Hlutabréfakrísa í Kína: Eftir 150 prósent hækkun þá hríðfellur hlutabréfaverð

Örfáum mínútum eftir opnun hlutabréfa­markaða í Kína í dag tók verð að hríðfalla og lækkuðu helstu hlutabréfa­vísitölur markaðarins um allt að átta prósent. Á innan við tíu mínútum höfðu hlutabréf í fleiri en þúsund fyrir­tækjum lækkað um meira en tíu prósent og voru viðskipti með bréfin stöðvuð, samkvæmt reglum kínversku kaup­hallarinnar um sjálf­virka stöðvun viðskipta við verðfall. Um 1.400 fyrirtæki, sem telja ríflega helming allra fyrir­tækja á kínverska markaðinum, óskuðu eftir frestun frekari viðskipta til þess að koma í veg fyrir verðhrun á markaðs­virði sínu. Við lokun markaða höfðu vísitölur lækkað um fimm til sjö prósent.

Mikið hefur verið um að vera á kínverskum hlutabréfa­markaði undan­farnar vikur og verð verið í frjálsu falli, mest á allra síðustu dögum. Kínversk stjórn­völd hafa á síðustu vikum reynt hvað þau geta til þess að ýta undir hlutabréfa­verð, meðal annars með lækkun stýri­vaxta, reglu­breytingum sem eiga að draga úr hvata til þess að selja hlutabréf og nú síðast beinum kaupum á hluta­bréfum. Aðgerðirnar hafa dugað skammt og sölu­þrýstingur á markaðinum hefur verið gríðar­legur. Kínverskir eftirlits­aðilar segja skelfingar­ástand fjárfesta órökrétt og róa nú öllum árum að stöðug­leika á hlutabréfa­markaðinum.


Í síðasta mánuði stóð verð hluta­bréfa á markaðinum í Sjanghaí í hæstu hæðum og hafði ekki verið hærra í sjö ár. Hlutabréf höfðu hækkað um rúmlega 150 prósent á síðustu tólf mánuðum en hafa nú fallið um 30 prósent á síðustu þremur vikum. Þar af nemur lækkunin 12 prósentum á síðustu viku. Verð­lækkun upp á þrjátíu prósent jafn­gildir öllu framleiðslu­virði Bretlands á síðasta ári.


Í ljósi stærðar kínverska hlutabréfa­markaðarins og mögulegra áhrifa á aðra markaði, ekki síst í Asíu, þá hafa erlendir fjöl­miðlar haldið því fram að kínverska hlutabréfa­krísan sé jafnvel alvarlegri en gríska efnahagskrísan. Í umfjöllun The Telegraph segir að sumir vilji þegar kalla ástandið „Hið kínverska 1929“ og vísa þar til sögulegs verðfalls á hlutabréfa­mörkuðum það árs og upphaf Kreppunnar miklu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár