði og Nýsköpunar­miðstöð Íslands, auk þess að taka þátt í viðskipta­hraðlinum Startup Reykjavik og var fyrir­tækið svo valið inn í Startupbootcamp í fram­haldinu.

Fjár­magnið verður nýtt til að stækka teymið og undirbúa útgáfu á lausninni fyrir alþjóð­legan markað en fjölmörg fyrirtæki hafa sýnt lausninni áhuga. „Við höfum verið svo heppin að hingað til höfum við ekki þurft að sækja út á við til að selja þar sem fyrirtæki hafa haft samband við okkur af fyrra bragði ólm í að nýta sér lausnina. Við munum þó nýta fjár­magnið í að bæta við markaðs- og sölufólki enda er núna lögð áhersla á að stækka og gera Authenteq að auðkenningar­staðli fyrir internet viðskipti og samskipti, segir Kári í frétta­tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár