Inga Sæland segist harmi slegin vegna framkomu á Akureyri

„Sú framkoma sem þar er lýst er með slíkum ólíkindum að ég er gjör­samlega miður mín,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins um fram­komnar ásakanir á hendur forystu­fólks flokksins á Akureyri. Þrjár konur hafa lýst kynferð­is­legri áreitni og óviðeigandi framkomu í sinn garð af hálfu samflokks­manna.

„Ég er vægast sagt harmi slegin eftir að hafa séð yfir­lýsinguna frá framboðs­konum Flokks fólksins á Akureyri. Sú framkoma sem þar er lýst er með slíkum ólíkindum að ég er gjör­samlega miður mín,“ skrifar Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, á Facebook. Fyrr í dag sendu þrjár konur í forystu flokksins á Akureyri frá sér yfir­lýsingu þar sem þær lýsa óviðunandi framkomu í sinn garð af hálfu annarra flokks­manna. 

Guðmundur Ingi Kristinsson, vara­formaður flokksins, birti í morgun tilkynningu þess efnis að hann hefði kallað eftir að stjórn flokksins myndi funda um málið. Ekki hefur náðst samband við Ingu né Guðmund Inga síðan sú tilkynning birtist. Nú hefur Inga hins vegar staðfest, á Facebook, að fundur hefur verið kallaður saman. 

„Ég hef formlega kallað til fundar aðal­stjórnar Flokks fólksins og munum við taka á málinu fumlaust og af þeirri festu sem við erum þekkt fyrir. Fundurinn verður í haldinn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár