Félag Eyþórs hagnaðist um 388,4 milljónir vegna afskriftar á láni frá Samherja

Eigið fé félags Eyþórs Arnalds fór úr því að vera nei­kvætt um 305 millj­ónir í að vera jákvætt um 83,9 millj­ónir í fyrra. Félag í eigu Samherja afskrif­aði selj­enda­lán sem veitt var vegna kaupa í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins.

Eyþór Arnalds var oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Eyþór Arnalds var odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Ramses II, félag í eigu Eyþórs Arnalds, fyrr­ver­andi odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­borg, hagn­að­ist um 388,4 millj­ónir króna í fyrra. Um var að ræða mik­inn við­snún­ing frá fyrra ári þegar félagið tap­aði 15,6 millj­ónum króna.

Hagn­að­ur­inn er nán­ast allur kom­inn til vegna þess að selj­enda­lán sem félagið Katt­ar­nef veitti af afskrifuð í fyrra, en hún stóð í 386,8 millj­ónum króna í lok árs 2020. Í árs­reikn­ingi Ramses II kemur fram að „aðrir fjár­magnsliðir“ hafi verið jákvæðir upp á tæp­lega 382 millj­ónir króna í fyrra.

Hlut­deild í hagn­aði móð­ur­fé­lags Árvakurs, Þórs­merkur, gerir það að verkum að Ramses II bók­færði 17,3 milljón króna jákvæða inn­komu.

Vegna lækk­aði skulda­staða Ramses II úr 387 millj­ónum króna í 15,8 millj­ónir króna milli ára og eig­in­fjár­staða félags­ins fór úr því að vera nei­kvætt um 305 millj­ónir króna í að vera jákvæð um 83,9 millj­ónir króna.

Lánið var upp­haf­lega veitt svo Eyþór gæti orðið stærsti eig­andi Árvakur, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins.

Þrjár útgerðir seldu hluti sína til Eyþórs

Sam­herji, Síld­ar­vinnslan og Vísir seldu sína hluti í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, árið 2017 til Eyþórs. Alls var um að ræða 26,62 pró­sent eign­ar­hlut. Stærsti bit­inn var 18,43 pró­sent hlutur sem Eyþór keypti af félagi Sam­herja, sem ber nafnið Kattanef ehf. Eyþór lagði ekk­ert út fyrir kaup­unum heldur veitti selj­and­inn honum selj­enda­lán. Stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er Samherji og hún keypti nýverið allt hlutafé í Vísi.

Lánið féll á gjald­daga árið 2020 og Katt­ar­nef hefur afskrifað það að fullu. Í árs­reikn­ingi félags Eyþórs, Ramses ehf, vegna árs­ins 2020 kom fram að gjald­­fallnar afborg­­anir félags­­ins hafi numið alls 386,8 millj­­ónum króna í árs­lok þess árs.

Í fyrra náð­ist svo sam­komu­lag á milli félags­­ins Ramses II, sem er í fullri eigu Eyþórs, og félags­­ins Katt­­ar­­nefs um að Ramses, líka í fullri eigu Eyþórs, keypti kröf­una sem Katt­­ar­­nef átti á Ramses II. Virði hennar var, líkt og áður sagði, krónur núll í bókum Katta­nefs.

Hlutur Eyþórs í Árvakri hefur rýrnað vegna ítrek­aðra hluta­fjár­inn­­spýt­inga ann­­arra hlut­hafa og Ramses II á nú 12,08 pró­sent hlut í útgáfu­­fé­lag­inu. Sá eign­­ar­hlutur var met­inn á 82,4 millj­­ónir króna í lok árs 2020 en hafði verið bók­færður á 325 millj­ónir króna árið 2017.

Mikið rekstrartap

Rekstr­ar­tap Árvak­urs á síð­asta ári var 113 millj­ónir króna. Það er lægra rekstr­ar­tap en árið áður, þegar útgáfu­fé­lagið tap­aði 210 millj­ónum króna. Í fyrra fékk Árvakur þó 81 millj­ónir króna í rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði auk þess sem félagið frest­aði greiðslu á stað­greiðslu launa starfs­­manna og trygg­inga­gjaldi í fyrra upp á alls 122 millj­­ónir króna. Um er að ræða vaxta­­laust lán úr rík­­is­­sjóði sem þarf að end­­ur­greið­­ast fyrir mitt ár 2026. Greiðslur eiga að hefj­­ast á þessu ári.

Í frétt sem birt­ist í Morg­un­­blað­inu í byrjun maí var greint frá því að hefði skilað 110 millj­­óna króna hagn­aði í fyrra. Í þeirri frétt var ekki minnst á vaxta­lausa lán­töku hjá rík­is­sjóð­i.

Í árs­reikn­ingi Árvakur sést hvernig sá hagn­aður mynd­ast, en hann er ekki til­kom­inn vegna reglu­legs rekst­urs, af honum er áfram sem áður tap.

Hlut­­deild í afkomu dótt­­ur- og hlut­­deild­­ar­­fé­laga, sem teng­ist ekki grunn­­rekstri Árvak­­urs, útskýrir þann mun sem er á end­an­­legri afkomu og rekstr­­ar­af­komu, en hún er jákvæð um 243 millj­­ónir króna. Þar skiptir mestu hlut­­deild í Lands­­prenti, sem rekur prent­smiðju sem prentar þorra þeirra prent­miðla sem gefnir eru út á Íslandi, en hún var 196 millj­­ónir króna í fyrra. Rekstr­ar­tekjur dróg­ust þó sam­an.

Hlut­­deild í afkomu dótt­­ur- og hlut­­deild­­ar­­fé­laga, sem teng­ist ekki grunn­­rekstri Árvak­­urs, útskýrir þann mun sem er á end­an­­legri afkomu og rekstr­­ar­af­komu, en hún er jákvæð um 243 millj­­ónir króna. Þar skiptir mestu hlut­­deild í Lands­­prenti, sem rekur prent­smiðju sem prentar þorra þeirra prent­miðla sem gefnir eru út á Íslandi, en hún var 196 millj­­ónir króna í fyrra. Rekstr­ar­tekjur dróg­ust þó sam­an.

Morgunblaðið hefur hrunið í lestri

Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstri Árvak­­­urs í febr­­­úar 2009 undir hatti Þór­s­­­merkur og til loka árs 2020 hefur útgáfu­­­­fé­lagið tapað yfir 2,5 millj­­­­örðum króna. Eig­enda­hóp­­­­ur­inn, sem hefur tekið ein­hverjum breyt­ingum á tíma­bil­inu, hefur nú lagt Árvakri til sam­tals tvo millj­­­­arða króna í nýtt hluta­­­­fé.

Þegar nýju eig­end­­­­­urnir tóku við rekstr­inum var Morg­un­­­­­blað­ið, flagg­­­­­skip útgáf­unn­­­­­ar, lesið af rúm­­­­­lega 40 pró­­­­­sent þjóð­­­­­ar­inn­­­­­ar. Í síð­­­­­­­­­ustu birtu mæl­ingu Gallup á lestri prent­miðla var sá lestur kom­inn niður í 16,9 pró­­­­­sent og hefur aldrei mælst lægri. Lestur blaðs­ins hjá 18-49 ára mælist 7,8 pró­­­sent.

Vefur útgáf­unn­­­­­ar, Mbl.is, var lengi vel mest lesni vefur lands­ins en síð­­­­­­­­­ustu mis­­­­s­eri hefur Vísir.is, vefur í eigu Sýn­­­­­ar, oftar mælst með fleiri not­end­­­­­ur. Mbl.is hefur þó enn vinn­ing­inn þegar kemur að fjölda flett­inga en mið­l­­arnir tveir hafa und­an­farið verið með nán­­ast sama fjölda inn­­lita á viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár