Veitir ekki upplýsingar um kostnað vegna undirbúnings lagningar sæstrengs

Lands­virkjun telur sig ekki geta veitt upp­lýs­ingar um heild­ar­kostnað vegna und­ir­bún­ings sæstrengs þar sem fyr­ir­tækið sé und­an­þegið ákvæðum upp­lýs­inga­laga og um sé að ræða upp­lýs­ingar við­skipta­legs eðlis sem ekki sé unnt að veita.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Lands­virkjun telur tor­velt að veita upp­lýs­ingar um heild­ar­kostnað vegna und­ir­bún­ings sæstrengs þar sem fyr­ir­tækið sé und­an­þegið ákvæðum upp­lýs­inga­laga og um sé að ræða upp­lýs­ingar við­skipta­legs eðlis sem ekki sé unnt að veita.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Þor­steini Sæmunds­syni, þing­manni Mið­flokks­ins, um kostnað Lands­virkj­unar vegna sæstrengs.

Þor­steinn spurði hver heild­ar­kostn­aður Lands­virkj­unar væri vegna und­ir­bún­ings undir lagn­ingu sæstrengs síð­ast­liðin tíu ár, skipt niður á ár. Óskaði hann eftir að svar­inu fylgdi jafn­framt sund­ur­lið­aður kostn­aður vegna launa starfs­manna Lands­virkj­unar, aðkeyptrar sér­fræði­þjón­ustu, ferða­kostn­aðar og risnu.

Í svari ráð­herra segir að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafi ekki upp­lýs­ingar um kostnað Lands­virkj­unar vegna und­ir­bún­ings að hugs­an­legri lagn­ingu sæstrengs og hafi því óskað eftir upp­lýs­ingum um það frá fyr­ir­tæk­inu.

Upplýsingar of viðkvæmar til þess vera gerðar opinberar

Í bréfi Lands­virkj­unar til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins kemur meðal ann­ars fram að með setn­ingu raf­orku­laga hafi farið fram heild­ar­end­ur­skoðun á lög­gjöf um vinnslu, flutn­ing, dreif­ingu og sölu raf­orku. Með setn­ingu lag­anna hafi verið komið á mark­aðs­bú­skap í við­skiptum með raf­orku þannig að vinnsla og sala á raf­orku fari nú fram á einka­rétt­ar­legum grund­velli í sam­keppn­isum­hverfi.

„Lands­virkjun starfar þannig í alþjóð­legri sam­keppni um raf­orku­sölu til mögu­legra við­skipta­vina þar sem miklir við­skipta­legir hags­munir eru í húfi. Upp­lýs­ingar um mark­aðs­setn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins til ein­stakra fyr­ir­tækja, iðn­greina eða mark­aðs­svæða og fundi því tengdu eru því að jafn­aði of við­kvæmar til þess að þær séu gerðar opin­berar,“ segir í bréfi Lands­virkj­unar.

Lítið unnið að verkefninu frá 2016

Þá kemur enn fremur fram að eitt þeirra mark­aðs­verk­efna sem Lands­virkjun hafi unnið að sé for­at­hugun á sæstreng sem myndi veita íslenskum orku­fyr­ir­tækjum aðgang að miklum fjölda af nýjum við­skipta­vinum – tug­þús­unda fyr­ir­tækja og millj­ónum ein­stak­linga. „Verk­efnið fer saman við mikið af því mark­aðs­starfi sem fer fram innan Lands­virkj­unar sem felst meðal ann­ars í grein­ingu á erlendum raf­orku­mörk­uðum og alþjóð­legu mark­aðsum­hverfi orku­freks iðn­aðar, svo og öfl­ugu kynn­ing­ar­starfi þar sem vakin er athygli á mögu­leikum orku­freks iðn­aðar á Íslandi. Grein­ingar- og mark­aðs­starf Lands­virkj­unar nýt­ist þannig ólíkum mark­aðstæki­færum fyr­ir­tæk­is­ins til fram­tíðar, við mat á alþjóð­legri sam­keppn­is­hæfni og jafn­framt nýt­ist það í sam­skiptum við núver­andi við­skipta­vini þegar samið er um stækk­anir eða end­ur­samn­inga.“

Vinna við verk­efnið að þessu sinni fór einkum fram á árunum 2010 til 2016, sam­kvæmt Lands­virkjun. Helstu tækni­legu og við­skipta­legu nið­ur­stöðum sé ítar­lega gert grein fyrir í ýmsum skýrslum sem aðgengi­legar eru á vef­síðu Lands­virkj­unar. Frá árinu 2016 hafi hins vegar lítið verið unnið að verk­efn­inu.

Í bréf­inu segir að með vísan til fram­an­greinds sé tor­velt að svara fyr­ir­spurn þing­manns­ins og gæfi það ekki rétta mynd, hvað þá að reyna að sund­ur­liða kostnað á alla þá þætti sem þing­maður óskar upp­lýs­inga um. Auk þess sem hér sé um að ræða upp­lýs­ingar við­skipta­legs eðlis sem ekki sé unnt að veita.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár