Norski sjávarútvegsráðherrann segir að Samherji sé með „laskað mannorð“

Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Noregs seg­ist gruna að Samherji sé að reyna að kom­ast í kringum reglur um eign­ar­hald erlendra aðila á norskum fisk­veiði­kvóta og hefur gripið til aðgerða. Hann felur ekki nei­kvæðni sína í garð Samherja.

Odd Emil Ingebrigtsen, sjávarútvegsráðherra Noregs.
Odd Emil Ingebrigt­sen, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Noregs. Mynd: Øyvinn Myge/NFD

Odd Emil Ingebrigt­sen, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Noregs, hefur fyr­ir­skipað Fiski­stofu þar í landi (Fisker­i­di­rekt­ora­tet) að stöðva útgáfu á heim­ildum til erlendra aðila til að kaupa fiski­skip sem halda á fisk­veiði­kvóta þar í landi. Hann hefur grun­semdir um að erlendir fjár­festar í sjáv­ar­út­vegi séu að snið­ganga lög sem segja til um að skip með úthlut­uðum fisk­veiði­kvóta verði að vera í að minnsta kosti 60 pró­sent eigu Norð­manna, með því að raun­veru­legt eign­ar­hald sé til að mynda falið með lán­veit­ingum frá erlendum aðilum. Þeir, erlendu aðil­arnir, hafi svo mun meiri áhrif á það hvernig útgerð sé rekin en upp­gefið eign­ar­hald þeirra segir til um.

Ingebrigt­sen segir enn fremur að til greina komi að end­ur­skoða við­skipti með skip sem halda á fisk­veiði­kvóta aftur í tím­ann og vinda ofan af þeim. Þetta kemur fram í umfjöllun norska við­skipta­blaðs­ins Dagens Nær­ingsliv um málið.

Helsta ástæða þess að Ingebrigt­sen grípur nú til aðgerða er ein­föld: íslenski sjáv­ar­út­vegs­ris­inn Samherji.

Grunur um sniðgöngu á lögum um erlent eignarhald

Í umfjöllun Dagens Nær­ingsliv er greint frá útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Eskøy í Finn­mörku í Norður-Noregi. Þar til nýlega var það í eigu tveggja íslenskra bræðra, Hrafns og Helga Sig­valda­sona, sem hafa búið um skeið í Noregi og eru norskir rík­is­borg­arar. Seint á síð­asta ári var gert sam­komu­lag um að Icefresh GmbH, dótt­ur­fé­lag Sam­herja í Þýska­landi, myndi leggja fyr­ir­tæk­inu til nýtt fé og fá í stað­inn 40 pró­sent hlut í Eskøy. Greint var form­lega frá frá­gangi við­skipt­anna á vef vef Icefresh seint í apríl, eftir að norska Fiski­stofan hafði sam­þykkt ráða­hag­inn. Eskøy hefur um ára­bið verið í sam­starfi við Icefresh sem rekur fisk­vinnslu nálægt Frank­furt am Main í Þýska­landi.

[adspot]Þetta var ekki fyrsta fjár­fest­ing Samherja í norskum útgerðum. Fyrir um sjö árum síðan keypti sam­stæðan, í gegnum dótt­ur­fé­lög, fimmt­ungs­hlut í út­gerð­arfé­lag­inu Nergård, sem er meðal stærstu út­gerða Nor­egs.

Til stóð að nota hið nýja fjár­magn sem Samherji lagði Eskøy til til að kaupa upp norsk skip og afla­heim­ildir sem þeim fylgdu. Dagens Nær­ingsliv segir að haft hafi verið sam­band við útgerð sem kall­ast Senja með það fyrir augum að gera slík við­skipti.

Sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neytið í Noregi ákvað nýverið að skoða þau við­skipti sér­stak­lega. Í bréfi sem það sendi til Eskøy þann 16. apríl síð­ast­lið­inn var fyr­ir­tækið krafið um ýmis­konar upp­lýs­ingar, meðal ann­ars um hlut­hafa­sam­komu­lög og aðkomu ytri aðila að fjár­mögnun á kaup­unum af Senja. Hrafn Sig­valda­son segir við Dagens Nær­ingsliv að það hefði verið afar sér­stakt fyrir litla útgerð að fá slíkt bréf frá sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Noregs. Það er enda afar óvenju­legt að ráð­herr­ann, Ingebrigt­sen, sendi slík bréf í eigin nafni beint til útgerða. Í þessu til­felli þótti honum það nauð­syn­legt.

Segir Samherja vera með laskað mannorð

Ingebrigt­sen segir við Dagens Nær­ingsliv að svör Eskøy hafi verið ófull­nægj­andi. Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann felur það heldur ekki að hann er ekki jákvæður í garð Samherja. „Þetta fyr­ir­tækið er með laskað mann­orð. Í Noregi hafa skip sem þeir eiga oft­sinnis verið stöðvuð af land­helg­is­gæsl­unni, sem er auð­vitað óheppi­legt. Meiri áhersla verður lögð á slík mál í fram­tíð­inni þegar sam­þykki verður veitt fyrir breyt­ingum á eign­ar­haldi.“

Í jan­úar hafði norska land­helg­is­gæslan afskipti af frysti­tog­ar­anum Santa Princesa, sem er í eigu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar og er skráður í Portúgal. Samherji segir að dóm­stólar hafi stað­fest að málið hafi verið til­hæfu­laust og til­komið vegna þess að til­kynn­ing­ar­kerfi milli Noregs og Portúgal virk­aði ekki sem skyldi.

Í skrif­legu svari til norska við­skipta­blaðs­ins segir Margrét Ólafs­dóttir, tals­kona Samherja, að það valdi Samherja von­brigðum að norski sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann segi að sam­stæðan sé með „laskað mann­orð“. Hún segir orð ráð­herr­ans vera „mjög ósann­gjörn“.

Það sé ekki upp­lifun Samherja á sjálfum sér og ekki upp­lifum sam­stæð­unnar af sam­skiptum hennar við sam­starfs­að­ila í Noregi, hvort sem um sé að ræða þá sem smíði fyrir hana skip, banka sem láni þeim fjár­muni eða starfs­menn Samherja þar í landi.

Samherjarannsókn afhjúpaði veikleika í peningaþvættisvörnum

Þetta er ekki eina málið tengt Samherja sem ratað hefur í fréttir í Noregi á síð­ustu dögum.

Í síð­ustu viku var greint frá því að norska fjár­mála­eft­ir­litið hefði ákveðið að sekta norska bank­ann DNB, sem er að stórum hluta í eigu norska rík­is­ins, um 400 millj­ónir norskra króna, jafn­virði um það bil sex millj­arða íslenskra króna, vegna ára­langra bresta í eft­ir­liti og vörnum bank­ans gegn pen­inga­þvætti. Bankinn fékk harða gagn­rýni frá fjár­mála­eft­ir­lit­inu, meðal ann­ars vegna eft­ir­lits með fjár­magns­flutn­ingum fyr­ir­tækja í Sam­herj­a­sam­stæð­unni.

[adspot]Norska fjár­mála­eft­ir­litið sendi frá sér tvö skjöl þegar nið­ur­staðan var birt, ann­ars vegar skýrslu um ákvörðun sína um sekt­ar­greiðslu bank­ans og hins vegar sér­staka skýrslu um rann­sókn sína á Sam­herj­a­mál­inu, en sú er dag­sett í byrjun des­em­ber í fyrra.

Mat fjár­mála­eft­ir­lits­ins var að þeir van­kantar sem komu í ljós í tengslum við rann­sókn­ina á Sam­herj­a­mál­inu hafi stað­fest veik­leika í vörnum DNB sem afhjúp­ast hafi í fyrri athug­unum fjár­mála­eft­ir­lits­ins á vörnum bank­ans gegn pen­inga­þvætti árin 2016 og 2018 og sömu­leiðis þeirri nýj­ustu, sem nú var sektað fyrir.

Þau brot sem voru undir í rann­sókn fjár­mála­eft­ir­lits­ins á Sam­herj­a­mál­inu voru þó sögð fyrnd og framin er eldri lög um pen­inga­þvætti voru í gildi í Noregi.

Grunur um ýmiskonar lögbrot víða um heim

Samherji er til rann­sóknar hér­lendis og í Namibíu vegna meintra mútu­brota, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvættis í tengslum við við­skipti sín í Namibíu. Á Íslandi rann­saka bæði emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóri málið og alls sex núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Samherja hafa fengið stöðu sak­born­ings við yfir­heyrslur.

Á mánu­dag var greint frá því að Tind­holmur, fær­eyskt dótt­ur­fé­lag Samherja, hefði greitt 345 millj­ónir króna vegna van­gold­inna skatta í rík­is­sjóð Færeyja. Skatt­skil félags­ins hafa sömu­leiðis verið kærð til lög­reglu í Færeyjum.

Málið kom upp í mars síð­ast­liðnum þegar fyrri hluti heim­ild­ar­myndar um umsvif Samherja í Færeyjum var sýnd er í fær­eyska sjón­varp­inu. Hún var unnin í sam­starfi við Kveik og Wikileaks.

Þar kom fram að Íslend­ingur úr áhöfn tog­ara í eigu Samherja, sem gerður var út í Namibíu, fékk laun sín greidd frá fær­eyska félag­inu Tind­holmur, sem Samherji stofn­aði þar í landi árið 2011. Gögn sýndu að hann hafi auk þess verið rang­lega skráður í áhöfn fær­eysks flutn­inga­skips í eigu Samherja, en útgerðum býðst 100 pró­sent end­ur­greiðsla á skatt­greiðslum áhafna slíkra skipa.

Þannig er talið að málum hafi verið háttað með fleiri sjó­menn sem unnu fyrir Samherja í Namibíu. Fyrir vikið greiddu sjó­menn­irnir ekki skatta í Namibíu og Samherji þurfti því ekki að bæta þeim upp tekju­tap vegna slíkra skatt­greiðslna.

Telur orðspor íslenskra fyrirtækja ekki í hættu vegna Samherja

Áhrif atferlis Samherja á alþjóða­vett­vangi á orð­spor Íslands var til umræðu á Alþingi í lið­inni viku.

[links] Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, meðal ann­ars: „Orðspor Íslands og Íslend­inga skað­að­ist við banka­hrunið. Það gerði það líka þegar fjöldi Íslend­inga, þar á meðal ráð­herrar, birt­ust í Panama-skjöl­unum.“

Hún spurði svo Bjarna hvort hann teldi að nei­kvæð umfjöllun um sam­skipti Samherja, meðal ann­ars meint skatt­svik í Færeyjum, pen­inga­þvætti í gegnum banka í Noregi og mútu­greiðslur í Namibíu gæti skaðað traust á íslensku atvinnu­lífi. „Að nei­kvæð umræða um við­skipti eig­enda Samherja fylgi orð­spors­á­hætta? Hafi nei­kvæð áhrif sem teygir sig yfir í við­skipti ann­arra íslenskra fyr­ir­tækja og við­skipta­samn­inga þeirra? Hvað er hæst­virt rík­is­stjórn að gera til þess að verja orð­spor Íslands að þessu leyti?“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár