Samherji og Kjálkanes ætla að selja fyrir allt að tólf milljarða hvort í Síldarvinnslunni

Félag í eigu þriggja stjórn­enda Síld­ar­vinnsl­unnar keypti hlut í fyr­ir­tæk­inu í lok síð­asta árs á verði sem er meira en helm­ingi lægra en það sem þeir geta búist við að fá fyrir hann eftir skrán­ingu.

Ef verð á hlutum í Síld­ar­vinnsl­unni, sem seldir verða í hluta­fjár­út­boði sem hest næst­kom­andi mánu­dag, verður í hærra enda verð­bils og eft­ir­spurn eftir hlutum kallar á stækkun á útboð­inu, munu þeir hlut­hafar sem selja fá alls tæp­lega 29 millj­arða króna í sinn hlut.

Samherji hf., stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar, myndi fá 11,8 millj­arða króna af þeirri upp­hæð í sinn hlut og Kjálka­nes, félag í eigu Björg­ólfs Jóhanns­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Samherja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­skyldu­böndum, fá 11,8 millj­arða króna sömu­leiðis.

Eign­ar­halds­fé­lagið Snæfugl, sem er meðal ann­ars í eigu Samherja og Björg­ólfs, myndi selja fyrir tæpan millj­arð króna og Síld­ar­vinnslan myndi fá um 720 millj­ónir króna fyrir þá eigin hluti hennar sem til stendur að selja.

Framkvæmdastjórar eignast hlut og selja aftur á mun hærra verði

Þá er félagið Hraunlón að selja hluti sem eru um 590 millj­óna króna virði miðað við efri mörk útboðs­ins, sem eru 58 krónur á hlut.

Í skrán­ing­ar­lýs­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar kemur fram að Gunnþór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar, Axel Ísaksson og Jón Már Jónsson, sem allir eiga sæti í fram­kvæmda­stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar séu eig­endur Hraun­lóns. Þeir keyptu félagið í lok árs 2020. Í lýs­ing­unni segir að kaup­verð á Hraun­lóni hafi verið „ákvarðað í mars 2020 og var grund­vallað á árs­reikn­ingi Síld­ar­vinnsl­unnar fyrir árið 2019, gengi hluta Síld­ar­vinnsl­unnar í við­skipt­unum var 23,3 kr. á hlut.“ Alls á Hraunlón um 27,5 millj­ónir hluta í Síld­ar­vinnsl­unni og greiddi fyrir þann hlut um 640 millj­ónir króna fyrir nokkrum mán­uðum síðan. Sá hlutur er, miðað við efri mörk útboðs­ins, nú met­inn á 1.595 millj­ónir króna og hefur því hækkað um 955 millj­ónir króna á fjórum mán­uðum. Hraunlón er að selja 37 pró­sent af eign sinni og væntir þess að fá allt að 592 millj­ónir króna fyrir þann hlut.

Hraunlón var áður í jafnri eigu Einars Bene­dikts­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Olís, og Gísla Baldurs Garð­ars­sonar lög­manns. Samherji fjár­festi í Olís árið 2012 þegar þeir tveir áttu félagið að fullu og árið 2017 voru þeir að öllu leyti keyptir út úr Olís, meðal ann­ars af Samherja. Olís rann síðar saman við smá­söluris­ann Haga.

Hraunlón skil­aði ekki árs­reikn­ing á árunum 2010 til 2015. Á síð­ara árinu er komin inn eign­ar­hlutur í öðru félagi, Síld­ar­vinnsl­unni, sem met­inn var á 213 millj­ónir króna. Sá hlutur er nú, líkt og áður sagði, met­inn á næstum 1,6 millj­arða króna.

Aflaheimildir ekki metnar á markaðsvirði

Síld­ar­vinnslan er þriðja stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins á eftir Brim, sem er líka skráð á markað, og stærsta eig­anda sínum, Samherja. Alls heldur hún á 7,7 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ildum hér­lendis.

Útboð á hlutum í Síld­ar­vinnsl­unni hefst á mánu­dag og því lýkur á mið­viku­dag. Tilkynnt verður um nið­ur­stöðu þess á föstu­dag. Þar verða til sölu á bil­inu 26,33 til 29,33 pró­sent af öllu hlutafé í fyr­ir­tæk­inu. Verð­bilið í útboð­inu er 55 til 58 krónur á hlut sem þýðir að ef eft­ir­spurn verður eftir hlutum fyrir hærri krónu­töl­una, og hærra hlut­fall bréfa sem er í boði, þá munu nýir eig­endur, sem verða að öllum lík­indum að uppi­stöðu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, greiða tæp­lega 29 millj­arða fyrir.

Rekstur Síld­ar­vinnsl­unnar hefur gengið lygi­lega á und­an­förnum árum. Hún hagn­að­ist um 5,3 millj­arða króna á síð­asta ári. Tekjur hennar 2020 voru 24,9 millj­arðar króna og eigið fé sam­stæð­unnar í árs­lok var 49,1 millj­arðar króna. Eig­in­fjár­hlut­fall Síld­ar­vinnsl­unnar var 68 pró­sent um síð­ustu ára­mót.

[adspot]Verð­mætasta bók­færða eign félags­ins eru veið­i­­heim­ild­ir, aðal­lega í upp­sjáv­ar­teg­und­um, sem voru sagðar 228,3 millj­­ónir dala í lok árs 2019. Á gengi dags­ins í dag gera það um 30 millj­­arðar króna. Miðað við síð­ustu gerðu við­skipti með afla­hlut­deild, þegar dótt­ur­fé­lag Síld­ar­vinnsl­unnar keypti útgerð­ina Berg, má ætla að mark­aðsvirði þeirra afla­heim­ilda sé þrisvar sinnum sú upp­hæð, eða nær 90 millj­örðum króna.

Vaxtartækifæri í því að kaupa upp kvóta

Í fjár­festa­kynn­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar segir að það séu ýmis­konar tæki­færi til vaxtar hjá fyr­ir­tæk­inu. Þar er fjallað sér­stak­lega um mögu­legan innri vöxtu með því að auka verð­mæti núver­andi afla og fram­leiðslu með frekara þró­unar- og mark­aðs­starfi. Ytri vaxt­ar­tæki­færi fel­ast svo í því að kaupa frek­ari afla­heim­ildir og fyr­ir­tæki, en sam­kvæmt núgild­andi lögum má hver útgerð halda á allt að tólf pró­sent af úthlut­uðum afla­heim­ildum. Síld­ar­vinnslan ein og sér heldur á, líkt og áður sagði 7,7 pró­sent.

Kjarninn greindi hins vegar frá því í frétta­skýr­ingu í byrjun apríl að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sé þeirrar skoð­unar að veru­leg tengsl séu milli þriggja af stærstu hlut­hafa í Síld­ar­vinnsl­unni: Samherja, Kjálka­nes og Eign­ar­halds­fé­lag­inu Snæfugli. Þessir þrír aðilar halda sem stendur á 84,16 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni.

Þrír af fimm stjórn­ar­mönnum sam­stæð­unnar eru skip­aðir af þessum tveimur félögum eða eru tengdir eig­endum þeirra. Að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins eru því vís­bend­ingar um yfir­ráð Samherja yfir Síld­ar­vinnsl­unni.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja, er með næst mesta afla­hlut­­deild í íslenskri efna­hags­lög­sögu allra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,3 pró­­sent. ­Út­­­gerð­­­­­­ar­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,7 pró­­­­­­sent kvót­ans.

Gjögur, í eigu sömu aðilar og eiga Kjálka­nes, heldur svo á 2,30 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ildum.

Sam­an­lagt heldur þessi blokk, að þeim afla­heim­ildum sem Síld­ar­vinnslan hefur yfir­ráð yfir, því á tæp­lega 19 pró­sent af úthlut­uðum afla­heim­ildum á Íslandi.

Það er langt yfir þeim tólf pró­sentum sem lands­lög segja til um að tengdir aðilar megi halda á hverju sinni.

Mikil viðskipti við tengda aðila

Í skrán­ing­ar­lýs­ing­unni er gert frek­ari grein fyrir við­skiptum Síld­ar­vinnsl­unnar við tengda aðila, og þá aðal­lega við félög sem tengj­ast tveimur stærstu eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins: Samherja og Gjögur.

[links]Þar segir meðal ann­ars: „Síld­ar­vinnslan selur stóran hluta afurða sinni í gegnum Ice Fresh Seafood ehf. sölu­fé­lag í eigu Samherja hf., Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja hf. er jafn­framt stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar. Síld­ar­vinnslan landar hluta af bol­fiski veiddum af skipum félags­ins til vinnslu hjá dótt­ur­fé­lögum Samherja hf. og dótt­ur­fé­lögin landa upp­sjáv­ar­fiski sem skip þeirra veiða til vinnslu hjá Síld­ar­vinnsl­unni.
Síld­ar­vinnslan er ekki með skrif­lega samn­inga vegna sölu á afurðum sínum. Við­skipti við stærstu við­skipta­vini félags­ins eru byggð á langvar­andi við­skipta­sam­böndum aðila. Síld­ar­vinnslan er með sölu­samn­ing við Ice Fresh Seafood sölu­fé­lag Samherja hf. og greiðir Síld­ar­vinnslan umboðs­laun sem hlut­fall af sölu, til Ice Fresh Seafood. Samn­ing­ur­inn er hvorki bind­andi fyrir Síld­ar­vinnsl­una né Ice Fresh Seafood. Vörur félags­ins eru seldar undir merkjum Síld­ar­vinnsl­unnar „SVN“.“

Í lýs­ing­unni kemur líka fram að Síld­ar­vinnslan hafi selt vörur og þjón­ustu til tengdra aðila á árinu 2020 fyrir um 10,8 millj­arða króna á núvirði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár