Bjarga sér með smálánum í samkomubanni

Eftir að starfsemi hjálpar­stofnana lagðist að mestu af vegna samkomu­banns í kjölfar aukinnar útbreiðslu COVID-19 hafa margir öryrkjar ekki aðrar leiðir til að sjá fyrir sér og sínum en að taka smálán

Þuríður Harpa Sigurðardóttir
Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir Mynd: Öryrkjabandalag Íslands

Öryrkjar taka smálán í auknum mæli eftir að starfsemi hjálpar­stofnana lagðist að mestu af vegna samkomu­banns í kjölfar aukinnar útbreiðslu COVID-19.  Nú, þegar hjálpar­samtaka nýtur ekki við, kemur berlega í ljós hversu illa er búið að fólki í þessum hóp. Þetta segir Þuríður Harpa Sigurðar­dóttir formaður Öryrkja­banda­lagsins. Hún segir að stjórn­völd hafi markvisst útvistað velferðar­kerfinu til frjálsra félaga­samtaka og fjöl­skyldna öryrkja.

„Það er búið að loka meira eða minna fyrir allt hjálpar­starf eftir að samkomu­bann var sett,“ segir Þuríður Harpa. „Og núna, þegar búið er að taka allar þessar leiðir í burtu, blasir við hvað fátæktin er mikil. Stór hluti af örorku­lífeyri fólks fer í húsnæði og fólk í þessum hópi þarf að leita allra leiða til að eiga í sig og á og stólar í mörgum tilvikum algerlega á matar­gjafir hjálpar­samtaka. Nú er búið að taka allar þessar bjargir í burtu og það kemur ekkert í staðinn.“

Bág kjörÖryrkjar taka nú smá­lán í auknum mæli eftir að starf­semi hjálp­ar­stofn­ana lagð­ist að mestu af. Þetta segir Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir for­maður Öryrkja­banda­lags­ins.

Í umsögn Öryrkja­banda­lagsins við nýju fjár­aukalögin er gagnrýnt að ekki sé brugðist við stöðu örorku­lífeyrisþega. „Bjargir þessara einstaklinga sem berjast í bökkum, heilsu­lausir og/eða fatlaðir, eru ýmsar hjálpar­stofnanir sem úthluta matar­gjöfum, sumir búa að því að ættingjar reyni eftir fremsta megni að aðstoða með því að færa björg í bú, þó flestir eiga nóg með sig, segir í umsögninni.

Í sjálfskipaðri sóttkví vegna undirliggjandi sjúkdóma

Þar segir einnig að það sé skylda stjórn­valda á meðan COVID-19 faraldurinn standi yfir að horfa sérstak­lega til þeirra sem bágast standa í samfélaginu. Örorku­lífeyrir sé í sögulegu lágmarki langt undir framfærslu­viðmiðum, að því er fram kemur í umsögninni. Þá er þar lagt til að stað þess að leggja 3,1 milljarða króna í sérstakan barnabóta­auka fyrir foreldra óháð tekjum, verði þeirri upphæð varið í beinan stuðning til lágtekju­fólks á leigu­markaði með  sérstökum húsnæðis­bóta­auka og tryggt verði að lágtekju­fólk fái greiddar vaxta­bætur.

„Fólk í þessum hópi getur að öllu jöfnu ekki pantað mat á netinu, einfald­lega vegna þess að það hefur ekki efni á því“ 

Þuríður Harpa segir að í síðustu viku hafi verið gerð könnun meðal formanna aðildar­félaga Öryrkja­banda­lagsins um áhrif COVID-19 faraldursins á félags­menn. Svör flestra voru á þann veg að vart yrði við miklar áhyggjur hjá fólki. Mörg félaganna, einkum þau stærri, hefðu aukið við ráðgjöf sína vegna mikillar eftir­spurnar. Þá væri talsvert um það meðal öryrkja að þeir færu í sjálf­skipaða sóttkví, en margir væru með undir­liggjandi sjúkdóma og því í áhættu­hópi.

Vítahringur sem erfitt er að komast út úr

„Fólk í þessum hópi getur að öllu jöfnu ekki pantað mat á netinu, einfald­lega vegna þess að það hefur ekki efni á því. Margir hafa lítið stuðningsnet og engan til að aðstoða sig og ég þekki nokkur dæmi um að öryrkjar hafi þurfi að fara í sóttkví en geti ekki verið í henni heima hjá sér vegna þess að þar er veikur einstaklingur. Þeir þurfa þá að leigja húsnæði og greiða fyrir með smáláni eða netgíró og þannig myndast víta­hringur sem getur verið gríðar­lega erfitt að komast út úr,“ segir Þuríður Harpa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár