Ríkið vill ekki afhenda stefnur sjávarútvegsfyrirtækja

Nokkur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafa stefnt íslenska rík­inu og vilja háar bætur vegna tjóns sem þau telja sig hafa orðið fyrir vegna úthlut­unar á mak­ríl­kvóta sem þau fengu ekki. Rík­is­lög­maður telur sig ekki mega afhenda stefn­urnar í mál­inu.

Makrílveiðar hafa verið afar arðbærar á undanförnum árum og hart hefur verið tekist á um kvóta til að veiða tegundina.
Mak­ríl­veiðar hafa verið afar arð­bærar á und­an­förnum árum og hart hefur verið tek­ist á um kvóta til að veiða teg­und­ina. Mynd: Wikicommons

Rík­is­lög­maður hefur neitað að afhenda Kjarn­anum stefnur nokk­urra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á hendur íslenska rík­inu þar sem þau fara fram á bætur vegna fjár­tjóns sem þau telja sig hafa orðið fyrir vegna mak­ríl­kvóta sem fór ekki til þeirra.

Í rök­stuðn­ingi fyrir höfn­un­inni er því borið við að hags­munir þeirra fyr­ir­tækja sem um ræðir til að njóta tak­mark­ana á aðgengi að gögnum um einka- og fjár­hags­mál­efni sín séu æðri þeim almanna­hags­munum sem fel­ast í vit­neskju um inni­hald stefn­anna. Rík­is­lög­maður seg­ist hafa spurt lög­menn sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna hvort þau væru því sam­þykk að hann afhenti gögnin og þeir ekki verið það.

Því gæti hann ekki afhent gögnin. Kjarninn hefur kært ákvörð­un­ina til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Talið snúast um tugi milljarða

Fyrr á þessu ári var mak­ríll færður í kvóta á grund­velli veiði­reynslu þar sem afla­heim­ild­ir, eða kvót­ar, voru að mestu færðar til stór­út­gerða. Mak­ríl­kvót­inn er tal­inn vera 65 til 100 millj­arða króna virði.

Þrátt fyrir þetta ætla nokkur stór sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki í mál við íslenska ríkið vegna fjár­tjóns sem þau telja sig hafa orðið fyrir vegna úthlutar á mak­ríl­kvóta á árunum 2011 til 2014. Sam­kvæmt fréttum síð­asta sumar munu bóta­kröfur þeirra nema allt að 35 millj­örðum króna. Verði þær sam­þykktar geta útgerð­irnar því náð til baka um 55 pró­sent af því sem þær hafa greitt í veiði­gjöld á und­an­förnum árum.

Í júní 2019 var greint frá því í fjöl­miðlum að sex fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi hafi stefnt íslenska rík­inu vegna úthlut­unar á mak­ríl­kvóta á árunum 2015-2018. Þau telja sig hafa orðið fyrir fjár­tjóni vegna úthlut­unar á mak­ríl­kvóta á árunum 2011 til 2014. Frétta­blaðið greindi þá frá mati Axels Helga­son­ar, for­manns stjórnar Lands­sam­bands smá­báta­eig­andi, um að þau fyr­ir­tæki sem ætl­uðu sér að sækja sér­ bæt­ur til rík­is­ins gætu fengið um það bil 35 millj­arða króna, ynnu þau málið.

Fimm mánuðir frá fyrirspurn til svars

Kjarninn sendi í kjöl­farið fyr­ir­spurn á upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar þar sem óskað var eftir því að fá stefnur fyr­ir­tækj­anna afhentar auk þess sem beðið var um upp­lýs­ingar um hversu háar kröfur þeirra væru.

Erindið var sent til sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins sem brást ekki við því í á aðra viku. Þegar við­brögð komu fólst í þeim að áfram­senda erindið á emb­ætti rík­is­lög­manns.

Hann taldi rétt að bera það undir lög­menn fyr­ir­tækj­anna sem um ræddi hvort þeir myndu sam­þykkja að upp­lýs­ingar um málin yrðu veittar og stað­festi í kjöl­farið við Kjarnann að fyr­ir­spurnir þess efnis hefðu verið sendar á umrædd fyr­ir­tæki.

Síðan hafði ekk­ert við­bót­ar­svar feng­ist, þrátt fyrir að rúmir fimm mán­uðir séu frá því að upp­haf­leg fyr­ir­spurn var send. Þ.e. þangað til á föstu­dag, 20. des­em­ber.

Vilja ekki að að almenningur fái gögnin

Þá sendi rík­is­lög­maður svar þess efn­ist að hann teldi ekki heim­ilt að afhenda stefn­urnar. Hann hefði óskað eftir afstöðu umræddra fyr­ir­tækja gagn­vart því að fjöl­miðlar myndu fá stefn­urnar með því að beina spurn­ingum til lög­manna þeirra. „Liggur ekki fyrir sam­þykki stefn­enda um að afhenda stefn­urnar og verður að skilja afstöðu þeirra í ljósi seinni máls­liðar 9. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012 og telur emb­ættið því gögnin und­an­þegin upp­lýs­inga­rétti.“

Auk þess sagði í svar­inu að rík­is­lög­maður mæti það „óraun­hæft að rýmri aðgangur sé fyrir hendi þótt kröfu um afhend­ingu sé beint að stjórn­valdi ef um sömu gögn er að ræða. Gögnin eru því eðli sínu sam­kvæmt und­an­þegin upp­lýs­inga­rétti.“

Kjarninn hefur kært synjun rík­is­lög­manns á aðgengi að umræddum upp­lýs­ingum til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál sem hefur veitt honum fram til 10. jan­úar 2020 til að koma á fram­færi frek­ari rök­stuðn­ingi fyrir ákvörðun sinni. Auk þess hefur rík­is­lög­manni verið gert að afhenda úrskurð­ar­nefnd­inni afrit af þeim gögnum sem beðið var um og kæran lýtur að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár