Breska ríkið vill selja hlut sinn í Royal Bank of Scotland

Breska ríkið, sem yfirtók ríflega 80 prósent eignar­hlut í Royal Bank of Scotland í fjar­mála­kreppunni haustið 2008, hefur hug á því að selja hlutinn nú tæplega sjö árum eftir að það eignaðist hann. Breska ríkið lagði bankanum til 45,5 milljarða punda, eða sem nemur rúmlega níu þúsund milljörðum króna, þegar hann rambaði á barmi gjald­þrots.

Samkvæmt frétt breska ríkis­útvarpsins BBC er horft til þess að selja fyrst lítinn hluta af eignar­hlut ríkisins ef nægilegur áhugi er fyrir hendi hjá fjár­festum í Bretlandi. Vonir standa til þess að breska ríkið fái peningana sem það setti í bankann og rúmlega það til baka við söluna á hlut ríkisins.

Eign ríkisins í bankanum hefur verið umdeild ekki síst vegna þess að launa­stefna bankans hefur ekki þótt samræmast launa­stefnu hjá breska ríkinu.

Í júní síðastliðnum tilkynnti bankinn um 153 milljóna punda tap, sem mátti að mestu leyti rekja til sekta- og sáttar­greiðslna vegna lögbrota bankans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár