Ekki ljóst hvort kaup Samherja á útgerð í Noregi verði skoðuð á grundvelli nýrra reglna

Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Noregs segir Kjarn­anum að ekki sé búið að ákveða hvort nýjar reglur sem hann setti norsku Fiski­stof­unni um umsvif útlend­inga í norskum sjáv­ar­út­vegi verði látnar gilda aft­ur­virkt — og þá um kaup dótt­ur­fé­lags Samherja í Eskøy.

Odd Emil Ingebrigtsen er sjávarútvegsráðherra Noregs.
Odd Emil Ingebrigt­sen er sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Noregs. Mynd: Øyvinn Myge/NFD

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort nýjar reglur sem norski sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans setti norsku Fiski­stof­unni (Fisker­i­di­rekt­ora­tet) í upp­hafi þessa mán­aðar muni leiða til þess að við­skipti með hluti í norskum sjáv­ar­út­vegs­fé­lögum sem þegar hafa átt sér stað verði skoðuð og mögu­lega snúið við. Þetta segir sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann sjálfur, Odd Emil Ingebrigt­sen, í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Kjarninn spurði hvort ráð­herr­ann teldi að kaupum dótt­ur­fé­lags Samherja, Icefresh GmbH í Þýska­landi, á 40 pró­sent hlut í útgerð­inni Eskøy í Noregi, yrði ef til vill snúið við í ljósi nýrra reglna sem ráð­herr­ann boð­aði fyrr í þessum mán­uði. Ráð­herr­ann dró ekki dul á það helsta ástæða þess að gripið var til aðgerða var íslenski sjáv­ar­út­vegs­ris­inn Samherji. Sér­stak­lega var fjallað um kaupin á Eskøy í frétta­til­kynn­ingu norska sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­is­ins.[links]

Nýju regl­urnar voru settar vegna grun­semda um að erlendir fjár­festar í sjáv­ar­út­vegi væru að snið­ganga norsk lög sem segja til um að skip með úthlut­uðum fisk­veiði­kvóta verði að vera í að minnsta kosti 60 pró­sent eigu Norð­manna, með því að raun­veru­legt eign­ar­hald væri til að mynda falið með lán­veit­ingum frá erlendum aðilum. Þeir, erlendu aðil­arnir, hefðu svo mun meiri áhrif á það hvernig útgerð sé rekin en upp­gefið eign­ar­hald þeirra segir til um.

„Ég hef ekk­ert að segja við þess­ari spurn­ingu núna (e. I have no comment to that question now). Við höfum ekki enn ákveðið hvort við munum skoða mál aft­ur­virkt,“ segir í skrif­legu svari Ingebrigt­sen við fyr­ir­spurn Kjarnans, sem barst undir lok síð­ustu viku.

Stendur við fyrri orð sín um „laskað orðspor“ Samherja

Það vakti nokkra athygli hér á Íslandi að norski ráð­herr­ann kaus að lýsa Samherja sem fyr­ir­tæki með „laskað orð­spor“ í við­tali við við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv fyrr í mán­uð­inum, eða um það leyti sem nýju regl­urnar til Fisker­i­di­rekt­oret voru opin­ber­aðar. Kjarninn bað ráð­herr­ann um að útskýra þessi orð sín í meiri smá­at­riðum.

„Þetta var til­vísun í það orð­spor sem nú eltir fyr­ir­tækið, eftir allar frétt­irnar sem við höfum séð á síð­ustu árum. Þetta við­tal við DN var einnig ein­ungis nokkrum dögum eftir útgáfu skýrslu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um norska bank­ann DnB og þeirra sam­band við Samherja. Ég tel enn að „laskað orð­spor“ sé við­eig­andi lýs­ing á stöðu þeirra,“ segir ráð­herr­ann.

Ráðuneytið veitti samruna Nergård og Norsk Sjømat grænt ljós

Nokkra athygli vakti síð­asta haust að áform Samherja um að selja sig út úr norska sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu Nergård gengu ekki eftir. Þar á Samherji 39,9 pró­senta hlut, en félagið ætl­aði að selja út á sama tíma og Nergård myndi sam­ein­ast fyr­ir­tæk­inu Norsk Sjømat, sem til stóð að skrá á hluta­bréfa­markað í Ósló.

Sameinað félag, sem Samherji ætl­aði að selja 29 pró­sent hlut sinn í sam­kvæmtfrétt Við­skipta­blaðs­ins frá því í októ­ber, hefði orðið það næst stærsta í norskum sjáv­ar­út­vegi.

[adspot]

Ekkert varð þó af sam­ein­ing­unni, skrán­ingu á markað og þá ekki heldur sölu Samherja á hlut sínum í Nergård, sem sam­kvæmt frétt Við­skipta­blaðs­ins var verð­met­inn á um 19 til 22 millj­arða íslenskra króna. Í yfir­lýs­ingum um að sam­run­inn hefði verið sleg­inn af og skrán­ingu á markað aflýst var vísað til auk­innar óvissu og ókyrrðar á fjár­mála­mörk­uðum.

Samkvæmt því sem Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja sagði við Við­skipta­blaðið þann 1. nóv­em­ber lá ekki fyrir hvort sam­runa­við­ræður Nergård og Norsk Sjømat myndu hefj­ast á ný. „Maður verður bara að sjá hvernig þetta þró­ast. Við erum ekk­ert að hugsa um sam­runa núna,“ sagði Þor­steinn Már.

Kjarninn beindi þeirri spurn­ingu til norska sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans hvort ráðu­neyti hans hefði haft ein­hver áhrif á þennan fyr­ir­hug­aða sam­runa síð­asta haust — og þá mögu­lega hvernig hann fór.

„Við höfðum ekki áhrif á sam­runa­ferlið sem slíkt,“ segir ráð­herr­ann í svari sínu til Kjarnans. Hann bætir því við þó við að norsk lög kveði á um að hlutar í fyr­ir­tækjum sem eigi, beint eða óbeint, norsk fiski­skip, geti ekki verið seldir eða skipt um hendur án sam­þykkis frá norskum yfir­völdum.

„Af þeim sökum, þá voru sam­skipti á milli Nergård og lög­fræð­inga þeirra og ráðu­neyt­is­ins varð­andi upp­bygg­ingu nýja fyr­ir­tæk­is­ins og hvernig fyr­ir­tækið gæti verið skráð á hluta­bréfa­markað, í sam­ræmi við kröfur lag­anna. Þessu ferli lyktaði með form­legu sam­þykki frá ráðu­neyt­inu,“ segir Odd Emil Ingebrigt­sen, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Noregs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár