Viðskipti stöðvuð í kauphöllinni í New York

Öll verðbréfa­viðskipi í kaup­höllinni í New York, NYSE, vor stöðvuð í dag klukkan 11:32 að staðar­tíma. Í fyrstu voru ekki gefnar neinar skýringar á því hvers vegna viðskipti voru stöðvuð en samkvæmt nýjustu upplýsingum frá kaup­höllinni er um tæknileg vandamál að ræða.

Kaup­höllin í New York er stærsti markaður með hlutabréf í Banda­ríkjunum. Enn er þó hægt að eiga viðskipti með hlutabréf skráð á NYSE markaðinum annars staðar, meðal annars á verðbréfa­markaði Nasdaq.

Dagurinn í dag hefur verið fjár­festum erfiður á hlutabréfa­mörkuðum um allan heim. Í Evrópu ríkir mikil óvissa um framtíð Grikk­lands innan evru­samstarfsins og hefur ástandið, eins og áður, haft verð­myndandi upplýsingar á evrópskum hlutabréfa­markaði. Í Kína hefur hlutabréfa­verð hrunið undan­farnar vikur og lækkuðu helstu vísitölur þar í dag um allt að sjö prósent. Við bætist síðan stöðvun viðskipta í Banda­ríkjunum en frekari frétta er beðið um ástæður þess að viðskipti voru stöðvuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár