Smákafbátur fannst innan sænskrar lögsögu - gæti verið rússneskur

Smákafbátur, sem er tuttugu metrar á lengd og um þrír metrar á breidd, hefur fundist innan sænskrar lögsögu. Báturinn virðist ekki hafa orðið fyrir neinum sjáanlegum skemmdum en sænsk stjórn­völd rannsaka nú hvaðan hann kom og hvað hefur komið fyrir hann. Á bilinu þrír til sex geta verið í áhöfn á báti sem þessum. Frá þessu er greint í ýmsum sænskum miðlum.

Öryggis­ráðgjafinn Joakim Von Braun segir í samtali við vef Expressen að báturinn geti vel verið rússneskur. Rússnesk stjórn­völd hafa þegar neitað því að svo sé.


#Kremlin denies #Russia has lost a small submarine near Sweden, says it's probably something the Pro-Russian locals of Aland have built


— Sputnik (@Sputnik_Intl) July 27, 2015

Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu vegna málsins á vef Expressen hér að neðan.

Mögulegt er talið að um sé að ræða kafbátinn sem mikil leit fór fram að í október síðastliðnum. Þá beindust öll spjót af Rússum sem höfnuðu því alfarið. Kjarninn fjallaði ítarlega um málið, sem minnti meira á James Bond-bíómynd en raun­veruleikann, í frétta­skýringu í fyrra­haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár