Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkur aldrei mælst með minna fylgi

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hefur aldrei mælst jafn lít­ill og nú. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur tapað mestu fylgi allra flokka það sem af er kjör­tíma­bili og mun­ur­inn á Mið­flokki og Sjálf­stæð­is­flokki hefur aldrei verið minni. Sam­fylk­ingin er áfram sem áður langstærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt könn­unum.

Ný ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undir forsæti Bjarna Benediktssonar tók við völdum fyrr í þessum mánuði. Breytingarnar á stjórninni hafa ekki skilað flokkunum neinum meðbyr.
Ný rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar tók við völdum fyrr í þessum mán­uði. Breyt­ing­arnar á stjórn­inni hafa ekki skilað flokk­unum neinum með­byr. Mynd: Golli

Vinstri græn mæl­ast nú með 4,4 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýjasta þjóð­ar­púlsi Gallup sem greint var frá á RÚV í kvöld. Það er minnsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins og myndi ekki duga til að ná inn þing­manni ef kosið yrði í dag. Frá því að Gallup mældi síð­ast fylgi flokka hefur Katrín Jak­obs­dóttir, sem verið hafði for­maður flokks­ins frá 2013, sagt af sér því emb­ætti og hætt sem for­sæt­is­ráð­herra til að fara í for­seta­fram­boð. Í kjöl­far þeirrar ákvörð­unar fór fylgi Vinstri grænna niður um 1,2 pró­sentu­stig.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist líka með sitt lægsta fylgi frá upp­hafi, eða 18,0 pró­sent. Flokk­ur­inn, sem hefur lengst af verið stærsti flokkur íslenskra stjórn­mála, hefur nú mælst með um og yfir 18 pró­sent fylgi fjóra mán­uði í röð og ekki mælst með mest fylgi allra flokka síðan i des­em­ber 2022. 

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur tapað mestu fylgi allra stjórn­ar­flokk­anna á kjör­tíma­bil­inu, alls 8,5 pró­sentu­stigum, og mælist nú með 8,8 pró­sent fylgi. Hann hefur ekki mælst með tveggja stafa fylgi í næstum eitt ár og hefur verið með minna fylgi en Mið­flokk­ur­inn, sem fyrr­ver­andi for­maður Fram­sóknar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son stofn­aði eftir að hafa tapað for­manns­slag gegn Sigurði Inga Jóhanns­syni, síðan í júlí í fyrra. Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er nú 31,2 pró­sent sem er við það minnsta sem þeir hafa nokkru sinni mælst með frá því að þeir tóku við völdum á Íslandi síðla árs 2017. 

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina er nú kom­inn niður í 30 pró­sent og lækkar um þrjú pró­sentu­stig milli mán­aða. Það er minnsti stuðn­ingur sem mælst hefur við rík­is­stjórn síðan í maí 2012, fyrir næstum tólf árum síðan. Stuðn­ing­ur­inn er minni en við síð­ustu þrjár rík­is­stjórnir á undan þess­ari þegar þær fóru frá völdum. 

Miðflokkurinn færist nær Sjálfstæðisflokki

Mið­flokk­ur­inn er nokkuð stöð­ugur í könn­unum Gallup um þessar mundir og mælist með 12,8 pró­sent fylgi. Það skilar honum í þriðja sæti eftir stærstu flokka lands­ins, með 5,2 pró­sentu­stigum minna fylgi en sá næst stærsti, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Munurinn á milli þess­ara tveggja hægri flokka hefur aldrei verið minni.

Sam­fylk­ingin mælist áfram sem áður langstærsti flokk­ur­inn sam­kvæmt könnun Gallup með 29,7 pró­sent fylgi. Flokkur Kristrúnar Frosta­dóttur hefur mælst með mest fylgi allra frá upp­hafi síð­asta árs og mæld­ist síð­ast með undir 28 pró­sent fylgi fyrir ári síðan. Miðað við stöðu mála myndi fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar næstum þre­fald­ast frá síð­ustu kosn­ingum. Sá flokkur og Mið­flokk­ur­inn eru einu flokk­arnir á þingi sem hafa bætt við sig fylgi það sem af er kjör­tíma­bili. 

Flokkur fólks­ins hefur líka verið að hress­ast á þessu ári eftir að hafa verið að mæl­ast tæpur á að ná manni inn framan af kjör­tíma­bil­inu. Alls segj­ast 7,2 pró­sent kjós­enda að þeir styðji flokk Ingu Sæland um þessar mundir. Píratar, með 8,2 pró­sent fylgi, og Viðreisn, með 7,5 pró­sent, eru nokkuð stöðugt að mæl­ast í kringum kjör­fylgi sitt í síð­ustu kosn­ingum. Sós­í­alista­flokkur Íslands er nokkuð langt frá því að mæl­ast með kjör­dæma­kjör­inn þing­mann inni með 3,4 pró­sent fylgi.

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 3.–28. apríl 2024. Heild­ar­úr­taks­stærð var 9.925 og þátt­töku­hlut­fall 48,1 pró­sent. Þátt­tak­endur voru valdir af handa­hófi úr við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár