Sunna Ósk Logadóttir ráðin til Kjarnans

Marg­verð­launaður og þraut­reyndur blaða­maður hefur störf á Kjarnanum.

Sunna Ósk Logadóttir.
Sunna Ósk Loga­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Sunna Ósk Loga­dóttir hefur verið ráðin til starfa á ritstjórn Kjarnans. Hún hefur þegar hafið störf.

Sunna Ósk hefur unnið við blaða­mennsku í yfir tuttugu ár. Hún hóf störf sem blaða­maður á Morgun­blaðinu árið 1999, var frétta­stjóri á blaðinu á árunum 2008-2012 og frétta­stjóri á mbl.is til ársins 2016.

Síðustu ár hefur Sunna Ósk, sem er land­fræðingur að mennt, m.a. einbeitt sér að skrifum um umhverfismál. Hún hefur þrívegis hlotið Blaðamanna­verðlaun Íslands. Fyrst árið 2005 fyrir ítarlega og greinar­góða umfjöllun um rekstur og starfsemi Land­spítala – háskóla­sjúkrahúss í kjölfar sameiningar. Næst árið 2015 fyrir áhrifa­mikla umfjöllun um heimsókn sína til Líbanon þar sem hún ræddi við sýrlenska flótta­menn og starfs­menn flóttamanna­búða til að kynna sér aðstæður þeirra flótta­manna sem veitt hafði verið hæli á Íslandi. Síðast fékk hún blaðamanna­verðlaun 2017 fyrir umfjöllun sína Mátt­ur­inn eða dýrð­in, þar sem hún fjallaði um tog­streitu nýt­ing­ar og nátt­úru­vernd­ar, m.a. virkj­un­ar­áform á Vest­fjörðum og áhrif þeirra á stað­bundið sam­fé­lag og um­hverfi.

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, segir að ráðning Sunnu Óskar sýni í verki þann metnað sem Kjarninn hefur fyrir því að vaxa áfram og verða leiðandi afl í íslenskum fjöl­miðlum. „Kjarninn hefur markað sér þá sérstöðu að leggja áherslu á gæði og dýpt í umfjöllun þar sem áherslan er á að upplýsa almenning. Það er því mikið fagnaðar­efni að fá jafn reynslu­mikinn liðsauka og Sunnu Ósk til liðs við okkur, sem hefur fyrir löngu sýnt að hún er á meðal okkar allra færustu blaða­manna.“

Kjarn­inn rekur frétta­vef, gefur út dag­­legan morg­un­­póst og heldur úti hlað­varps­­þjón­­ustu. Þá gefur Kjarn­inn út Vís­bend­ingu, viku­­rit um við­­skipti, efna­hags­­mál og nýsköp­un, og ensk frétta­bréf.

Rit­stjórn­ar­stefna Kjarn­ans er að leggja áherslu á gæði og dýpt í umfjöllunum sín­um. Að upp­lýsa almenn­ing í stað þess að ein­blína á að skapa vef­um­ferð. Þar er lögð áhersla á umfjöllun um alþjóða­mál, inn­lenda þjóð­mála­um­ræðu, við­skipti, efna­hags­mál, stjórn­mál og loft­lags- og umhverf­is­mál.

Lyk­ill­inn að því að gera þetta kleift er Kjarna­sam­fé­lag­ið, þar sem ein­stak­lingar styrkja Kjarn­ann með mán­að­ar­legu fram­lagi. Hægt er að gerast styrktar­aðili hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár