„Eitt hænufet“ — 40 ára gamalt viðtal við Arnar Jónsson sem er áttræður í dag

Arnar Jónsson einn helsti leik­ari þjóð­ar­innar er átt­ræður í dag. Af því til­efni dustaði Illugi Jök­uls­son rykið af við­tali sem hann tók við afmæl­is­barnið fyrir 42 árum og birt­ist þá í jóla­blaði Helgar-Tímans.

Arnar Jónsson 1981
Arnar Jónsson 1981 Tímamynd: Elín Ell­erts­dóttir

Arnar Jónsson býr við Óðins­götu ásamt konu sinni, Þórhildi Þor­leifs­dóttur, leik­stjóra með meiru. „Það hefur veitt mér mikið aðhald í vinn­unni að vera giftur leik­stjóra,“ segir hann. „Hún hefur tekið mér ærlegt tak öðru hverju, en ég býst við að allir leik­arar þurfi á því að halda með reglu­legu milli­bili. Þá hefur sam­veran með börn­unum ekki síður verið mér mik­ils virði: við vinnum bæði í miklum skorpum og höfum því á víxl tekið að okkur störfin hér á heim­il­inu. Ég held að það hafi hjálpað mér gíf­ur­lega — dýpkun á til­finn­inga­svið­inu, skil­urðu. Þetta hefur oft verið svaka basl en upp­skeran er ríku­leg.“

Hann er afar hlý­legur maður. Hand­takið þétt og brosið ein­lægt. Við komum okkur saman um að affara­sæl­ast sé að byrja á byrj­un­inni.

„Ég er fæddur á Akureyri [21. jan­úar 1943] og var þar allar götur þar til undir tví­tugt. Faðir minn var ætt­aður úr Eyja­firði, mamma frá Þórshöfn. Það var að mörgu leyti ákaf­lega skemmti­legt að alast upp á Akureyri á þessum tíma: ég náði til dæmis rétt í skottið á tíma­bili strákaflokk­anna sem voru alls­ráð­andi í bænum í  mörg ár. Þetta voru flokkar eins og Bóbóliðið, Tígrisklóin, Svarta höndin — skipt­ingin milli þeirra fór nátt­úr­lega fyrst og fremst eftir bæj­ar­hlutum, Inn­bæ­ingar voru út af fyrir sig, Eyr­ar­púkar sömu­leiðis og Þorparar.

Milli flokk­anna ríkti hatrömm bar­átta og steina­bog­arnir voru ekki sparaðir i þeim slag! Ég man eftir því að einu sinni var ég að koma frá ömmu minni sem bjó á Eyrinni — en ég átti heima uppi á Brekku — og þá lenti ég óvart í skot­línu tveggja flokka sem skutu hvor á annan með steina­bogum. Stein­arnir flugu umhverfis mig en ég stóð ráð­villtur og vissi ekki í hvora átt­ina [ég átti að flýja. Ég tald­ist ekki] til neins flokks. Einu sinni átti að vísu að vígja mig i Bóbóliðið — með mjög harka­legum aðferðum! — en þá varð það mér til frels­unar að ég var í bekk með yngri bróður Bóbós og hann bjarg­aði mér.“

„Punduðum á hann úr steinabogum“

— Vígslu­at­hafn­irnar hafa ekki verið neitt grín?

„Nei — það er mér óhætt að segja. Bóbóliðið hafði til dæmis aðgang að hlöðu nálægt Mennta­skól­anum og í heyið höfðu þeir grafið mikla rangala og gegnum þessi göng urðu fórn­ar­lömbin að skríða. Þá kom það fyrir að í göng­unum „gleymd­ust“ odd­hvassar hey­nálar og stundum komu [strák­arnir] niður á móti manni svo maður komst hvorki aftur á bak né áfram. Ég var einu sinni lát­inn skríða eftir þessum göngum, rak mig í járnið og lok­að­ist inni: þetta var skefli­leg reynsla!

En gullöld þess­ara flokka var sem sagt liðin á minum sokka­bandsárum. Er ég var í barna­skóla lékum við jafn­aldrar mínir okkur hins vegar mikið í ridd­ara­leikjum: hver veit nema það hafi verið fyrir áhrif frá ridd­ara­sögum forn­aldar, en ég að minnsta kosti las þær af mik­illi áfergju og hafði gaman af.

Þetta voru mjög háþró­aðir ridd­ara­leikir: við bárum öll við­eig­andi vopn, sverð, spjót, boga og örvar, lensur— og steina­boga auð­vitað — en leik­irnir fóru ekki síst fram í nýbygg­ing­unum sem þá var mikið af á Akureyri. Ein nýbygg­ingin var ekk­ert nema steypu­kassi en still­ans­arnir höfðu verið skildir eftir að innan — þetta varð okkur öfl­ugt brjóst­virki, því eina leiðin inn var upp eftir steyptum veggj­unum.

Eitt sinn var ég í setu­liði virk­is­ins og þá komust nokkrir óvin­anna inn fyrir en hvort tveggja var að þeir voru fálið­aðir og skorti skot­færí í steina­bog­ana, svo einn þeirra var sendur út aftur eftir liðs­auka. Hann var í næstum heilli brynju úr blikki og því þungur á sér, og það var yfir tún að fara. Foringi virk­is­ins sendi mig og annan strák á eftir honum — og af algeru mis­kunn­ar­leysi eltum við ves­al­ing­inn uppi, komum okkur fyrir í hæfi­legri fjar­lægð og pund­uðum á hann úr steina­bog­unum. Okkur tókst að gata blikkið! Svo ridd­ara­mennsk­unni var ekki fyrir að fara, þó þetta ættu að heita ridd­ara­leikir …“

Hans var skotinn í Grétu

— Hvað tók við, er bernsku­leikjum sleppti?

„Ég fór í Mennta­skól­ann úr lands­prófi en hætti þar í fimmta bekk, hafði þá þegar ákveðið að helga líf mitt leik­list­inni. Pabbi stúss­aði mikið í leik­hús­málum á Akureyri, var meðal ann­ars for­maður leik­fé­lags­ins um tíma, svo ég kynnt­ist þessu snemma: ég lék tölu­vert meðan ég var strákur og ung­lingur — lék meðal ann­ars Hans í Hans og Grétu — og það var greini­lega eitt­hvað sem ork­aði mjög sterkt á mig í leik­hús­inu. Og að sjálf­sögðu fannst mér ég hafa þetta gjör­sam­lega á valdi mínu — þær stundir hafa hins vegar komið síðar að ég hef efast!

Reyndar hætti ég ekki í mennta­skóla bara vegna leik­húss­ins, ég var með blóð­sjúk­dóm og þurfti að liggja á spitala hér fyrir sunnan þó nokkurn tíma svo ég missti mikið úr, en hug­ur­inn stóð alla vega til leik­húss­ins, og ég hafði hugsað mér að fá mér vinnu einn vetur og leika með­fram hjá leik­fé­lag­inu.

Þá brá svo við að ég var sendur suður til að ná í hand­rit — það var ein­hver þriller sem átti að hefja leik­árið með — og ég ætl­aði bara að stoppa nokkra daga i bænum. Þá frétti ég að það stæði fyrir dyrum inn­töku­próf í leik­list­ar­skóla Þjóð­leik­húss­ins. Ég fór ekki aftur norður.“

— Þú minnt­ist á að þú hefðir leikið sem barn. Manstu hvernig til­finn­ing það var að standa á leik­sviði í fyrsta sinn?

Arnar hugsar sig um, hann segir fátt óyf­ir­vegað. Svo segir hann blátt áfram:

„Nei, ég man það ekki. Veistu, ég held að krakkar geri sér ekki svo mikla grein fyrir þessum hlutum. Þau standa í und­ir­bún­ingi með fjölda fólks, þetta er mikið vesin, margar æfingar og margt að gera — ég veit ekki hvort þau skilja mun­inn þó það séu komin ljós, bún­ingar og áhorf­endur. Þegar ég lék í Hans og Grétu var ég pínu­lítið skot­inn í Grétu og það held ég hafi skipt mig eins miklu máli og sýn­ingin sjálf. Ég var ell­efu eða tólf og fannst ég vera mjög full­orð­inn.”

„Ég verð að halda mér vakandi …“

— Þegar þú síðan útskrif­ast úr leik­list­ar­skóla …

,,Þá fór ég bara á kaf í vinnu. Fyrsta árið var ég laus­ráð­inn hér og hvar, síðan var ég nokkur ár fast­ráð­inn í Iðnó.“

Hann þagnar and­ar­tak.

„Þetta fyrsta ár mitt var engu lagi líkt, það sá ég eftir á. Ætli ég hafi ekki leikið á 230 sýn­ingum, af svona 270 mögu­legum, oft tók ég þátt í átta til níu sýn­ingum á viku. Einhvern sunnu­dag­inn átti ég að leika rak­ar­ann i Kar­dimommu­bænum í Þjóð­leik­hús­inu, en þá var farið að síga á seinni hluta vetrar, og ég að verða dauð­upp­gef­inn. Og átti ekki að koma strax inn á sviðið og beið því í bún­ings­her­berg­inu. Ég man að ég sat stjarfur við speg­il­inn, starði á sjálfan mig, og taut­aði: Nú verður þú að halda þér vak­andi, nú talar þú bara við sjálfan þig og þá held­urðu þér vak­andi.

Svo man ég ekki meira. Und­ir­eins var ég kom­inn af stað í hinum villt­ustu draumum en þá kemur sviðs­stjór­inn æðandi inn i klef­ann og hrópar: Drengur! Hvað ertu að hugsa? Þú átt að vera kom­inn inn á svið fyrir löngu!

Og ég þýt af stað og inn á svið, snar­rugl­aður í koll­inum, og áhorf­endur skelli­hlæja. Ég fór að líta í kringum mig og tók þá eftir að ég hafði gleymt öllum mínum leik­munum — greiðu, sápu­froðu og svo fram­vegis. Ég stökk aftur út af svið­inu, náði í það sem mig vant­aði, og enn hlógu áhorf­endur.

Síðan rúll­aði sýn­ingin ein­hvern veg­inn í gegn en eftir á er mér sagt hvað hefði kætt áhorf­endur svona. Þetta voru tvær eða þrjár mín­útur sem var beðið eftir mér, ræn­ingj­arnir þrír voru þá á svið­inu og þeir þurftu að spinna upp úr sér texta til að brúa bilið. Þeir reynd­ust hafa af nógu að taka meðan þeir biðu eftir rak­ar­anum: það stóð nefni­lega yfir rak­ara­verk­fall í Reykja­vík!“

Stórhættulegt álag

Meðan Arnar sagði þessa sögu hefur hann, eins og ósjálfrátt, leikið öll hlut­verkin af stakri snilld. Nú verður hann alvar­legur aftur.

„Þetta var svona dæmi af álag­inu þennan vetur. Eftir á er ég sann­færður um að þetta var góð reynsla, en jafn­framt stór­hættu­leg. Við aðstæður eins og þessar er mikil hætta á að leik­ari fari að fúska, end­ur­taka sig: að hann glati mögu­leik­anum á að kom­ast að kjarn­anum í sér.

Er ég nú of hátíð­legur? En ég á við þá nekt sem leik­ara er nauð­syn­leg ef hlut­verkið á að vera satt. Eftir nokkur ár á galeið­unni — og þá á ég ekki við leik­hús­lífið almennt, heldur svona vinnu­á­lag — þá fannst mér ég vera kom­inn út í hreina vit­leysu. Það er þá, 1968, sem ég, og ýmsir fleiri, byrjum með Leiksmiðj­una.

Hug­myndin með Leiksmiðj­unni var að mynda sam­stígan hóp sem gæti unnið saman að því að þróa nýja hluti, mynda eins­konar ens­emble. Sjáðu til. Ef þú vinnur í stofnun, þá eru þar góðir leik­arar, góð aðstaða og þar fram eftir göt­unum og þar eru oft gerðir góðir hlutir. Það vill hins vegar vanta ein­beit­ing­una, mark­vissa þróun að ákveðnu marki, og þetta hlýtur að leiða til þess að list­rænt gildi minnkar. Maður verður leiður. Og hvað ger­ist þá? Maður brýst út, fer annað, myndar hópa af fólki sem vill það sama og getur unnið saman að list­rænum mark­miðum hóps­ins — hver sem þau eru.

Þarna eru sem sé öll skil­yrði fyrir hendi til að gera góða hluti. En lög­málið er strangt, maður verður að standa sig, því ella er sjopp­unni lokað, maður hefur skamman tíma og enga yfir­bygg­ingu, verður að gera allt sjálfur — ekki ein­ungis það list­ræna — maður verður að fara að selja, reka fyr­ir­tæki, vinna fjórtán átján tutt­ugu tíma á sól­ar­hring, heim­il­is­lífið er í hassi, maður sjálfur í rúst og hor­ast niður, en samt— samt tekst manni kannski að mjakast eitt hænu­fet fram á veg­inn. Og byrjar svo upp á nýtt. Það mætti líta á allan feril okkar Þór­hildar sem til­raun i þessa átt.”

„Finna okkar eigin stíl, eigin ryþma”

— Segðu mér nánar af Leiksmiðj­unni.

„Já, Leik­smiðjan,“ segir Arnar og brosir, „það var ekk­ert lítið, sem hún ætl­aði sér og þau voru ekki spöruð, stóru orðin. Það átti hvorki meira né minna en end­ur­skapa leik­list i land­inu!

Gætum að því hvernig ástandið var þá í leik­hús­málum hér. Það hafði gengið yfir bylgja nokk­urs konar útlend­inga­dek­urs: það voru sett upp verk eftir útlenda höf­unda sem höfðu kannski litla höfðun hér á landi — íslenskir höf­undar voru nán­ast rétt­dræpir — það voru fluttir inn útlendir leik­stjórar, útlendir leik­tjalda­teikn­arar og svo fram­vegis. Við vildum færa frum­kvæðið inn í landið, finna okkar eigin stíl, okkar eigin ryþma. Þá voru að koma fram höf­undar eins og Oddur Björns­son og Magnús Jónsson en ann­ars var Eyvindur Erlends­son — nýkom­inn frá námi í Moskvu — pott­ur­inn og pannan i hug­mynda­fræði og fram­setn­ingu.

Við vildum líka forð­ast mis­tökin sem gerð höfðu verið hjá [leik­fé­lag­inu] Grímu [upp úr 1960], þar sem þeir sem nenntu og já: þeir sem fengu ekki annað, komu saman til að vinna að ein­stökum verk­efnum en mynd­uðu ekki sam­stæðan hóp. Hjá Leiksmiðj­unni var í fyrsta sinn gerð merki­leg til­raun: við ætl­uðum að vinna saman í tvö ár ótrufluð, reyna að sjá fyrir okkur sjálf, vinna ekki ann­ars staðar — við ætl­uðum að reyna eftir fremsta megni að halda þetta út.

Það tókst að vísu ekki. Þó er ég viss um að þessar hug­sjónir okkar skil­uðu sér í auk­inni ein­beit­ingu og eftir á finnst mér þarna hafa verið unnið athygl­is­vert starf. Vit­an­lega var það mikið reið­ar­slag er við urðum að hætta, og hvert okkar var lengi að sleikja sín sár, en við sáum að trú­lega var þetta hægt. Og alla vega blund­aði það í okkur að þetta þyrfti að gera.“

Frísir kalla, eða Frískir kallar

— Hvaða verk var Leik­smiðjan með?

„Við settum þrjú verk á svið, þó við störf­uðum ekki heilan vetur. Eitt þeirra var reyndar aldrei sýnt hér í Reykja­vfk — það var Litli prins­inn í leik­gerð Magnúsar Jóns­sonar, ein­falt, fal­legt og skemmti­legt verk. Við vorum þá á leik­ferð um landið og héldum að það væri ofsa­lega snið­ugt að vera með tvö verk í gangi i einu, þá myndu allir þyrp­ast á sýn­ingar hjá okkur, en eins og ein­hver okkar sagði: Það er ekki hægt að aug­lýsa Ford og Chevrolet í sömu aug­lýs­ing­unni. Á miðju Norð­ur­landi urðum við að hætta með Litla prins­inn.“

— Hvað var hitt verkið?

,,Það var Galdra-Loftur, settur upp á dálítið nýstár­legan hátt. Um svipað leyti var leik­ritið sett upp hér fyrir sunnan, svo fólk fékk þarna sam­an­burð.“

— Á hvern hátt var ykkar Galdra-Loftur nýstár­legur?

„Ja, við reyndum að kom­ast nær honum en venjan er, færa hann þannig nær fólki. Jafn­framt að pota dálítið í þessa Fástísku Mefistó-ímynd sem Galdra-Loftur er oft­ast sveip­aður í. Við gáfum gaurnum lausan taum­inn! Sjáðu til — Loftur er skóla­strákur á Hólum. Honum finnst þetta [galdra­stöff] spenn­andi, það er fjör í þessu, en svo ræður hann ekki við öfl sem hafa búið í honum sjálfum, og í umhverf­inu. Hann er sleg­inn flatur.“

Framhald fyrir neðan mynd­ina.

— Þriðja verkið [sem Leik­smiðjan setti upp]?

Nú brosir Arnar:

„Það var hið fræga Frísir kalla, eða Frískir kallar, eins og það var einu sinni kallað í aug­lýs­ingu i Morg­un­blað­inu. Uppi­stöð­una i text­anum sömdu Niels Oskars­son og Eyvindur en ann­ars varð verkið til í þróun alls leik­hðps­ins. Við fylgdum vissu prógrammi: vorum búin að semja leik­rit upp úr sögu, Litli prins­inn, vorum líka búin að taka klass­ískt íslenskt verk, Galdra-Loft, og nú vildum við leita í okkar þjóð­lega grunn: fórum í þjóð­dansa, gömul kvæði og þess háttar — vildum finna Íslend­ing­inn djúpt í okkur. Frísir kalla …“ og Arnar syngur lagstúf.

„Hvað heitir hann aftur, lögreglustjórinn?“

„Meg­in­uppi­staðan í þessu verki gerð­ist í hléi,“ segir Arnar svo. „Ramminn er leik­hópur, eitt­hvað í lík­ingu við okkur sjálf, alla vega er hóp­ur­inn nýbú­inn að setja upp Galdra-Loft. Þú athugar hvenær þetta er sett upp: 1968, það er atvinnu­leysi, fólks­flótti til Ástralíu og kjör kröpp. Þessi leik­hópur er að æfa The Wish eftir Jóhann Sig­ur­jóns­son, á ensku, og ætlar síðan að fara í leik­ferð um Ástralíu — virki­lega meika það!! Það er agent frá Ástralíu í bænum og allir tala um að fara og bjóða honum verkið, ég meina: af hverju ekki, til hvers að hanga hér?“

Arnar er aftur far­inn að setja upp leik­rit, eins manns sýn­ingu.

„En það gengur ekki nógu vel að æfa. Það eru próf­aðar ótal stíl­teg­undir — Brecht, nýja sænska línan, Shakespe­are, en ein­hvem veg­inn smellur þetta ekki saman. Að lokum gefst leik­stjór­inn upp og sendir alla í kaffi. Og eins og alltaf í leik­húsi þegar engin sköpun á sér stað, þá brýst energían út í kaffi­tímunum — þó allir séu eins og draugur upp úr öðrum draug á svið­inu eru menn hinir kát­ustu i kaff­inu.

Í þessum kaffi­tíma leikur hóp­ur­inn leik sem hann kallar Klafa­kots­leik, og bygg­ist upp á gömlu kvæði sem heitir Skipskoma. Leik­ur­inn hófst á því að bónd­inn á bænum ... Hvað heitir hann nú aftur, lög­reglu­stjór­inn í Reykja­vik? Sigurjón Sig­urðs­son? Alla vega hét bónd­inn því sama nafni og vinnu­mað­ur­inn hans líka ...

Nú, þeir sitja á rekum sinum úti á túni og eru að dreifa skít. Skíta­hrúg­urnar lágu við fætur þeirra, búnar til úr lík­ömum leik­ar­anna, sem kast­ast fram og aftur þegar karl­arnir moka. Þessir leik­arar mynda einnig nátt­úru­stemmn­ingu: suða eins og randa­fl­ugur, tísta eins og lóan ….“

Arnar leikur sér að því að suða eins og randa­fluga og tísta eins og lóa!

Konan Huppa og kýrin Sigurrós ...

„Svo kemur Finnur undir Felli fullur úr kaup­stað og dettur í drullu­haug­inn, þá segir bóndi að skepin munu vera komin, og þeir fara karl­arnir í kaup­stað­ar­ferð. Í kaup­staðnum eru þeir fylltir og það er hlegið að þeim, og þegar þeir snúa heim á leið eru þeir draug­fullir og vit­lausir. Þeir ætla til Eldórado en kom­ast í kast við álfa. Svo lenda þeir í ýmsum fleiri vand­ræðum, týna öllu sem þeir komu með úr kaup­stað og vinnu­mað­ur­inn kúkar á sig. Heima á bænum tekur á móti þeim konan Huppa — kýrin í fjós­inu heitir aftur á móti Sigurrós! — ásamt nið­ur­setn­ingnum, aum­ingj­anum og hund­inum.

Þá eru þeir félagar orðnir svo ógeðs­legir að hund­ur­inn kúg­ast út um öll tún! Að lokum endar þetta með því að vinnu­mað­ur­inn ákveður að fara suður í Frísi, það er sagt að Frísir borgi með gulli, til hvers að hokra hér yfir kart­öflum sem spretta hvort sem er aldrei upp úr jörð­inni? Dóttir bónd­ans ætlar með honum. Þetta er auð­vitað um erlend áhrif, um her­inn og þjóð­leg verð­mæti.“

Nú bætir Arnar við ísmeygi­legur:

„Það ganga sögur um að Frísir kaupi fólk, til að búa til úr því hakk! En nú nennir leik­hóp­ur­inn þessu ekki lengur og fær sér bara vín­ar­brauð með kaff­inu. Þegar kaffi­tím­inn er búinn og fólkið gengur aftur inn i sal­inn sér það sér til mik­illar undr­unar að leik­stjór­inn stendur uppi á borði og er eitt­hvað að bjástra við að koma löngum trefli í járn­krók í loft­inu — hann ætlar að hengja sig.

Fólkið reynir að telja hann af þessu, leik­ritið sé nú ekki alvont og það sé ekki ástæða til að grípa til þess­ara ráða, og eftir miklar for­tölur fellst leik­stjór­inn á að lík­lega sé þetta ekki tíma­bært. Leik­hóp­ur­inn reynir síðan að herða sig upp, hver segir við annan að nú skellum við okkur til Ástralíu, drífum okkur, skellum okkur ... Það hverfa allir á burt til að ljúka ein­hverjum erindum af, en ljósamað­ur­inn og annar verða eftir.

Þá bregður svo við að leik­hóp­ur­inn fer að tín­ast inn á sviðið aftur. Fyrstur kemur sjar­mör­inn í hópnum — mik­ill leik­ari að eigin áliti þó hann væri alltaf að stagl­ast á að hann vildi miklu heldur vera á sjónum — og hann seg­ist vera að leita að hatt­inum sínum. Nátt­úr­lega er hann með hatt­inn á höfð­inu svo ekki dugar sú afsökun lengi. Þannig koma allir til baka áður en lýkur — undir alls konar yfir­skyni —og þá er leiknum lokið. Og mórall­inn eitt­hvað á þessa leið: hvort það borgi sig ekki [þrátt fyrir allt] að verða eftir og ströggla.“

„Elsku hjartans krítíkerarnir“

— Hvernig var þessu leik­riti tekið?

,,Ja, miðað við hvað það var nýstár­legt tel ég að því hafi verið tekið fremur vel. Elsku hjart­ans krítíker­arnir“ — og nú brosir hann smeðju­lega — „hjálp­uðu auð­vitað mjög mikið upp á sak­irnar, eins og þeir eru vanir. Ég segi ekki að sýn­ingar hafi orðið mjög margar, og því síður að við höfum alltaf leikið fyrir fullu húsi, en samt finnst mér að við höfum náð nokkrum árangri. Skoðanir voru auð­vitað mjög skiptar en eftir á að hyggja þykir mér umfjöll­unin um leik­ritið ekki hafa verið í réttu sam­hengi við það sem við vorum að reyna að gera.

Að sjálf­sögðu voru krítíker­arnir — þessar elskur! — þar fremstir í flokki. Leik­rit­inu var ein­fald­lega slátrað. Slátrað. Það sem var eft­ir­tekt­ar­verð­ast var að þeir réð­ust á það fyrst og fremst fyrir að vera ekki nógu góður bók­mennta­texti, minna var spurt um þá leik­hús­til­raun sem við vorum að gera.

Við vissum vel að Frísir kalla var kannski ekki björgu­legur bók­mennta­texti, en það var heldur ekki ætl­unin. Krítíker­arnir skiptu sér ekk­ert af því. Það er til mik­illa vansa þegar gagn­rýnendur sýna annað eins áhuga­leysi á þvi sem er verið að gera i leik­húsi, annan eins skiln­ings­skort, og í þetta skipti. En dæmin eru því miður alltof mörg.“

Arnari er nú nokkuð niðri fyrir:

„Tökum til dæmis foragt flestra krítíkera á leik­urum. Leikarar eru upp til hópa heimskir, þeir eru mónómanar, hugsa ekki um annað en sjálfa sig, exibi­sjónistar vit­an­lega — þeir eru svo vesæld­ar­legir að það tekur því varla að eyða á þá nokkru púðri.“

— Gætir þú spyrt alla leik­ara saman og lýst þeim i nokkrum orðum?

„Auðvitað ekki! Þeir eru jafn mis­jafnir og þeir eru margir. Þó er kannski eitt sem skilur þá frá flestum öðrum stéttum. Í starfi sínu fást leik­arar við sífellda sjálfs­skoðun, þeir takast á við hugs­anir og til­finn­ingar, og til þess að ná árangri verða þeir að sund­ur­greina þessi fyr­ir­bæri skýrar en flestir aðrir. Ég held, mér finnst að fyrir vikið fáum við tals­verða útrás í starf­inu. Útrás sem annað fólk fær yfir­leitt ekki.

Leikarar eru því oftast­nær opn­ari og ein­læg­ari en gengur og ger­ist, ekki eins mikið á verði, og þetta kann að koma út sem visst naí­vítet — en er líka túlkað sem til­gerð og fleðu­læti. Nátt­ur­lega getur verið um það að ræða — líkt og hjá öllum mann­eskjum — en oft­ast er raunin hrein­lega sú að leik­arar eru opn­ari í við­móti en aðrir.“

 „Er mikið eftir af viðtalinu?”

— Eigum við þá að víkja að Alþýðu­leik­hús­inu?

„Já, eftir að Leik­smiðjan datt upp fyrir tók reyndar við tíma­bil fyrir norðan, þar sem við vorum í mörg, mörg ár, og urðum meðal ann­ars þeirrar gæfu aðnjót­andi að kynn­ast náið ein­hverjum besta manni sem orðið hefur á vegi okkar — það er Magnús heit­inn Jónsson, sem þá var leik­hús­stjóri fyr­ir­norðan.

En þarna þroskað­ist maður auð­vitað, skoð­an­irnar þró­uð­ust, og mann fór að langa til að prófa nýja hluti. Þegar það atvik­að­ist svo þannig að við sögðum upp hjá Leik­fé­lagi Akur­eyrar þrjú í einu — við Þór­hildur og Þráinn Karlsson — þá ákváðum við að gera eina til­raun enn. Það var Alþýðu­leik­húsið.“

— Hver var hug­mynda­fræði þessa fyrsta Alþýðu­leik­húss? Af hverju hét það til að mynda Alþýðu­leik­hús?

„Þegar að nafn­gift­inni kom voru uppi ýmsar til­lögur, þetta var fjórtán manna hópur og ekki nærri allt leik­hús­fólk. Sjáðu til, leik­hús­inu var aldrei ætlað að [viðra] skoð­anir [okkar eða verða] mál­pípa stjórn­mála­flokks, en okkur lang­aði samt að taka fyrir — ef okkur ent­ist aldur og heilsa! — mál­efni sem tengd­ust veru­leika dags­ins í dag, fjalla um þau á máli leik­húss­ins. Því eins og við vitum er veru­leiki sviðs­ins allur annar en veru­leiki lífs­ins. Með því að kalla þetta Alþýðu­leik­hús vildum við lýsa yfir sam­stöðu með …“

Arnar hugsar sig um.

„Það er erfitt að for­múlera þetta. Ef ég segði verka­fólki yrði það mis­skilið. Fólki er of almennt. En ég get sagt að við vildum skoða sjón­ar­mið — já, alþýð­unnar …“

Börn Arnars og Þór­hildar eru komin á vett­vang og heimta athygli föður sins. Hann stekkur af stað að sinna þeim og það verður smá­hlé á við­tal­inu. Eitt barn­anna kemur í dyra­gætt­ina, lítur mig sýni­lega horn­auga.

,,Er mikið eftir af við­tal­inu?“

— Nei, ég fer að verða búinn.

„Gott!“ segir barnið og hverfur alls­hugar fegið á braut. Þegar Arnar kemur aftur er hann með yngstu dóttur sína í fang­inu, hún maular kex­köku meðan við tölum saman.

Verður lambið sett á, eða leitt til slátrunar?

— Hvernig gekk ykkur í Alþýðu­leik­hús­inu að fara eftir þeim hug­mynda­fræði­legu reglum sem þið höfðuð sett ykkur?

„Ég held ég verði að láta aðra dæma um það.“

— En síðan breyt­ist starf­semi Alþýðu­leik­húss­ins.

„Já. Við höfum verið með Krumma­gull og Skolla­leik á sífelldum þvæl­ingi um landið og út til Norð­ur­land­anna og úthaldið varð að verða búið. 1978 stóðum við frammi fyrir því að við Þór­hildur vildum flytja suður, Kristín Ólafs­dóttir og Þráinn töldu sig ekki geta tekið þátt í næstu sýn­ingum ef af þeim yrði. Því urðum við ann­að­hvort að leggja leik­húsið niður eða freista þess að halda starf­inu áfram hér fyrir sunnan.

Ég var sjálfur mikið í því að kanna þá val­kosti sem við höfðum og leiðin sem á end­anum var farin var lík­lega sú eina sem mögu­legt var að fara. Það var að breikka hóp­inn, taka inn fólk sem þá streymdi út úr leik­list­ar­skól­unum, og treysta einnig á reynd­ara fólk sem gæti hlaupið undir bagga í ein­stökum verk­efnum.

Okkur var full­ljóst að með þessu breytti Alþýðu­leik­húsið í raun og veru um eðli, það færð­ist á áhuga­grund­völl­inn, og þótt starf­semin hafi verið mjög kröftug næstu árin setti leik­húsið óhjá­kvæmi­lega ofan, bæði list­rænt og hug­mynda­lega.

Það var ekki lengur með fólk sem ein­beitti sér bara að því, heldur urðu leik­ar­arnir og aðrir starfs­menn að hlaupa í þetta með öðru, og list­rænt séð voru leik­ar­arnir flestir á sama báti — það er að segja byrj­endur sem skorti bæði sjálfs­traust og reynslu til að fram­kvæma það sem Alþýðu­leik­húsið sótt­ist eftir. En fyr­ir­tækið lifir og víst er að þar hafa margir öðl­ast dýr­mæta reynslu sem á eftir að koma að góðu gagni.

Nú síð­ast­liðið vor var starf­sem­inni breytt á nýjan leik þannig að mynd­aðir voru tveir fastir hópar sem vinna aðskildir að sér­stökum verk­efnum — jafn­framt var fengið inn fólk sem hafði meiri reynslu en meiri­hluti með­lima Alþýðu­leik­húss­ins. Enn er ekki séð hvernig þetta gengur: hvort lambið verður sett á eða hvort það verður leitt til slátr­unar.“

Í átt til upphafsins

—Eftir að þú komst frá Akureyri varstu í þrjá vetur hjá Þjóð­leik­hús­inu, og einmitt á þeim tíma sem gagn­rýni fór mjög vax­andi á það. Talað var um stein­gelt stofn­ana­leik­hús og annað í þeim dúr. Fannst þér þetta rétt­mæt gagn­rýni?

„Sko!“ Síðan hugsar Arnar sig lengi um. „Það voru gerðir ýmsir góðir hlutir í Þjóð­leik­hús­inu þann tíma sem ég var þar — ég nefni til dæmis Stund­ar­frið sem óhætt er að segja að hafi aukið hróður leik­húss­ins —svo það er langt í frá að þar sé allt í lama­sessi og kalda­koli. Hitt dylst engum að mörgu er ábóta­vant og um það eru allir sam­mála, starfs­menn og stjórn­endur.

Það þarf, held ég fyrst og fremst að breyta reglu­gerð­inni um Þjóð­leik­hús, það verður að færa list­ræna ábyrgð inn í húsið. Þetta er alltaf stoppað af af pólitikusum. Svo málið er alls ekki svo ein­falt að Þjóð­leik­húsið sem stofnun sé óalandi og óferj­andi, síður en svo. Það á sér nú stað heil­mikil gerjun meðal starfs­fólks­ins og það er leitun að þeim sem ekki vill breyt­ingar, svo leik­húsið geti staðið undir nafni, og lagt metnað sinn í að skapa kúnst og þróa. Ég á von á því að þessi gerjun leiði til breyt­inga sem geti gefið af sér góða hluti.“

— Þú hættir hjá Þjóð­leik­hús­inu síð­ast­liðið vor …

,,Ég er í árs launa­lausu leyfi.“

— Jæja, en fórstu í það leyfi til að ein­beita þér að Alþýðu­leik­hús­inu eða vegna þess að þú varst óánægður með starfið í Þjóð­leik­hús­inu?

„Ætli það sé ekki sitt lítið af hvoru? Sjáðu til, það stóð fáum það nær en mér að koma til liðs við Alþýðu­leik­húsið er það þurfti á því að halda.“

— Und­an­farið hafa heyrst raddir sem gagn­rýna svo­kall­aða „farsapólitik“ Alþýðu­leik­húss­ins. Er það sann­gjörn gagn­rýni?

,,Að vissu leyti á hún rétt á sér, já, en að öðru leyti ekki. Veru­leik­inn er strangur, til að lifa þarf bæði pen­inga og áhorf­endur. Og áhorf­endur hefur okkur ekki skort. Það er núorðið stór hópur sem metur Alþýðu­leik­húsið mik­ils, er kannski ekki jafn hrif­inn af öllu sem þar er gert, en heldur tryggð við það engu að síður.

Ég held að flestir skilji að að sumu leyti er kannski óhjá­kvæmi­legt að setja upp fremur „létt“ verk, en um með­vit­aða „farsapólitfk" er þó alls ekki að ræða. Í lang­flestum til­vikum er um að ræða hópa sem hefur langað til að vinna að sér­stökum verk­efnum, Og við verðum að athuga það að á þessum fáu árum hafa margir og ólíkir hópar starfað undir merkjum Alþýðu­leik­húss­ins. Eins og ég minnt­ist á hefur nú verið gerð breyt­ing í átt til upp­hafs­ins, fastra hópa, og hvernig það fer er ekki gott að segja. Hópurinn sem ég er í hefur þegar frum­sýnt tvö, þrjú verk­efni en það er fyrst með næsta verk­efni sem allur hóp­ur­inn kemur saman ásamt þeim leik­stjóra sem verður með okkur til vors — en það er Þór­hildur. Það væri kannski frekar í vor sem við ættum að tala saman um þetta.“

— Ertu bjart­sýnn?

„Ég verð að vera bjart­sýnn — ég myndi heldur ekki segja þér neitt annað!“

Arnar hlær.

„En í alvöru — þá þætti mér hrapa­legt ef menn­ing­ar­fyr­ir­bæri eins og Alþýðu­leik­húsið logn­að­ist út af. Við höfum önnur svipuð fyr­ir­bæri, Íslensku óper­una, Íslenska dans­flokk­inn sem hefur lagt á sig feyki­lega óeig­in­gjarnt starf, og það má ekki ger­ast að þetta detti upp fyrir vegna skamm­sýni þeirra sem skammta okkur styrk­inn. Það er vilji hjá fólki að halda Alþýðu­leik­hús­inu gang­andi en það dugar ekki til — við spörum af öllum lífs og sálar kröftum, vinnum óguð­lega langan vinnu­dag og göngum í öll störf sjálf en það er ekki nóg. Við verðum að fá ein­hverja aðstoð.“

„Ekki leikari?!“

— Að eins ein spurn­ing að lokum, um þig sjálfan. Ef þú værir ekki leik­ari, hvað gæt­irðu þá ímyndað þér að þú værir að fást við?

Arnar rekur upp stór augu, segir for­viða:

„Ekki leik­ari? Veistu — ég hef aldrei leitt hug­ann að því!“

Sem ég bíð eftir leigu­bil úti á gang­stétt­inni er Þór­hildur Þor­leifs­dóttir að koma heim til sín. Þá stendur Arnar Jónsson í glugg­anum og lætur börnin veifa móður sinni.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár