Andri Ólafsson tekur tímabundið við fjölmiðlasamskiptum Landspítalans

Stefán Hrafn Hagalín, deild­ar­stjóri sam­skipta­deildar Land­spít­al­ans, er á leið­inni í frí og mun Andri Ólafsson taka við sam­skiptum við fjöl­miðla tíma­bundið.

Andri Ólafsson
Andri Ólafsson Mynd: Aðsend mynd

Andri Ólafsson hefur verið ráð­inn til að ann­ast fjöl­miðla­sam­skipti Land­spít­al­ans. Vísir greinir frá.

Í frétt Vísis kemur fram að Andri hafi að und­an­förnu starfað sem aðstoð­ar­maður og upp­lýs­inga­full­trúi rekt­ors Háskóla Íslands. Hann hefur einnig starfað við fjöl­miðla og var hann sam­skipta­stjóri VÍS áður en hann hóf störf hjá Háskóla Íslands.

Anna Sigrún Bald­urs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri skrif­stofu spít­al­ans, segir í sam­tali við Vísi að um sé að ræða tíma­bundna ráðn­ingu til nokk­urra mán­aða, þar sem Stefán Hrafn Hagalín, deild­ar­stjóri sam­skipta­deildar spít­al­ans, sé á leið í frí.

Baðst afsökunar á bréfi til stjórnenda spítalans

Stefán Hrafn komst í fréttir í byrjun ágúst þar sem hann sendi tæp­lega 300 stjórn­endum Land­spít­al­ans bréf þar sem hann hvatti þá til að vísa fyr­ir­spurnum allra fjöl­miðla til sín. „Einnig er hrein­skiln­is­lega yfir­höfuð ágætis regla að svara bara alls ekki ekki beinum sím­tölum fjöl­miðla (Mogginn er 569…, RÚV er 512… osfrv, þið kunnið þetta),“ stóð í bréf­inu.

Stefán Hrafn baðst síðar afsök­unar á bréf­inu í Viku­lok­unum á Rás 1 og sagði að þetta hefði verið „afleitt“ hjá honum. Hann sagði að hann hefði skrifað tölvu­póst­inn í lok erf­iðs vinnu­dags. Þá hefði hann þurft að stytta sum­ar­frí sitt sökum ástands­ins á spít­al­anum og því hefði póst­ur­inn verið „þreytu­legur“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár