Bandaríkin þrýsta enn á Úkraínu að láta Rússa fá Donbas

„Það er nokkuð sláandi að Bandaríkja­menn skuli taka afstöðu Rússa í þessu máli,“ segir embættis­maður sem hefur upplýsingar um gang viðræðna um stríðslok í Úkraínu.

Viðræður
Viðræður Selenskí er staddur í Berlín þar sem hann ræðir við full­trúa Banda­ríkja­stjórnar um hvernig koma megi á friði í Úkraínu. Mynd: KAY NIETFELD / POOL / AFP

Bandarískir samninga­menn vilja enn að Úkraína láti af stjórn sinni á austur­héruðunum Donetsk og Lúhansk sem skilyrði fyrir friðar­viðræðum við Rússland, sagði embættis­maður sem hefur upplýsingar um viðræðurnar við AFP.

Stjórn­völd í Kænugarði standa gegn kröfu Trumpstjórnarinnar um að draga herlið sitt frá héruðunum tveimur, sem saman eru þekkt sem Donbas, en Rússum hefur ekki tekist að ná þeim á sitt vald síðan þeir réðust inn í febrúar 2022.

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, „vill landsvæði,“ sagði embættis­maðurinn við AFP og bætti við að Banda­ríkin krefðust þess að Úkraína „drægi sig til baka“ frá héruðunum og að ríkis­stjórn Volodmír Selenskí neitaði því.

„Það er nokkuð sláandi að Bandaríkja­menn skuli taka afstöðu Rússa í þessu máli,“ bætti embættis­maðurinn við.

Stjórn­völd í Moskvu hafa yfirráð yfir nær öllu Lúhansk-héraði og um 80 prósentum af Donetsk-héraði, samkvæmt bandarísku hugveitunni Institute for the Study of War.

Skoðana­könnun sem Alþjóð­lega …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár