20 leigufélög krafin skýringa á hækkun á húsaleigu

Íbúða­lána­sjóður er stærsti lán­veit­andi hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga á Íslandi. Hann hefur sent 20 slíkum bréf þar sem kallað er eftir upp­lýs­ingum um miklar hækk­anir á húsa­leigu.

Íbúða­lána­sjóður sendi í síð­ustu viku 20 leigu­fé­lögum sem eru með lán frá sjóðnum bréf þar sem kallar er eftir upp­lýs­ingum um verð­lagn­ingu leigu­í­búða í þeirra eigu, og eftir atvikum um hækk­anir á húsa­leigu þeirra til leigu­taka. Í bréf­inu er kallað eftir svörum um hvort og þá hvernig skil­yrðum reglu­gerðar um lán sjóðs­ins séu upp­fyllt. Á meðal þeirra sem hafa fengið lán frá sjóðnum eru hagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög.

[links]Leigu­verð íbúð­ar­hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 96 pró­sent á átta árum. Á síð­ustu tveimur árum hefur það hækkað um 30 pró­sent. Í nýlegri könnun sem gerð var fyrir Íbúða­lána­sjóð kom fram að þriðji hver leigj­andi borgi meira en helm­ing af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu og fáir þeirra geta safnað sér sparifé vegna hás leigu­kostn­aðar. Einungis 14 pró­sent þeirra sem eru á leigu­mark­aði vilja vera þar.

[adspot]Stærstu hagn­að­ar­drifnu leigu­fé­lög lands­ins hafa varið hækk­anir sínar með þeim rökum að þau hafi ein­göngu verið að „aðlaga“ leigu­samn­inga fast­eigna­safna sem þau hafi keypt af rík­inu að mark­aðs­verði.

Lán til hagnaðardrifinna félaga sem eiga ekki að fara til slíkra

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að Heima­vellir, stærsta hagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag lands­ins sem á um tvö þús­und íbúðir, sé að stærstum hluta fjár­magnað með lánum frá Íbúða­lána­sjóði. Íbúða­lána­sjóður og Kadeco, annað félag í eigu rík­is­ins, eru líka þeir aðilar sem hafa selt Heima­völlum flestar eignir.

Lánin eru að hluta til veitt í sam­ræmi við reglu­gerð Íbúða­lána­sjóðs frá árinu 2013 til sveit­ar­fé­laga, félaga og félaga­sam­taka sem ætl­aðar eru til bygg­ingar eða kaupa á leigu­í­búðum. Markmið þeirrar reglu­gerðar er að „stuðla að fram­boði á leigu­í­búðum fyrir almenn­ing á við­ráð­an­legum kjörum“.

Til að upp­fylla skil­yrði reglu­gerð­ar­innar mega félög sem fá slík lán ekki vera rekin í hagn­að­ar­skyni né má greiða úr þeim arð. Heima­vellir voru skráðir á markað í síð­ustu viku og ætla sér í kjöl­farið að end­ur­fjár­magna lán sín hjá Íbúða­lána­sjóði, sem nema 18,6 millj­örðum króna og eru rúm­lega helm­ingur af skuldum félags­ins, svo það geti greitt út arð.

Frá því að Heima­vellir voru stofn­aðir í febr­úar 2015 hefur leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 40 pró­sent.

Eignarhlutir skipt hratt um hendur

Í svari Íbúða­lána­sjóðs við fyr­ir­spurn Kjarnans um lán til Heima­valla kom fram að um átta millj­arðar króna af lánum til félags­ins séu sam­kvæmt reglu­gerð­inni sem sam­þykkt var árið 2013. Restin, um 10,6 millj­arðar króna, séu svokölluð almenn leigu­í­búða­lán en um þær lán­veit­ingar hafi gilt mun rýmri reglur en gildi í dag. Þegar þeim hafi verið breytt með lögum hafi verið „sett sem skil­yrði að rekstur félaga sem tækju leigu­í­búða­lán væri með hags­muni leigu­taka að leið­ar­ljósi og skorður settar fyrir því með hvaða hætti heim­ilt væri að ráð­stafa hagn­aði“.

Í upp­lýs­ingum frá Íbúða­lána­sjóði sem Kjarn­anum bár­ust í dag kemur fram að vegna mik­illa hækk­ana á fast­eigna­mark­aði hafi eign­ar­hlutir í leigu­fé­lögum skipt hraðar um hendur á síð­ustu miss­erum. „Stór hagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög, sem stofnuð hafa verið af fjár­festum, hafa sópað upp minni leigu­fé­lögum á lands­byggð­inni og í kjöl­farið skráð sig á hluta­bréfa­markað eða hafa uppi slík áform. Leigu­fé­lögin hafa lýst því yfir að þau hygg­ist greiða upp lán sem sum hinna yfir­teknu félaga eru með hjá Íbúða­lána­sjóði og losna þannig undan þeim kvöðum sem lán­unum fylgja; svo sem kröfum um hag­kvæma leigu, tak­mörk­unum á greiðslu kostn­aðar til eig­enda og banni við arð­greiðslum. Greiði félögin lánin upp getur sjóð­ur­inn ekki lengur haft uppi neinar kröfur um hvernig félögin haga starf­semi sinni.“

Augljóst er að þarna m.a. átt við Heima­velli, sem skráð voru á markað í síð­ustu viku.

Ráðherra ætlar að endurskoða reglurnar

Íbúða­lána­sjóður segir fulla ástæðu til þess að end­ur­skoða þann lag­ara­mma sem leigu­fé­lög starfa eftir. Sjóð­ur­inn óskaði eftir því fyrr á þessu ári við Ásmund Einar Daðason, ráð­herra hús­næð­is­mála, að heim­ildir Íbúða­lána­sjóðs til að veita lán vegna leigu­í­búða verði end­ur­skoð­aðar þannig að þær upp­fylli betur til­gang laga um hús­næð­is­mál. „Í lög­unum er Íbúða­lána­sjóði falið að stuðla að því með lán­veit­ingum og skipu­lagi hús­næð­is­mála að lands­menn geti búið við öryggi og jafn­rétti í hús­næð­is­málum og að fjár­munum verði sér­stak­lega varið til þess að auka mögu­leika fólks til að eign­ast eða leigja hús­næði á við­ráð­an­legum kjörum. Hefur félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra boðað að lagt verði fram frum­varp á haust­þingi þar sem lána­heim­ildir sjóðs­ins verða teknar til end­ur­skoð­unar, með það fyrir augum að styrkja félags­legt hlut­verk hans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár