Óttast aukið ofbeldi eftir klofning innan auðugustu glæpasamtaka heims

Lögreglu­yfirvöld í Japan óttast öldu ofbeldis, eftir að þúsundir glæpa­manna sem áður tilheyrðu stærsta glæpa­gengi landsins stofnuðu ný glæpa­samtök um liðna helgi. Leiðtogi nýju samtak­anna er hinn 67 ára gamli Kunio Inoue en hann var áður hátt settur í glæpa­genginu Yamaguchi-gumi.

Ný glæpa­samtök, sem kallast Kobe Yamaguchi-gumi og kjósa að notast áfram við sama kenni­merki og fyrr, telja um þrjú þúsund meðlimi. Það eru mun færri meðlimir en í Yamaguchi-gumi, samtökunum sem glæpa­mennirnir áður tilheyrðu, þar sem meðlimir eru um 23.400 talsins, eða tæplega helmingur allra einstaklinga sem tilheyra skipulögðum glæpa­samtökum í Japan. Samkvæmt frétt The Guardian um málið þá er óhlýðni meðlima gagnvart Shinobu Tsukasa, æðsta stjórn­anda Yamaguchi-gumi, ástæða klofnings innan þeirra raða.


Samkvæmt samantekt Forbes tíma­ritsins frá síðasta ári eru Yamaguchi-Gumi auðugustu glæpa­samtök heims, en auður þeirra var þá metin á um 80 milljarða dollara. Til saman­burðar er auður Sinaloa, stærsta fíkniefna­hrings Mexíkó, metin á um 3 milljarða dollara.


Japanska gengið fagnar í ár hundrað ára afmæli sínu en þau voru stofnuð árið 1915 í borginni Kobe, höfuðvígi þeirra enn þann dag í dag. Þau hafa að mest einblínt á „hefð­bundna“ starfsemi glæpa­gengja á borð við fíkniefna­smygl, okur­lána­starfsemi og verndun þriðja aðila. Á undan­förnum árum hafa samtökin þó fært út kvíarnar og stundað fjárglæpi og annars konar hvítflibba­glæpi.


Japanskir fjöl­miðlar hafa fylgst grannt með gangi mála innan glæpa­samtakanna. Lögreglan óttast að ofbeldi brjótist út milli gömlu og nýju samtak­anna, sem geti bitnað á almennum borgurum. Svipað var uppi á teningnum árið 1984, þegar upp komu deilur innan samtak­anna. Þá létust 25 manns hið minnsta á næstu þremur árum, um 70 slösuðust, þar á meðal nokkrir sem ekki tengdust skipulagðri glæpa­starfsemi, og lögreglan handtók hundruð glæpa­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár