Skipar starfshóp sem á að vinna grænbók um stöðu og áskoranir Íslands í orkumálum

Í nýjum starfshóp umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra sitja þau Vilhjálmur Egilsson, Ari Trausti Guðmundsson og Sigríður Mogensen.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að vinna skýrslu, svo nefnda grænbók, um stöðu og áskoranir Íslands í orkumálum með vísan til áherslna og markmiða stjórn­valda í loftslags­málum.

Þetta kemur fram í vef Stjórnar­ráðsins.

Starfs­hópinn skipa Vilhjálmur Egilsson hagfræðingur, sem er formaður, Ari Trausti Guðmundsson jarð­eðlis­fræðingur og Sigríður Mogensen sviðs­stjóri hjá Samtökum iðnaðarins. Erla Sigríður Gests­dóttir og Magnús Dige Baldursson frá umhverfis- og auðlinda­ráðuneytinu munu starfa með starfs­hópnum.

„Skýrslunni er ætlað að draga fram stað­reyndir um stöðu mála á grund­velli faglegra sjónar­miða og upplýsinga um lykil­þætti á sviði orkumála og setja fram á aðgengi­legu formi til upplýsinga fyrir stjórn­völd, hagaðila og almenning.

Starfs­hópnum er með vinnu sinni meðal annars falið að gera grein fyrir orkuþörf, stöðu á flutnings­kerfi raforku og orku­markaði á Íslandi með tilliti til loftslags­markmiða stjórn­valda með orku­skiptum. Þá hefur starfs­hópurinn það hlutverk að gera grein fyrir núverandi stöðu mála varðandi framboð og eftir­spurn raforku,“ segir í tilkynningunni.

„Mikilvægt að fá yfirsýn og tölulegar upplýsingar um stöðu mála“

Fram kemur hjá ráðuneytinu að starfs­hópurinn muni hafa reglu­bundið samráð við lykil­aðila, sem séu Landvernd, Náttúru­verndar­samtök Íslands, Samorka, Skipulags­stofnun, Orku­klasinn og Grænvangur. Þá muni hópurinn einnig viðhafa reglu­bundið samráð við sérstakan samráðshóp sem skipaður sé fulltrúum ráðuneytisins, forstöðu­mönnum viðkomandi stofnanna og formanni verk­efna­stjórnar ramma­áætlunar.

„Við stöndum frammi fyrir miklum áskorunum sem varða meðal annars orku­skiptin og hvernig við náum metnaðar­fullum markmiðum stjórn­valda í loftslags­málum. Það er afar mikilvægt að fá yfirsýn og tölulegar upplýsingar um stöðu mála, meðal annars orku­þörfina, hvernig hægt er að nýta flutnings­kerfi okkar með sem bestum hætti og hvar úrbóta er þörf. Grænbókin sem starfs­hópnum hefur verið falið að vinna er mikil­vægur grunnur til að byggja á frekari ákvarðanir og aðgerðir til að ná þessum markmiðum,“ segir Guðlaugur Þór í tilkynningunni.

Starfs­hópurinn á að skila skýrslu sinni og tillögum til ráðherra fyrir 1. mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár