Fasteignamat eigna Heimavalla hækkar um 14 milljarða milli ára

Heima­vellir gera ráð fyrir að leigu­tekjur auk­ist um 1,2 millj­arð króna á næstu árum þrátt fyrir að íbúðum í eigu félags­ins muni fækka. Það telur fer­metra­verð á eignum sínum vera hóf­legt.

Heimavellir voru skráðir á markað í síðasta mánuði.
Heima­vellir voru skráðir á markað í síð­asta mán­uði. Mynd: Nasdaq Iceland

Fast­eigna­mat eigna Heima­valla, stærsta hagn­að­ar­drifna leigu­fé­lags lands­ins sem á tæp­lega tvö þús­und íbúðir, hækk­aði úr 44 millj­örðum króna vegna árs­ins 2018 í 58 millj­arða króna árið 2019, en fast­eigna­mat vegna þess árs var birt í síð­ustu viku. Hækkunin er því upp á 14 millj­arða króna.

Samkvæmt þessu hækkar fast­eigna­mat á fer­metra­verð íbúða í eigu Heima­valla úr 240 þús­und krónum á fer­metra í 318 þús­und krónur á fer­metra. Það er hætta en áætlað mark­aðsvirði hvers fer­metra var um síð­ustu ára­mót, en það var 308 þús­und krónur. Mark­aðsvirði er nær und­an­tekn­ing­ar­laust tölu­vert hærra en fast­eigna­mat þegar um er að ræða eignir á Suð­vest­ur­horni lands­ins. Mark­aðsvirði þeirra eigna sem Heima­vellir eiga og þeirra sem eru í bygg­ingu var 55,6 millj­arðar króna í lok mars síð­ast­lið­ins sam­kvæmt árs­reikn­ingi.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í kynn­ingu sem fram­kvæmda­stjóri Heima­valla hélt fyrir hlut­hafa­fund félags­ins í gær, 8. júní. Þar er bent á að gengið 1,25 krónur á hlut á bréfum Heima­valla, sem var gengið í lok dags í gær, svar­aði til fer­metra­verðs upp á 270 þús­und krónur á fer­metra, sem væri lægri en bók­fært verð á fer­metra, sem sé 289 þús­und krónur á fer­metra. Virði bréfa Heima­valla hefur lækkað síðan að árs­hluta­reikn­ingur félags­ins var birtur.

Þar sagði einnig að mik­il­væg­ustu verk­efni félags­ins á árunum 2018 til 2020 séu m.a. að auka tekjur, draga úr kostn­aði, selja óhag­kvæmar eignir og end­ur­fjár­magna lang­tíma­lán svo Heima­vellir geti fengið betri kjör og losnað undan skil­yrðum lán frá Íbúða­lána­sjóði sem hamla félag­inu frá því að greiða arð.

Leigutekjur vaxa hratt

Í kynn­ing­unni segir að Heima­vellir geri ráð fyrir því að leigu­tekjur félags­ins vaxi úr 3,1 millj­arði króna á árinu 2017 í rúm­lega 4,3 millj­arða króna á árinu 2020. Á sama tíma er þó gert ráð fyrir að fjöldi íbúða í eigu félags­ins muni drag­ast saman, fara úr 1.968 um síð­ustu ára­mót í 1.904 í lok árs 2020.

Í kynn­ing­unni er einnig birt áætlun um að með­al­staða fjár­fest­inga­eigna, sem eru hús­næði í útleigu eða bygg­ingu í eigu Heima­valla, muni hækka úr 46,8 millj­arða króna fyrir árið 2017 í 57,1 millj­arða króna árið 2020, þrátt fyrir að íbúðum í eigu félags­ins muni fækka.

Ríkið stærsti lánveitandinn

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um Heima­velli und­an­farnar vikur. Í maí var greint frá því að félagið sé að stærstum hluta fjár­magnað með lánum frá Íbúða­lána­sjóði. Íbúða­lána­sjóður og Kadeco, annað félag í eigu rík­is­ins, eru líka þeir aðilar sem hafa selt Heima­völlum flestar eign­ir.

Lánin eru að hluta til veitt í sam­ræmi við reglu­gerð Íbúða­lána­sjóðs frá árinu 2013 til sveit­ar­fé­laga, félaga og félaga­sam­taka sem ætl­aðar eru til bygg­ingar eða kaupa á leigu­í­búð­um. Mark­mið þeirrar reglu­gerðar er að „stuðla að fram­boði á leigu­í­búðum fyrir almenn­ing á við­ráð­an­legum kjöru­m“.

Til að upp­fylla skil­yrði reglu­gerð­ar­innar mega félög sem fá slík lán ekki vera rekin í hagn­að­ar­skyni né má greiða úr þeim arð. Heima­vellir voru skráðir á markað í síð­ustu viku og ætla sér í kjöl­farið að end­ur­fjár­magna lán sín hjá Íbúða­lána­sjóði, sem nema 18,6 millj­örðum króna og eru rúm­lega helm­ingur af skuldum félags­ins, svo það geti greitt út arð.

Frá því að Heima­vellir voru stofn­aðir í febr­úar 2015 hefur leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 40 pró­sent.

Íbúðalánasjóður skoðar Heimavelli

Íbúða­lána­sjóður sendi seint í maí 20 leigu­fé­lögum sem eru með lán frá sjóðnum bréf þar sem kallar er eftir upp­lýs­ingum um verð­lagn­ingu leigu­í­búða í þeirra eigu, og eftir atvikum um hækk­anir á húsa­leigu þeirra til leigu­taka. Í bréf­inu er kallað eftir svörum um hvort og þá hvernig skil­yrðum reglu­gerðar um lán sjóðs­ins séu upp­fyllt. Á meðal þeirra sem hafa fengið lán frá sjóðnum eru hagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög.

Á meðal þeirra félaga sem Íbúða­lána­sjóður hefur kallað eftir upp­lýs­ingum frá eru Heima­vellir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár