DNB fær milljarða sekt – Samherjamál sagt staðfesta fyrri aðfinnslur

Norska fjár­mála­eft­ir­litið segir bank­ann DNB hafa staðið sig illa í að fram­fylgja lögum um pen­inga­þvætti árum saman. Í skýrslu þess um Sam­herj­a­málið fær bank­inn ákúrur fyrir að skoða ekki sér­stak­lega milli­færslur fyrir og eftir að Sam­herj­a­málið kom upp.

Norski bankinn DNB varpaði Samherja úr viðskiptum hjá sér undir lok árs 2019.
Norski bank­inn DNB varp­aði Samherja úr við­skiptum hjá sér undir lok árs 2019. Mynd: Úr safni

Norska fjár­mála­eft­ir­litið hefur ákveðið að sekta norska bank­ann DNB um 400 millj­ónir norskra króna, jafn­virði um það bil 6 millj­arða íslenskra króna, vegna ára­langra bresta í eft­ir­liti og vörnum bank­ans gegn pen­inga­þvætti. Bankinn fær harða gagn­rýni frá fjár­mála­eft­ir­lit­inu, meðal ann­ars vegna eft­ir­lits með fjár­magns­flutn­ingum fyr­ir­tækja í Sam­herj­a­sam­stæð­unni.

Bankinn ætlar ekki að áfrýja sekt­inni. Á vef norska rík­is­út­varps­ins NRK er haft eftir Kjerstin Braathen for­stjóra bank­ans að gagn­rýni fjár­mála­eft­ir­lits­ins sé tekin alvar­lega, en það lætur bank­ann heyra það og segir rann­sókn sína hafa leitt í ljós að miklir ágallar hafi verið í vörnum bank­ans gegn pen­inga­þvætti um margra ára tíma­bil og að slæ­leg vinnu­brögð hvað það varðar hafi teygt sig víða um bank­ann.

Birta skýrslu um rannsókn á Samherjamálinu

Norska fjár­mála­eft­ir­litið sendir frá sér tvö skjöl í morgun, ann­ars vegar skýrslu um ákvörðun sína um sekt­ar­greiðslu bank­ans og hins vegar sér­staka skýrslu um rann­sókn sína á Sam­herj­a­mál­inu, en sú er dag­sett í byrjun des­em­ber í fyrra.

Mat fjár­mála­eft­ir­lits­ins er að þeir van­kantar sem komu í ljós í tengslum við rann­sókn­ina á Sam­herj­a­mál­inu hafi stað­fest veik­leika í vörnum DNB sem afhjúp­ast hafi í fyrri athug­unum fjár­mála­eft­ir­lits­ins á vörnum bank­ans gegn pen­inga­þvætti árin 2016 og 2018 og sömu­leiðis þeirri nýj­ustu, sem nú er sektað fyrir.

Þau brot sem voru undir í rann­sókn fjár­mála­eft­ir­lits­ins á Sam­herj­a­mál­inu eru þó sögð fyrnd og framin er eldri lög um pen­inga­þvætti voru í gildi í Noregi. Bankinn seg­ist í til­kynn­ingu vera búinn að styrkja við­brögð sín gegn pen­inga­þvætti mikið síðan.

[adspot]

Fram kemur í sekt­ar­á­kvörðun fjár­mála­eft­ir­lits­ins að sam­hliða rann­sókn þess á Sam­herj­a­mál­inu hafi norska efna­hags­brota­deildin Økokrim einnig verið að skoða málið, eins og sagt hefur verið frá í íslenskum fjöl­miðlum. Rakið er að málið hafi verið fært frá Økokrim til rík­is­sak­sókn­ara­emb­ætt­is­ins í Ósló síð­asta haust, en það var gert þar sem stjórn­andi Økokrim var van­hæfur til að fara með málið vegna fyrri starfa sinna í lög­mennsku.

Saka­málið var síðan fellt niður og ábyrgð á því færð yfir til fjár­mála­eft­ir­lits­ins þann 11. febr­úar á þessu ári. Í til­kynn­ingu sem þá var send út sagði að rann­sókn hefði ekki leitt af sér upp­lýs­ingar sem þóttu til­efni til sak­sóknar gegn ein­stak­lingum sem starfa hjá DNB né að rann­sóknin þætti lík­leg til að leiða til sekt­ar­greiðslna.

DNB fær ákúrur fyrir að skoða ekki stórar millifærslur síðla árs 2019

Saka­mála­rann­sóknin gagn­vart DNB sner­ist um að skoða hvort bank­inn hefði tekið þátt í glæp­sam­legu athæfi með því að til­kynna ekki milli­færslur Sam­herj­a­fé­lags til félags í Dúbaí til fjár­mála­eft­ir­lits­ins í Noregi sem grun­sam­legar milli­færslur. Í skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits­ins eru veru­legar athuga­semdir gerðar, meðal ann­ars við eft­ir­lit bank­ans með háum milli­færslum sem áttu sér stað skömmu áður en Sam­herj­a­málið varð opin­bert.

„Á tíma­bil­inu rétt fyrir og rétt eftir að Sam­herj­a­málið varð opin­bert, voru háar fjár­hæðir milli­færðar á milli [tveggja ónefndra fyr­ir­tækja]. [...] Engin þess­ara milli­færslna virð­ast hafa verið rann­sak­aðar nánar,“ segir í skýrslu fjár­mál­eft­ir­lits­ins og enn­fremur segir þar að á þessum tíma­punkti hefði DNB átt að fylgj­ast sér­stak­lega með færslum til og frá kúnnum í Samherja-sam­stæð­unni og skoða hvort þær væru grun­sam­legar.[links]

DNB er stærsti banki Noregs og í 34 pró­sent eigu norska rík­is­ins. Bankinn lauk við­skipta­sam­bandi sínu við Samherja í lok árs 2019 vegna þess að stjórn­endur dótt­ur­fé­laga sjáv­ar­út­vegs­ris­ans, sem áttu reikn­inga í bank­anum, svör­uðu ekki kröfu bank­ans um frek­ari upp­lýs­ingar um starf­semi þess, milli­færslur sem það fram­kvæmdi og tengda aðila, með full­nægj­andi hætti.

DNB fór fram á upp­lýs­ing­arnar seint í nóv­em­ber 2019 í kjöl­far þess að Kveikur, Stundin, Wikileaks og Al Jazeera opin­ber­uðu við­skipta­hætti Samherja í Namibíu. Í þeirri umfjöllun var fjallað um meintar mútu­greiðslur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti. Þegar svör Sam­herj­a­sam­stæð­unnar reynd­ust ekki full­nægj­andi ákvað DNB að slíta við­skipta­sam­bandi við hana. Það var gert með bréfi sem var sent 9. des­em­ber 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár